Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Ásakanir um kynferðisbrot innan Sinfóníunnar – Skrifum Kristjáns Jóhannssonar eytt af Facebook

„Vel gert. En það er ekki jafn vel gert að hylma yfir starfs­manni sekann um kynferðislegt afbrot. Er ekki ráð að skoða það mál opinber­lega og heiðar­lega kæra stjórn,“ skrifaði Kristján Jóhannsson, einn ástsælasti óperu­söngvari Íslands, við færslu á Facebook síðu Sinfóníu­hljóm­sveitar Íslands fyrir skömmu.

Umrædd færsla fjallaði um áformaða tónleika Sinfóníu­hljóm­sveitarinnar 24. mars síðastliðinn. Ágóði miða­sölunnar rann óskiptur til neyðar­söfnunar Þroska­hjálpar fyrir fatlað fólk í Úkraínu.
„Fatlað fólk er sérstak­lega berskjaldað í stríðs­átökum og staða þess í Úkraínu er grafal­varleg. Fatlað fólk getur ekki flúið vegna aðstæðna sinna, getur illa orðið sér út um mat, lyf og aðrar nauð­synjar. Einnig aukast líkur á ofbeldi, að fatlað fólk verði skilið eftir og að það sé án aðstoðar og stuðnings,“ sagði í tilkynningu á vef Sinfóníu­hljóm­sveitarinnar.

Stuttu fyrir tónleikana skapaðist umræða á Facebook-síðu hljóm­sveitarinnar þar sem fólk þakkaði fyrir framlagið. Þræðinum var eytt skömmu síðar en má sjá mynd af ummælunum hér að neðan. Kristján vildi ekki tjá sig frekar um málið þegar blaða­maður Mannlífs hafði samband við hann í dag en vísaði á stjórn­endur Sinfóníu­hljóm­sveitarinnar.

Margrét Ragnars­dóttir, markaðs- og kynningar­stjóri Sinfóníu­hljóm­sveitarinnar kannaðist ekki við málið í samtali við Mannlíf nú í morgun.

„Ég er ekki neitt inni í þessu,“ sagði Margrét í morgun og kvaðst aldrei hafa heyrt af slíkum ásökunum innan Sinfóníunnar. Þá vísaði hún á Láru Sóleyju Jóhanns­dóttur, framkvæmda­stjóra Sinfóníunnar. Ekki náðist í hana við vinnslu fréttarinnar þrátt fdyrir ítrekaðar tilraunir.
Uppfært: Samkvæmt nýrri yfir­lýsingu frá Láru Sóleyju kemur fram að Sinfóníu­hljóm­sveitin hafi ekki eytt umræddri fræslu. Hafi það verið auglýsing sem hafi dottið út. Hún vildi ekki tjá sig um ásakanir innan hljóm­sveitarinnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning