Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Simbi var á kafi í undirheimunum en sneri við blaðinu: „Það er leið út úr þessu“

Þetta er brot úr við­tali sem birt­ist í nýjasta tölu­blaði Mannlífs.

Sig­mundur Geir Helgason, sem ávallt er kall­aður Simbi, var í harðri neyslu um ára­bil og lifði og hrærð­ist í und­ir­heimunum. Hann fram­fleytti sér með glæpum, lenti í fang­elsi og missti tengslin við það sem gæti talist eðli­legt líf. Simbi var djúpt sokk­inn í neyslu; fyrstu árin var það amfetamín, sem svo þró­að­ist út í blöndu af efnum og síð­asta árið var hann kom­inn út í mikla mor­fín­n­eyslu. Þegar tveir vinir hans lét­ust úr alkó­hól­isma kom augna­blikið sem hann ákvað að horfast í augu við sjálfan sig og snúa við blað­inu í eitt skipti fyrir öll. Honum bauðst að lengja með­ferð­ar­tíma á Hlað­gerð­ar­koti í stað­inn fyrir fanga­vist, sem hann þáði feg­inn og nýtti sér alla þá aðstoð sem honum bauðst.

Hjálpar öðrum að verða edrú

Simbi segir ekki ýkja mörg dæmi um menn sem hafi verið djúpt sokknir í und­ir­heim­ana og náð að koma sér út úr þeim og algjör­lega snúið við blað­inu.

„Þeir eru til, en við erum ekki margir. Og það er gaman að segja að við erum fyr­ir­myndir og þurfum að standa okkur, svo aðrir geti horft á okkur og hugsað: „Það er leið út úr þessu.“ Það er leið. Ég veit að ég er fyr­ir­mynd af því að mér er sagt það. Ég var með svona fyr­ir­mynd líka, til þess að horfa á og til þess að kom­ast áfram. Þannig að þetta er hægt.“

Þarna var Simbi á hvað verstum stað í neysl­unni. Það var um þetta leyti sem hann hringdi á Hlað­gerð­ar­kot.

Simbi hefur lagt sitt af mörkum til þess að hjálpa öðrum sem eru á slæmum stað, eins og hann var sjálfur.

„Já, ég hef verið að hjálpa strákum. Í AA sam­tök­unum, leið­beina þeim við það hvernig á að verða edrú og hvað maður á ekki að gera. Svo hafa líka margir sem eru edrú komið og sagt sög­una sína og segj­ast hafa séð mig á fundi og hugsað: „Ef hann nær þessu, þá ætla ég að ná þessu.“ Þeir eru edrú í dag. Það er gaman að sjá þetta líka. Án þess að gera sér grein fyrir því, þá er maður að hjálpa. Bara með því að vera edrú. Þannig að þetta snýst svo­lítið mikið um að hjálpa hver öðrum.

Það er gaman að vera til taks líka. Þessi sjúk­dómur er líka í fjöl­skyld­unni minni og ég reyni að hjálpa til þar. Þar er einnig leitað til mín. Við stöndum saman sem glímum við þennan sjúk­dóm, þetta snýst um það.“

Í dag er Simbi sem nýr maður og ber það sann­ar­lega með sér.

Simbi seg­ist afar hepp­inn með fjöl­skyld­una sína.

„Ég á rosa­lega góða fjöl­skyldu. Amma og afi misstu aldrei trúna á mér. Ég var alltaf Simbi, litli strák­ur­inn þeirra. Það var rosa­lega gott, þegar maður var á versta staðnum þarna, að hugsa að það var fólk sem missti ekki trúna á manni. Það eru rosa­góð tengsl í fjöl­skyld­unni minni. Ég var alveg búinn að missa tengslin við bræður mína í svo­lít­inn tíma, en við erum aftur orðnir alveg rosa­lega nánir. Sér­stak­lega yngri bróðir minn og ég. Eins og við vorum á sínum tíma.

Stóri bróðir minn myndi gera allt fyrir mig. Hann hefur líka staðið með mér. Fyrstu mán­uð­ina þegar ég var edrú var ég á áfanga­heim­ili. Þá þurfti ég bara að hringja í hann ef mig vant­aði aðstoð. Ég vissi ekki í hvern ég ætti að hringja. Hann aðstoð­aði mig strax. Það voru allir til­búnir að hjálpa um leið og ég var búinn að sanna að ég ætl­aði að verða edrú.

Það þurfti að taka góðan tíma í með­ferð, koma út og halda áfram; þá fékk ég aðstoð. Það er ómet­an­legt. Ég er kannski einn af þeim heppnu. Ég myndi halda það.

Svo er það konan mín. Við kynnt­umst þegar ég var búinn að vera edrú í næstum því tvö ár og ég hefði ekki getað þetta allt saman án hennar.

Ég held líka að þetta sé smá heppni – hvernig líf mitt er búið að blómstra á góðan hátt og ég hef ekki farið í hina átt­ina aftur. Mér finnst ég ekki alveg geta sett kreditið á mig, þótt ég hafi unnið vinn­una. Og sé að vinna vinn­una. Þá tel ég guð hafa sent ákveðið fólk til mín í mínar aðstæðum og hjálpað mér að leysa þær. Af hverju ekki? Kannski bara guð – hann er nátt­úr­lega að leik­stýra sýn­ing­unni. Það er svo­lítið þannig.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð