Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Þórdís minnist Guðrúnar föðursystur sinnar: „Blessuð sé minning Rúnu frænku“

Þórdís minnist Guðrúnar föðursystur sinnar: „Blessuð sé minning Rúnu frænku“
Guðrún Helga­dóttir. Mynd: Forlagið.

Guðrún Helga­dóttir, sjórn­mála­kona og einn ást­kær­asti barna­bóka­höf­undur Íslands lést 23 mars síð­ast­lið­inn. Rit­höf­und­ur­inn og ljóð­skáldið Þórdís Gísla­dóttir skrif­aði fal­lega minn­ing­ar­grein um Guðrúnu, sem var föð­ur­systir hennar:

Í dag mun ég fylgj­ast með útför Guðrúnar í streymi frá Kaup­manna­höfn. Ég skrif­aði minn­ing­ar­grein sem ég birti líka hér fyrir neðan:

Það er óraun­veru­legt að kveðja föður­syst­ur sem hef­ur alltaf verið ein­hvers kon­ar stór­veldi í til­ver­unni. Hún var skemmti­lega frænka mín sem kom með Sverri og krakk­ana í kaffi til Hafn­ar­fjarðar um helg­ar. Við í stór­fjöl­skyld­unni sát­um heima hjá ömmu og afa á Jóff­an­um og það var talað hátt og reykt og rif­ist yfir öllu mögu­legu. Hún var frænk­an sem bauð mér í gisti­heim­sókn þegar hún hafði skrifað bók og ég fékk að lesa hand­ritið og segja mína skoðun. Þegar ég gerði at­huga­semd við val á nafni á einni sögu­per­sónu breytti hún nafn­inu í laumi og lét hana heita eft­ir mér og þegar bók­in var kom­in út og ég sá það sagði hún hlæj­andi: „Þarna spældi ég þig“ og okk­ur fannst þetta mjög fyndið.

Sem barn og ung­ling­ur fylgd­ist ég með henni í fjöl­miðlum og dáð­ist að því að hún nennti að ríf­ast við leiðin­lega og for­pok­aða karla af heill­andi létt­leika. Ég skildi ekki margt sem fram fór á póli­tíska svið­inu en ég fylgd­ist með því hvernig frænka mín lét sig mik­il­væg mál­efni varða, hún barð­ist af festu fyr­ir flótta­menn, hún var frum­kvöð­ull að stofn­un Þýðing­ar­sjóðs og hún vann að efl­ingu sam­starfs meðal Norður­landa­þjóða.

Þegar ég var heima hjá Rúnu að vakta húsið meðan á stúd­entsút­skrift Helgu stóð þurfti ég ekki bara að taka á móti blóm­um og skeyt­um held­ur líka svara sím­töl­um. Meðal ann­ars þurfti ég að hlusta á ókunn­ug­an karl­mann sem fann sig, af ein­hverj­um ástæðum sem ég átt­aði mig eng­an veg­inn á hverj­ar voru, knú­inn til að hella sér yfir Guðrúnu Helga­dótt­ur. Hann taldi Guðrúnu aug­ljós­lega á hinum enda lín­unn­ar, kynnti sig og jós svo ein­hverj­um hroðal­eg­um skömm­um yfir mig. Ég hélt að þetta væri ein­hver kunn­ingi henn­ar en þegar ég nefndi nafn manns­ins og sagði Rúnu frá því að hann hefði hringt sagði hún: „Æ, elsk­an mín ég veit ekk­ert hver þetta er, það eru alltaf ein­hverj­ir menn að hringja í mig til að skamma mig og þvarga yfir ein­hverju.“

Þegar Rúna var kom­in á eft­ir­laun kíkti ég stund­um til henn­ar í há­deg­inu og var boðið upp á kaffi og frans­brauð með rúllupylsu. Svo spjöll­uðum við og horfðum kannski á ein­hverja kon­ung­lega at­höfn á er­lendri sjón­varps­rás eða beina út­send­ingu frá sænska þing­inu, því Rúna fylgd­ist með öllu af brenn­andi áhuga.

Það var eins og Guðrún Helga­dótt­ir hefði miklu meiri tíma en aðrir. Hún skrif­aði bók eft­ir bók og var sam­tím­is í meiri­hátt­ar ábyrgðar­stöðum og hún sinnti stórri fjöl­skyldu sem hélt svo áfram að stækka þegar tengda­börn, barna­börn og barna­barna­börn bætt­ust við. Hún sótti menn­ing­ar­við­burði, hitti vini sína og fékk alls kon­ar fólk í heim­sókn. Hún mátti alltaf vera að því að koma og lesa fyr­ir leik­skóla- og grunn­skóla­börn og svo hringdi hún reglu­lega til að spjalla og hrósa mér fyr­ir hitt og þetta og segja mér frá ein­hverj­um bók­um sem hún var ný­bú­in að lesa.

Ég veit að Guðrún­ar Helga­dótt­ur er víða saknað en hún gaf fjöl­skyldu sinni og vin­um óend­an­lega margt og hún áork­aði mörg­um og mik­il­væg­um verk­um sem aldrei gleym­ast og fyr­ir það eig­um við að vera þakk­lát. Blessuð sé minn­ing Rúnu frænku.Þór­dís Gísla­dótt­ir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ