Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Maður skotinn með haglabyssu – Sá myrti átti að hafa misnotað morðingjann kynferðislega

Maður skotinn með haglabyssu – Sá myrti átti að hafa misnotað morðingjann kynferðislega

Milli jóla og nýárs árið 1996 skaut ungur Hafn­firð­ingur Hlöðver til bana við Krýsu­vík­ur­veg. Þeir þekkt­ust en höfðu ekki tal­ast við lengi. Atvikið var upp­gjör vegna mis­notk­unar sem Hlöðver átti að hafa beitt hinn unga mann á árum áður, meðal ann­ars við Krýsuvík.

Ungi mað­ur­inn var einn til frá­sagnar um þessa örlaga­ríku nótt. Það var hlýtt en slag­veð­urs­rign­ing þegar hann gekk út í bíl til Hlöðvers með hlaðna byss­una og sett­ist í far­þega­sætið.

Maðurinn skaut Hlöðver með hagla­byssu í aft­an­verð­ann upp­hand­legg hægri handar og tættu höglin í sundur margar æðar svo mikið blæddi. Í kjöl­farið fór Hlöðver í lost og blæddi út. Hlöðver fannst lát­inn við Krýsu­vík­ur­veg, en Hlöðver var einnig mjög hjarta­veikur.

Gerði lítið úr misnotkuninni

Ungi mað­ur­inn var hand­tek­inn í kjöl­far morðs­ins og ját­aði hann á sig verkn­að­inn. Samkvæmt mann­inum hafði hann sjálfur hringt í Hlöðver kvöldið áður og beðið hann að sækja sig. Maðurinn var tölu­vert ölv­aður og tók hlaðna hagla­byssu með sér í bíl­inn. Hann bað Hlöðver að keyra út á Krísu­vík­ur­veg, en þar ákvað hann að bjóða Hlöðveri birg­inn. Hann fór að rifja upp sárar minn­ingar af kyn­ferð­is­of­beldi, sem hann sagði að Hlöðver hafði framið gegn sér, tíu árum áður.

Maðurinn sagði Hlöðver hafa gert lítið úr mis­notk­un­inni og þá hafi hann mikið reiðst. Báðir yfir­gáfu bíl­inn meðan á sam­ræð­unum stóð og end­aði með því að mað­ur­inn skaut að Hlöðveri, til þess að ógna honum, að eigin sögn.

Hlöðver hafi þá hlaupið á brott, en mað­ur­inn tók bíl hans og keyrði hann inn í Hafn­ar­fjörð þar sem hann skildi hann eftir. Maðurinn sagði við yfir­heyrslur og fyrir dómi að hann hafði ekki ætlað sér að drepa Hlöðver heldur ein­ungis hræða hann. Hins vegar hafi Hlöðver snúið sér við um leið og hann skaut og höglin þá lent í upp­hand­legg hans.

Tældu drengi í tuttugu ár

Maðurinn var ákærður fyrir mann­drápið á Hlöðveri og í júní, sama ár. Réttað var yfir honum í Hér­aðs­dómi Reykja­ness. Þann 4. júní var atvikið svið­sett við Krýsu­vík­ur­af­leggjar­ann að við­stöddum dóm­urum, lög­mönnum og ákærða. Í rétt­ar­höld­unum stigu einnig fram tvö vitni sem sögð­ust hafa orðið vitni að mis­notkun Hlöðvers á honum. Það hefði átt sér stað í Krýsu­vík­ur­hrauni, á heim­ili Hlöðvers við Álfa­skeið 4 og við Hafn­ar­fjarð­ar­höfn þar sem hann starf­aði sem vakt­maður. Þeir tveir menn sem báru vitni sögð­ust báðir hafa verið mis­not­aðir af bræðr­unum Hlöðveri og Árna og höfðu haldið því leyndu líkt og ungi mað­ur­inn. Einnig vissu þeir um fleiri sem höfðu orðið fyrir barð­inu á bræðr­unum.

Lengi hafði verið vitað að menn­irnir væru að eiga við unga drengi í Hafn­ar­firði. For­eldrar vör­uðu börn sín við þeim og lög­reglan var á varð­bergi og bægði ungum drengjum frá höfn­inni. Engin kæra hafði birst fyrr en árið 1992 þegar móðir and­lega fatl­aðs drengs tók af skarið. Í frétt DV frá 13. nóv­em­ber það ár segir:

„Ég veit að þessir bræður eru búnir að stunda þetta í fjölda­mörg ár. Hversu margir drengir hafa orðið fyrir barð­inu á þeim veit ég ekki en ég vil vara for­eldra við þeim. Svo virð­ist sem bræð­urnir hafi stundað þá iðju að lokka drengi bæði um borð í skip í Hafn­ar­fjarð­ar­höfn og á heim­ili sitt í gamla bænum í Hafn­ar­firði. Þar hafa þeir sýnt ungum drengjum klám­mynd­bönd, boðið upp á sæl­gæti, áfengi og tóbak og borgað fyrir sam­ræði við þá.“

Sleppt úr haldi

Hlöðver var með síma­núm­era­birti þar sem sást að hringt hafði verið í hann af heim­ili unga manns­ins um nótt­ina. Heima hjá Hlöðveri fannst blað þar sem á stóð nafn unga manns­ins og síma­númer. Leit hófst að bif­reið­inni sem fannst loks síð­degis bak við fisk­verk­un­ar­hús við Herj­ólfs­götu í Hafn­ar­firði.

Rann­sóknin beind­ist strax að unga mann­inum og var hann hand­tek­inn sam­dæg­urs. Hann vís­aði lög­reglu á Rem­ington-hagla­byss­una en neit­aði að hafa fram­kvæmt verkn­að­inn. Þá fannst önnur hagla­byssa, rúss­nesk að gerð, við hús­leit hjá honum og nokkur hagla­skot. Dómari féllst hins vegar ekki á gæslu­varð­hald og var mann­inum því sleppt. En lög­reglan hafði hann þó enn grun­aðan og rann­sókn máls­ins mið­að­ist við það.

Lög­reglan hafði ýmis gögn til rann­sóknar. Í Lödunni fannst sígar­ettu­stubbur sem ein­hver hafði drepið í á mæla­borð­inu og var hann sendur út til Noregs til DNA-rann­sóknar. Nið­ur­stöð­urnar sýndu að 99 pró­sent líkur væru á því að munn­vatnið í stubbnum væri úr unga mann­inum. Á líki Hlöðvers fannst for­hlað, innan úr hagla­byssu­skoti, sem rann­sókn sýndi að pass­aði við Rem­ington-byss­una. Þegar leyfi fékkst fyrir að skoða sím­hring­ingar sást að í níu skipti hafði verið hringt úr síma unga manns­ins til Hlöðvers þessa nótt.

Maðurinn var dæmdur til 10 ára fang­els­is­vistar, en tekið var til­lit til for­tíðar hans og Hlöðvers og þess að mað­ur­inn var ekki í and­legu jafn­vægi þegar hann hleypti af hagla­byss­unni. Hlöðver hafði eins og fyrr segi verið ásak­aður og kærður fyrir að mis­nota unga drengi en aldrei hafði náðst að sanna neitt alvar­legt á hann.

Heim­ildir:

Kristinn H. Guðnason. 20. maí 2018. Sakamál: Drap níð­ing sinn í Hafn­ar­firði. DV.

Friðrik Þór Guð­munds­son og Haraldur Jónsson. 19. nóv­em­ber. 1992. Árang­urs­laust reynt að hanka þá um ára­bil. Pressan. 46. tölu­blað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð