Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Starfsmaður frelsissviptur í klukkustund og beittur hrottalegu ofbeldi: „Eitt alvarlegasta atvikið“

Starfsmaður frelsissviptur í klukkustund og beittur hrottalegu ofbeldi: „Eitt alvarlegasta atvikið“
Vinakot. Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: iartpro

Í síð­ustu viku átti sér stað alvar­leg lík­ams­árás á starfs­mann í einu af búsetu­úr­ræðum Vinakots. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs var starfs­mað­ur­inn frels­is­sviptur í um það bil klukku­stund og beittur hrotta­legu ofbeldi. Reif skjól­stæð­ing­ur­inn meðal ann­ars í hár starfs­manns­ins og barði höfði við­kom­andi í glugga­syllu í á annan tug skipta. Starfs­mað­ur­inn gat lítið varið sig, en mik­ill munur er á lík­ams­burðum milli hans og skjól­stæð­ings­ins. Málið er til rann­sóknar hjá lög­reglu.

Starfsmaðurinn var einn vegna veikinda

Vinakot er einka­rekið með­ferð­ar­úr­ræði fyrir börn með alls kyns vanda­mál. Þar er veitt fjöl­breytt þjón­usta við börn með fjöl­þættan vanda, eins og þroska- og geð­rask­anir. Árásin átti sér stað í einu af búsetu­úr­ræð­unum en Vinakot starf­rækir þrjú heim­ili þar sem pláss er fyrir sex ung­menni. Félagið er í eigu fram­kvæmda­stjór­ans, Aðal­heiðar Braga­dóttur, en sveit­ar­fé­lögin kaupa þjón­ustu af fyr­ir­tæk­inu.

Tals­maður Vinakots stað­festir að ráð­ist hafi verið alvar­lega á starfs­mann í vinnu en seg­ist að öðru leyti bundin trún­aði og ekki getað tjáð sig um ein­staka mál.

Tveir starfs­menn eru alla jafna með skjól­stæð­ingnum en vegna veik­inda  var starfs­mað­ur­inn sem ráð­ist var á einn þennan dag. Skjól­stæð­ing­ur­inn hefur áður sýnt af sér ógn­andi hegðun en aldrei í lík­ingu við þessa árás.

Eru heim­ild­ar­menn DV á þeirri skoðun að sveit­ar­fé­lagið sem fer með mál­efni ein­stak­lings­ins hafi ein­fald­lega leyst vand­ræði sín varð­andi vistun neð því að koma við­kom­andi að hjá Vinakoti.

Samkvæmt heim­ildum DV hefur skjól­stæð­ing­ur­inn sem um ræðir áður gerst sekur um lík­ams­árásir og ógn­vekj­andi hegðun gagn­vart starfs­mönn­unum sem komið hafa að umönnun við­kom­andi. Talsverð reiði ríkir hjá þeim sem tengj­ast mál­inu um að við­kom­andi hafi alls ekki átt heima í slíku úrræði sem Vinakot er heldur mun frekar í ein­hvers­konar örygg­is­vistun sem myndi hæfa sak­hæfu og and­lega veiku fólki sem talið er hættu­legt sjálfu sér og öðrum.

Málaflokkurinn í fullkomnum ólestri

Árásin er enn eitt alvar­lega atvikið sem kemur upp varð­andi ein­stak­linga sem þurfa á örygg­is­vistun að halda. Mála­flokk­ur­inn hefur verið í full­komnum ólestri und­an­farin ár en tvær örygg­is­vist­anir hafa verið starf­andi und­an­farin ár.

Tals­maður Vinakots segir að fæst sveit­ar­fé­lög hafi aftur á móti burði til að koma sér upp örygg­is­vistun.

Nú er áformað að koma á fót ör­yggis­vist­un fyr­ir ósak­hæfa ein­stak­linga í Reykja­nesbæ sem mun þjón­usta allt landið. Stefnt er að því að úrræðið verði tekið í notkun á næsta ári en eins og áður hafa íbúar mót­mælt fyr­ir­ætl­un­unum harð­lega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð