Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Dómssátt í máli Sr. Skírnis gegn kirkjunni og biskupi: „Biskup virðist hafa tekið geðþóttaákvörðun“

Dómssátt í máli Sr. Skírnis gegn kirkjunni og biskupi: „Biskup virðist hafa tekið geðþóttaákvörðun“
Agnes biskup og Séra Skírnir Garð­ars­son.

Dómssátt hefur verið und­ir­rituð í máli Séra Skírnis Garð­ars­sonar gegn Þjóð­kirkj­unni, bisk­ups­stofu og Agnesi M Sig­urð­ar­dóttur bisk­upi.

Um dóms­sátt­ina ríkir trún­aður og mun Séra Skírnir því ekki tjá sig um hana en hann er að sögn ánægður með mála­lyktir. Hann vill koma á fram­færi hrósi til lög­manns síns, Sigurðar Kára Krist­jáns­sonar, fyrir fag­mennsku hans í vinnu við málið.

„Svo virð­ist sem máls­að­ilar, og þá sér­stak­lega lög­maður bisk­ups, Gestur Jónsson, hafi und­ir­ritað dóms­sátt­ina til að forða Agnesi bisk­upi frá að verða dæmd í hér­aðs­dómi, en sá kostur hefði verið alger hneisa fyrir hana,“ segir í til­kynn­ingu frá Séra Skírni Garð­ars­syni.

Í til­kynn­ing­unni segir enn­fremur:

„Nokkuð ljóst er að sá gjörn­ingur bisk­ups að úti­loka Sr. Skírni frá prests­þjón­ustu, vegna ummæla hans við blaða­mann á Vísir.is, vegna máls sem Skírnir taldi eiga erindi til almenn­ings, var alger­lega út í hött og kallar nið­ur­staða máls­ins næsta aug­ljós­lega á að biskup íhugi stöðu sína sem æðsti yfir­maður kirkj­unnar.

Fyrir þessu eru ýmsar ástæður. Biskup virð­ist hafa van­virt tján­ing­ar­frelsið, horft fram­hjá stjórn­sýslu­lögum og tekið geð­þótta­á­kvörðun. Slíkt er ekki í lagi.

Ekki er vitað hver aðil­anna (þjóð­kirkjan, bisk­ups­stofa eða Agnes sjálf) ber kostn­að­inn að dóms­sátt­inni, þá úrskurð­aði dóm­ari að stefndu (Agnes, bisk­ups­stofa og kirkjan), skyldu bera máls­kostn­að­inn, bæði stefndu og stefn­anda. Ljóst er að þetta allt saman hefur kostað kirkj­una mikla pen­inga, sem betur hefðu verið not­aðir í annað“.

Í sam­tali við Mannlíf ítrekar Séra Skírnir að hann sé ánægður með dóms­sátt­ina og muni ekki tjá sig um hana efn­is­lega. „Hins vegar get ég sagt að sím­tölum linnir varla frá kol­legum, sem velta vöngum yfir áfram­hald­andi setu Agnesar á bisk­ups­stóli.“

„Það er mér óvið­kom­andi, því ég er kom­inn á eft­ir­laun, og mun ekk­ert blanda mér í þá umræðu, þó ég skilji margt áður en skellur í tönnum,“ segir Séra Skírnir við blaða­mann Mannlífs.

Mál bakvarðarins

Málið sem vísað er til að hafi valdið úti­lokun Séra Skírnis frá prests­þjón­ustu, á sér nokkurn aðdrag­anda. Þegar Séra Skírnir starf­aði sem sókn­ar­prestur í Lága­fells­kirkju var brot­ist inn í tölvu­póst hans af full­trúa Þjóð­kirkj­unnar. Í fram­hald­inu var hann sak­aður um brot á trún­aði við sókn­ar­barn sem leitað hafði eftir aðstoð hjá honum. Sókn­ar­barnið átti síðar eftir að verða þekkt sem bak­vörður á Bol­ung­ar­vík á fyrstu stigum Covid-19 far­ald­urs­ins.

Eftir þetta var Séra Skírnir hrak­inn úr starfi sínu í Lága­fells­sókn og gerður að hér­aðs­presti á Suð­ur­landi. Hann hefur meðal ann­ars sakað Agnesi M. Sig­urð­ar­dóttur biskup um ein­elti í þessu sam­hengi.

Fyrr­nefndur bak­vörður komst í fréttir í upp­hafi Covid-19 far­ald­urs­ins. Konan var þá sökuð um að hafa farið til Bol­ung­ar­víkur sem bak­vörður á fölskum for­sendum. Séra Skírnir sá sjón­varps­frétt þar sem hann sá kon­unni bregða fyrir í því starfi sem hún hafði tekið að sér. Hann sagði í fram­hald­inu frá þessu í við­tali við Vísi og var í fram­hald­inu rek­inn úr starfi sínu sem prestur í annað sinn.

„Ég get þó sagt að ég undr­ast að biskup skuli ekki víkja úr starfi á meðan þessi mála­rekstur stendur. Það hefði verið heið­ar­leg­ast,“ sagði Séra Skírnir þegar mála­ferlin voru að fara af stað á sínum tíma árið 2021.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð