Bjarni Valdimar Tryggvason geimfari er látinn, 76 ára að aldri.
Rúv
greindi frá því í kvöld að Chris Hadfield, kanadískur geimfari, vinur og samstarfsmaður Bjarna, hafi sagt frá þessu í dag á twitter síðu sinni.
Bjarni varð fyrsti og hingað til eini íslenski geimfarinn þegar hann varði tólf dögum í geimnum árið 1997.
Hann fæddist í Reykjavík í september árið 1945 en flutti átta ára gamall til Vancouver í Kanada með fjölskyldu sinni. Auk geimfarastarfsins var Bjarni verkfræðingur að mennt og sinnti rannsóknum og kennslu á sviði loftaflsfræði, straumfræði, stærðfræði og hönnun kerfa fyrir geimferðir. Þá vann hann sömuleiðis við flugvélaprófanir og flugþjálfun.































Athugasemdir