Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Fjögurra ára biðlistar eftir ADHD-greiningum: „Skaðlegar afleiðingar verða okkur sífellt ljósari“

Heilsugæslan. Mynd/skjáskot RÚV
Heilsu­gæslan. Mynd/skjá­skot RÚV

ADHD segjast í nýrri ályktun fagna þeim breytingum sem nú sé verið að gera á þjónustu við fólk með ADHD. Ályktunin var samþykkt á aðalfundi samtak­anna, sem haldinn var þann 30. mars 2022. Í henni skora samtökin einnig á ráðherra og þingmenn að auka við fjár­framlög til greininga og þjónustu við fólk með ADHD.

„Nýtt ADHD teymi heilsu­gæslunnar fyrir fullorðna, Geðheilsu­miðstöð barna og fyrirheit um aukið fjármagn og bætta þjónustu á landsvísu eru löngu tímabærar aðgerðir af hálfu hins opinbera til að bregðast við því ófremdar­ástandi sem skapast hefur í málafloknum á liðnum árum,“ segir í ályktuninni.

Þar segir ennfremur að aukin þekking og meðvitund um ADHD hafi leitt af sér stóraukna eftir­spurn fyrir greiningar og þjónustu. Hvorki einka­aðilar né hið opinbera hafi náð að anna þeirri eftir­spurn. Afleiðingar þess hafa meðal annars verið að biðlistar hafa lengst ár frá ári og hafa aldrei verið lengri en þeir eru í dag.

Biðtími eftir greiningu orðinn allt að fjögur ár

„Vel á þriðja þúsund einstaklingar, börn og full­orðnir eru nú á biðlistum eftir greiningu og þjónustu vegna ADHD hjá hinu opinbera og eru þá ótalin þau sem bíða eftir þjónustu einka­aðila. Biðtíminn orðinn allt að fjögur ár!“ segir í ályktun ADHD samtak­anna.

Mannlíf fjallaði síðastliðið haust um langa biðlista eftir greiningum á ADHD. Þar var til að mynda einstaklingur á biðlista eftir greiningu sem hafði fengið bréf sem gaf til kynna ófremdar­ástand í mála­flokknum. Viðkomandi hafði á þeim tíma­punkti þegar beðið lengi eftir greiningu en bréfið gaf til kynna algjöra upplausn og óvissu um það hvort einstaklingurinn kæmi til með að komast í greiningar­ferli.

Ef marka má ályktun ADHD samtak­anna og tilkynningar frá Heilsu­gæslunni virðist nú horfa til betri vegar í mála­flokknum.

„Skaðlegar afleiðingar ógreinds og ómeðhöndlaðs ADHD verða okkur sífellt ljósari og augljós ávinningur samfélagsins og einstaklinganna sjálfra af bættri þjónustu hins opinbera við fólk með ADHD er himin­hrópandi. Afleiðingar aðgerðar­leysis liðinna ára kalla hinsvegar á stóraukið fjármagn næstu árin, til að vinna niður þá 3-4 ára biðlista sem nú blasa við.

Þannig og aðeins þannig getur nýtt skipulag greininga og þjónustu á vegum hins opinbera orðið sú mikla samfélags bót sem vonir standa til. Valið stendur í raun um óbreytt ástand með áralöngum biðlistum eða að Ísland verði til fyrir­myndar á heimsvísu þegar kemur að lífsgæðum fólks með ADHD.

Aðal­fundur ADHD samtak­anna skorar því á ráðherra og þingmenn að stórauka fjármagn til greininga og þjónustu við fólk með ADHD nú þegar og nýta þannig það gullna tækifæri sem nú býðst til að bæta lífsgæði fólks með ADHD samfara nýju skipulagi þjónustunnar á vegum hins opinbera. Tækifærið er núna!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá