Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Finnbogi keypti sér sjoppu: „Ég vissi um hverja einustu kerlingu sem var að skilja í Fossvoginum“

Finnbogi keypti sér sjoppu: „Ég vissi um hverja einustu kerlingu sem var að skilja í Fossvoginum“
Finnbogi Þor­láks­son í fjall­göngu.

Finnbogi Þor­láks­son, fyrr­ver­andi tog­ar­skip­stjóri, býr í dag á La Marina á Spáni. Hann og kona hans, Katrín Eiðs­dóttir hafa búiið þar í nokkur ár og eru nýbúin að kaupa sér fal­legt hús. Finnbogi ræddi málin í við­tali við Sjóarann.

„Það var nú meiri hel­vítis vit­leysan,“ segir sjó­mað­ur­inn og afla­skip­stjór­inn fyrr­ver­andi Finnbogi Þor­láks­son um það þegar hann var á Björg­úlfi EA og þeir lentu í háska í hafís við Horn. „Ísinn var á svo mik­illi ferð að það lok­að­ist upp í fjöru á eftir okkur. Við skriðum með fjör­unni fram og til baka.“

Var hann smeykur?

„Nei, ég hef aldrei verið smeykur til sjós.

Við vorum bara að reyna að kom­ast til Dalvíkur fyrir jól. Við snerum við á Horn­vík­inni. Fisk­ur­inn varð að kom­ast norður. Við lönd­uðum í Reykja­vík og svo var trukkað norður. Síðan sigldum við austur fyrir land til að kom­ast á Dalvík.“

Finnbogi var stýri­maður í þessum túr og segir að þeir hafi verið með eitt­hvað gam­alt rad­ar­drasl sem hafi nú sést lítið í. „Óli Bekkur var með okkur. Ari var með Óla Bekk. Svo þegar birti og karl­arnir vökn­uðu þá klifraði Ari upp í mastur. Hann komst að þeirri nið­ur­stöðu að það væri ekk­ert vit í þessu. Það bros­lega við þetta allt saman er að það var skíta­bræla fyrir austan; að berj­ast þara norður með Aust­fjörð­unum. Við vorum ekki komnir til Dalvíkur og þá var ísinn far­inn. Það var búið að vinna fisk­inn.“

Þannig fór um sjó­ferð þá.

Hvolpalæti

Finnbogi er Reyk­vík­ingur og voru for­eldrar hans Magnea Ólöf Finn­boga­dóttir og Þorákur Run­ólfs­son. „Þau eru bæði dáin. Ágætis fólk.“

Þú varst bölv­aður vill­ingur.

„Nei, nei.“

Sem ungur maður.

„Nei, ég gengst ekki við því.“

Þú varst einn af þeim sem fóru í Núps­skóla.

„Það var af því að ég var svo dug­legur að læra.“

Hann segir að eina ves­enið á sér þar hafi verið að hann – og fleiri – voru að skríða yfir á kvenna­vist.

„Þegar ég fór á Núp var Bjarni Pálsson skóla­stjóri.“

Gat Finnbogi laum­ast fram hjá honum til að kom­ast á kvenna­vist­ina?

„Það var ýmis­legt reynt.“

Og tókst stundum?

„Alltaf.“

Aldrei grip­inn?

„Jú, einu sinni.

Þetta var ekk­ert kyn­líf. Þetta var bara svona hvolpa.

Þá sváfum við yfir á kvenna­vist. Svo var ræs á morgn­ana. Við sváfum yfir okkur. Þá vorum við ræstir uppi í hjá ein­hverjum. Þetta var ekk­ert kyn­líf. Þetta var bara svona hvolpa.“

Hvolpa­læti.

„Já.“

Hvað með refs­ing­una?

„Ég fór í viku­frí.“

Þú varst rek­inn í viku?

„Já. Ég þótti það bara frí. Ég fór suður. Við fórum þrír.“

Þetta hefur verið kær­komið. Hjásofelsið sem end­aði með skemmti­legu fríi í Reykja­vík.

„Mér er minn­is­stætt þar sem ég sofn­aði hjá ein­hverri stúlku; það skiptir ekki máli hver hún er. Það skeði nú ekki neitt. Bjarni Pálsson sagði við mig: „Gastu ekki skriðið upp í koju hjá ein­hverri annarri stúlku heldur en þess­ari? Af því að þetta er stúlka sem ég átti sér­stak­lega að passa upp á í skól­anum. Ég er að bregð­ast traustinu með að þú ert kom­inn upp í til hennar.“

Í Stýrimannaskólann

Finnbogi byrj­aði ungur á neta­bátum fyrir sunnan; fór á sjó­inn fljót­lega eftir skóla­vist­ina á Núpi. „Það voru gerðir út tog­arar hjá Bæj­ar­út­gerð­inni. Þá fóru ungir menn suður í Grinda­vík. Keflavík. Það voru tugir eða hund­ruð ver­tíð­ar­báta. En aftur fyrir norðan fóru strákar mest á tog­ar­ana. Ég byrj­aði á þessum ver­tíð­ar­bátum og það er eig­in­lega mesti þræl­dómur sem ég hef verið í til sjós.“

Á net­unum.

„Á netum. Það var strand­veiði­karl að tala um 160 net. Ég var að reikna út í hug­anum; ég held við höfum verið með 400 net. 20 trossur. Og 20 net í tross­unni. Þetta þýddi það að það var ekki mikil pása. Það var ekki meiri veiði en það að það fór bunki af netum í sjó til að ná ein­hverju en nú þurfa þeir þess ekki. Það þarf bara að leggja ein­hverja net­stubba hér og þar og það er fullt af fiski. Það var ekki þannig þá.“

Kunni Finnbogi strax vel við þetta?

„Já, ein­hvern veg­inn fest­ist maður í þessu.“

Jú, sjór­inn lokkar og laðar.

Svo fór hún að fitna eitt­hvað óeðli­lega mikið.

„Ég fór í ver­búð hjá Dóra Páls í Hnífsdal. Þar kynnt­ist ég kon­unni minni. Hún var að vinna hjá Mugg í rækj­unni. Þá vorum við í sömu ver­búð. Svo fór hún að fitna eitt­hvað óeðli­lega mikið.“

Þykkna undir belti eins og kallað er.

„Já.“

Lítill drengur kom svo í heim­inn. Hann er sjó­maður í dag. Heitir Jóhann.

„Við vorum búin að koma okkur upp íbúð. Við vorum komin með pínu búslóð. Þetta er minn­is­stætt. Svo ákváðum við að fara norður á Akureyri og Hörður á Guð­bjarti var að fara í slipp á Akureyri.“

Af hverju fluttuð þið til Akur­eyrar?

„Kominn með konu og barn.“

Af hverju til Akur­eyrar?

„Hún vildi vera þar.“

Er hún þaðan?

„Já, hún er fædd og upp­alin þar. Og ég fór bara á sjó­inn.“

Það var góður skóli og mik­ill lær­dómur að vera með þessum körlum.

Finnbogi fór á togar­ann Kaldbak frá Akureyri og seg­ist hafa fengið fín­asta upp­eldi hjá Þor­steini Vil­helms­syni skip­stjóra. „Ég var bara báta­karl. Ég var fljótur að læra að bæta og svona. Ég byrj­aði sem háseti hjá Steina Villa á Kaldbak.“ Hann nefnir líka Svein Hjálm­ars­son og Óla Hermanns. „Það var góður skóli að vera með Steina Villa. Það var sótt stíft. Það var ekk­ert alltaf tekið inn fyrir. Það var góður skóli og mik­ill lær­dómur að vera með þessum körlum.“

Finnbogi segir að það hafi verið önd­veg­is­á­höfn á Kaldbak. „Og þeir sem voru uppi í brú, Steini og Svenni, þurftu eig­in­lega ekki að garga neitt. Þetta voru strákar sem voru hund­vanir öllu og það þurfti ekk­ert að segja þeim til. Það þurfti ekk­ert að garga á þá.“

Gekk alltaf vel með Kaldbak? Var þetta áfalla­laust?

„Já. Aldrei nein áföll eða nokkur skap­aður hlutur.“

Var ekki bil á milli yfir­manna og und­ir­manna eins og sums staðar?

„Jú, það voru tvö borð í borð­salnum. Yfir­manna­borð og und­ir­manna­borð. Það var nú ekk­ert heil­agt. Þetta var að deyja út. Það var sami matur á borðum. Þetta var ein­hver gömul hefð sem fjar­aði út. Hún var byrjuð að fjara út þarna.“

Finnbogi var á dekk­inu á Kaldbak og fór í Stýri­manna­skól­ann þegar hann vann þar. Steini og Sveinn kvöttu hann til þess.

„Ég fór suður og bjó fyrir sunnan í þrjú ár. Það fjölg­aði fljótt í hreiðr­inu. Það voru tvö börn þegar við fórum suður og end­aði með fjórum.“

Þið end­uðum á fjórum börnum og þú allaf á sjónum.

„Það var 30 tíma stopp og 30 tíma hafn­ar­frí.“

Svo útskrif­að­ist Finnbogi úr Stýri­manna­skól­anum. Þá leysti hann af til að byrja með sem 2. stýri­maður á Kaldbak. „Svo fór ég austur á Þórshöfn með Sigga Friðriks á Stak­felli. Sigurði Frið­riks­syni. Ég lærði mikið af honum. Hann var góður karl.“ Þar var Finnbogi 1. stýri­maður.

„Þaðan fór ég yfir á Björgúlf og þar var ég í 23 ár.“

Niðurbrotinn ungur maður

Björg­úlfur.

Finnbogi byrj­aði sem 2. stýri­maður og varð svo 1. stýri­maður á móti Sigurði Har­alds­syni.

„Það var gott að vera með honum. Sér­stakur karl en góður karl. Við vorum saman í 18 ár held ég. Einhvern tím­ann hlógum við að því í ein­hverju fylliríi að við værum í meira sam­bandi við hvorn annan heldur en kon­urnar okkar. Svo hætti Siggi og þá tók ég við.“

Það var kol­vi­laust veður allan tím­ann.

Finnbogi segir að sér hafi liðið illa í fyrsta túrnum sem hann fór sem skip­stjóri.

„Hann var þannig þessi túr að ég vil helst ekki rifja hann upp. Þetta var jóm­frú­ar­túr­inn minn sem skip­stjóri. Þetta var fyrir jól. Það var hefð að skip­stjór­arnir færu í frí fyrir jólin og stýri­menn­irnir sátu í súp­unni með að fara með skipið. Það var kol­vi­laust veður allan tím­ann. Það var hafís og það var alveg sama hvað hann gerði.“ Þeir misstu troll. „Sleit það í ein­hverjum klaufa­skap. Það var inni í ísnum þannig að það var hel­vítis föndur að ná því upp en það hafð­ist. Svo kom ég til Dalvíkur nið­ur­brot­inn ungur maður.“

Finnbogi skip­stjóri á blóma­tím­anum.

Hvað var mikið í lest­inni?

„Ég held það hafi verið 36 tonn. Þannig að það var ekki hátt á manni risið. Ég fór á skrif­stof­una til Valdi­mars Braga­sonar sem var útgerð­ar­stjóri, alveg önd­veg­is­maður, og sagði að ég héldi að þetta gengi ekki. „Finnbogi minn, hafði ekki áhyggjur af þessu; þinn fer­ill getur ekki farið nema upp á við.“ Við erum ennþá vinir. Við tölum ennþá saman.“

Næsti túr gekk þó upp.

„Já, það gekk þokka­lega. Á þessum tíma var ekki veiði eins og núna síð­ustu ár. Það er alveg sama hvar er liggur við. Það þurfti oft að berj­ast. Það þótti hel­víti gott að vera með 80-100 tonn í viku til 10 daga túr.“

Svo tók Finnbogi við skip­inu. Varð karl­inn í brúnni. Var skip­stjóri í fimm til sex ár. Hann segir að hann hafi alltaf hlakkað til að fara á sjó­inn.“

Svo vildi hann losna við mig

Svo fór Finnbogi að vinna hjá Samherja þegar fyr­ir­tækið á Dalvík rann inn í það fyr­ir­tæki.  Hvernig leist honum á það?

„Ég hafði ekk­ert með það að segja,“ segir hann en hann vann hjá fyr­ir­tæk­inu í nokkur ár.

„Á end­anum rak Mái mig. Það segir sína sögu.

Hann er bara hörku djöf­ull dug­legur.

Var þetta ást­ar­hat­urs­sam­band á milli hans og Þor­steins Más?

„Þor­steinn Már er bara eins og hann er. Hann er bara hörku djöf­ull dug­legur og hann er búinn að búa til risa­fyr­ir­tæki en mér er alveg sama. Það má ekki taka það af honum; hann er ofvirkur og dug­legur. Búinn að búa til þetta apparat. En það er eitt sem hann vantar; að vera pínu skemmti­legur. Það er allt í lagi að vera pínu skemmti­legur þó þú sért dug­legur. Ég sá um Björgúlf og það var mín deild. Við fengum okkur kaffi þegar við hitt­umst. Það voru engir árekstrar.“

Ekki strax.

„Það var ekk­ert slæmt að vinna hjá þeim. Það voru kröfur sem er eðli­legt. Ég er ekk­ert að kvarta yfir því. Svo vildi hann losna við mig og los­aði sig við mig.“

Af hverju vildi hann losna við þig?

„Þú verður að spyrja hann að því.“

Kom hann og til­kynnti þér að þú yrðir að hætta?

„Ég væri alltaf fullur um borð sem er nátt­úr­lega rangt. Ég ætl­aði að hætta um ára­mótin. Mig lang­aði það. Þetta var um haustið. Ég fékk fínan starfs­loka­samn­ing. Það eru 10 til 12 ár síðan.“

Það þarf ekk­ert skip­stjóra á skipum í dag.

Það hefur ekk­ert hvarflað að þér að fara aftur á sjó?

„Þetta var orðið leið­in­legt. Þetta var orðin svo mikil Excel-vinna. Áður fyrr fór maður bara út á sjó. Nú er þetta orðið svo mikið Excel. Það þarf ekk­ert skip­stjóra á skipum í dag.“

Ég var eins og sálfræðingur

Hann sem hafði verið svo lengi á sjónum söðl­aði um eftir að hafa „leikið sér“ í ein­hverja mán­uði. „Svo leidd­ist mér það og asnað­ist til að kaupa mér sjoppu. Það var dálítið fyndið að sitja inni í sjoppu. Og ég hafði aldrei komið nálægt neinu svona. Ég vissi ekk­ert hvað ég átti að gera.“

Það var sjoppa við Bústað­veg. Söluturn.

Ég vissi um hverja einstu kerl­ingu sem var að skilja í Foss­vog­inum.

„Hún heitir Póló. Samanber Prince Poli. Ég skírði hana það. Ég kunni ekki neitt. Ég kunni ekki á pen­inga­kassa eða neitt. Ég sat þarna fyrstu þrjá mán­uð­una og klór­aði mér í hausnum; hvernig í and­skot­anum átti ég að moka mig út úr þessu án þess að tapa fé? Svo fór þetta að rúlla og end­aði með því að ég hafði það betra þarna heldur en skip­stjóri á tog­ara. Það er bara þannig. Þetta var allt annar starfs­vett­vangur. Milljón manns að koma og ég vissi um hverja einstu kerl­ingu sem var að skilja í Foss­vog­inum. Ég var eins og sál­fræð­ingur. Þetta var mjög gaman. Ég kynnt­ist hell­ing af fólki.“

Finnbogi og Katrín una sér vel á Spáni.

Finnbogi leigði rekst­ur­inn fyrst og síðar keypti hann hús­næðið sem sölu­turn­inn er í.

„Það var ríf­andi gangur í þessu.“

Svo nennti hann þessu ekki lengur.

Konan hans í dag, Kata, kom inn í mynd­ina. Henni kynnt­ist hann á meðan hann rak sölu­tö­urn­inn.

„Kata bjó í Borg­ar­firði. Ég fór upp í Kaldadal. Það var erf­iður dagur. Ég fór upp á Okið,“ segir Finnbogi sem var far­inn að stunda fjall­göngur. „Ég var alveg gjör­sam­lega búinn. Fór í Húsafell og fékk mér að éta. Ég datt í það og gisti í Húsafeli og hringdi í dóttur mína sem sá um sjopp­una og sagði að hún yrði að vinna líka fyrir mig dag­inn eftir. Þá fór ég inn á Kleppsár­reyki og þá var Kata að vinna þar.“

Þannig byrj­aði það sem end­aði í hjóna­bandi.

„Það gengur vel hjá okkur. Svo fékk ég hana í bæinn til að vinna í sjopp­unni og þá gisti hún heima hjá mér í Hafn­ar­firði. Það var gesta­her­bergi. Það er ágrein­ingur í hjóna­band­inu hvort ég hafi skriðið inn í gesta­her­bergið eða öfugt. Við erum ennþá ekki sam­mála.“

Ég er bölvuð kulda­skræfa.

Svo heill­aði suð­rænt land og í dag búa hjónin á Spáni.

„Ég er bölvuð kulda­skræfa. Ég segi að ég hafi farið í Stýri­manna­skól­ann til að kom­ast upp í brú í hit­ann úr hel­vítis kulda­volk­inu. En okkur líður vel hérna og erum búin að vera hérna í sex ár.“

Er fram­tíðin á Spáni?

„Það er gott að bíða eftir Guði hér.“

Podcastið með við­tal­inu við Finnboga er að finna hér. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð