Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Séra Davíð Þór blés mótmælendum eldmóð í brjóst: „Fjármálakerfið okkar er á valdi siðblindingja“

Séra Davíð Þór blés mótmælendum eldmóð í brjóst: „Fjármálakerfið okkar er á valdi siðblindingja“
Davíð Þór Jónsson

Fjölda­fundur var hald­inn á Aust­ur­velli í gær þar sem söl­unni á Íslands­banka var mót­mælt og afsagnar fjár­mála­ráð­herra var kraf­ist.

Slagorð mót­mæl­anna var „Bjarna burt“ og í kringum fjögur til fimm hund­ruð manns söfn­uð­ust saman á Aust­ur­velli þegar mest var, sam­kvæmt lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Ræðumenn voru þau séra Davíð Þór Jónsson, Halldóra Mogensen þing­maður Pírata, Bergljót Þor­steins­dóttir, Sandra Guð­munds­dóttir og Magnús Magn­ús­son.

Þekktir leikmenn úr hruninu

Rík­is­stjórnin hefur sætt harðri gagn­rýni und­an­farið vegna söl­unnar á hluti rík­iss­ins í Íslands­banka. Gagnrýni og reiði sam­fé­lags­ins í garð Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála­ráð­herra, hefur verið hvað hávær­ust. Kröfur um afsögn hans úr emb­ætti hafa heyrst úr hinum ýmsu áttum.

Gagn­rýnin bein­ist aðal­lega að því hvernig staðið var að söl­unni. Þar fengu valdir fjár­festar, sem þó voru ótal margir, boð um að kaupa hlut í bank­anum. Ekki var aðeins um stóra, svo­kall­aða kjöl­fjár­festa að ræða, eins og hafði verið talað um í upp­hafi, heldur var ótal minni fjár­festum boðið að taka þátt. Allir fengu fjár­fest­arnir að kaupa sig inn í bank­ann á afslátt­ar­kjörum. Nú hafa fjöl­margir þeirra þegar selt sinn hlut, fyrir rétt verð, og þar með grætt háar fjár­hæðir á brask­inu.

Atburð­irnir hafa minnt lands­menn óþægi­lega á efna­hags­hrunið. Á lista yfir fjár­fest­ana mátti sjá nöfn stórra leik­manna frá þeim tíma. Manna sem sagðir eru hafa átt stóran þátt í að svo fór sem fór, fyrir tæpum fjórtán árum síðan.

Við­staddir á Aust­ur­velli í gær létu vel í sér heyra og var nokkuð um áslátt; annað dæmi sem minnir á tím­ann í kringum efna­hags­hrunið. Það var ræða séra Davíðs Þórs sem fór hvað hæst á fund­inum og hefur hún dreifst eins og eldur í sinu um sam­fé­lags­miðla.

Hér má lesa brot úr ræðu séra Davíðs Þórs:

Það er gaman að hafa rétt fyrir sér. Það er gaman þegar tím­inn leiðir í ljós að eitt­hvað sem maður sagði og lét hafa eftir sér var nákvæm­lega sann­leik­ur­inn. Í jan­úar í fyrra setti ég eft­ir­far­andi færslu á Facebook:

„Vegna þess að ég heyrði ráð­herra nýlega tala um nauð­syn þess að setja eigur rík­is­ins á markað, finnst mér nauð­syn­legt að afrugla aðeins hvernig sagt er frá þessu. Hér eru tvö orð sem vert er að gefa gaum að merk­ing­unni í og hvernig þau eru notuð. Hið fyrra er mark­aður. Hverjir eru mark­að­ur­inn? Ég er ekki á þessum mark­aði og fólkið sem kemur hingað,“ ég var í vinn­unni þegar ég skrif­aði þetta, „til að biðja um hjálp er það ekki heldur. Öryrkjar eru ekki á þessum mark­aði. Markaður er nefni­lega í raun fínt orð yfir það sem kallað er fjár­magns­eig­endur, sem aftur er aðeins skrúð­yrði yfir þá sem eiga pen­ing­ana, það er auð­menn. Hitt orðið er ríkið. Hverjir eiga ríkið? Það er í raun almenn­ingur í þessu landi. Þjóðin. Höfum þess vegna alveg á hreinu að þegar talað er um að setja eigur rík­is­ins á markað er í raun verið að tala um að koma eigum þjóð­ar­innar í hendur auð­manna.“

Það er skemmst frá því að segja að komið er á dag­inn að þarna er ekk­ert ofsagt. Það er gaman að hafa rétt fyrir sér en það skyggir reyndar svo­lítið á gleð­ina í þetta sinn, að það sem ég hafði rétt fyrir mér um er að fjár­mála­kerfið okkar er á valdi sið­blind­ingja.

Hér fyrir neðan má sjá eldræðu Davíðs Þórs. Hún byrjar á mín­útu 43:40:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð