Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Hlaut þriggja ára dóm fyrir að misnota blaðburðardreng: „Eruð þið ekki hræddir um líf ykkar?“

Hlaut þriggja ára dóm fyrir að misnota blaðburðardreng: „Eruð þið ekki hræddir um líf ykkar?“
Stein­grímur felur sig í hettu sinni

Einn hatað­asti maður Íslands­sög­unnar, Stein­grímur Njálsson var alræmdur barn­a­níð­ingur sem hlaut sjö dóma fyrir barn­a­níð en talið er að fórn­ar­lömb hans hafi verið að minnsta kosti 16 tals­ins. Þá hlaut hann tugi dóma vegna lík­ams­árása, fjársvika, þjófnað og fleira. Upp úr 2004 átti hann ekki í nein hús að vernda og bár­ust reglu­lega fregnir af því að hann væri sestur að í hinum og þessum bæj­ar­fé­lögum en hann var hvar­vetna hrak­inn á brott. Margoft lenti hann í bar­smíðum en árið 2013 lést hann á Land­spít­al­anum úr krabba­meini, 71 árs að aldri. Aðeins þrjár mann­eskjur voru við jarð­ar­för Stein­gríms, tveir prestar og eig­in­kona gam­als vinar hans.

Fræg ljós­mynd af Stein­grími sem DV birt undir orð­unum: Svona lítur hann út.

Hér fyrir neðan má sjá frétt af einum af dómum Stein­gríms en þá hafði hann lokkað ungan blað­burð­ar­dreng í íbúð sína og mis­notað hann hrotta­lega í marga klukku­tíma. Hlaut hann fyrir það þriggja ára fang­elsi.

Kyn­ferð­is­glæpur í Sakadómi Reykja­víkur:

Stein­grímur Njálsson dæmdur í þriggja ára fang­elsi

Kyn­ferð­is­af­brota­mað­ur­inn Stein­grímur Njálsson var í gær­morgun dæmdur í þriggja ára fang­elsi og gert að greiða fóm­ar­lambi sínu, ungum blað­burð­ar­dreng er hann sví­virti kyn­ferð­is­lega, 300 þús­und króna skaða­bætur. Dóminn kvað upp Pétur Guð­geirs­son saka­dóm­ari.
Upphaf máls­ins er það að fyrir tæpu ári lokk­aði Stein­grímur Njálsson blað­burð­ar­dreng­inn inn í íbúð sína í nágrenni Land­spít­al­ans, réð­ist þar á hann og kom fram óeðli sínu. Dreng­ur­inn komst heim til for­eldra sinna við illan leik og kærðu þeir Stein­grím
umsvifa­laust.
Stein­grímur Njálsson á að baki langan afbrota­feril og hefur hlotið 23
refsi­dóma fyrir kyn­ferð­is­af­brot, lík­ams­árásir, þjófn­aði, fjár­svik og fleira.
Er sam­an­lögð refsi­vist hans orðin tæp tíu ár.

Í dómnum er kveð­inn var upp í Sakadómi í gær­morgun er afbrota­saga
Stein­gríms Njáls­sonar rakin að hluta. Þar segir meðal ann­ars:
„Með dómi saka­dóms Gull­bringuog Kjós­ar­sýslu 11. nóv­em­ber 1963 var ákærði m.a. sak­felldur fyrir að fleka 11 ára dreng upp í bif­reið, að girða niður um hann og að slá dreng­inn í and­litið þegar hann veitti mót­spymu… Með sama dómi var ákærð­ur­sak­felldur fyrir að fleka annan 11 ára dreng upp í bif­reið til sín, girða niður um hann og hafa kyn­ferð-
ismök við hann nauð­ugan.. .Með sama dómi var ákærði sak­felldur fyrir að fleka 10 ára dreng upp í bif­reið sína og hafa við hann kyn­ferð­is­mök nauð­ugan… Þá var ákærði með þessum sama dómi sak­felldur fyrir að fleka 12 ára dreng upp í bif­reið sína og hafa við hann kyn­ferð­is­mök nauð­ugan… Enn var ákærði með þessum sama dómi sak­felldur fyrir að fleka tvo unga drengi, 11 og 13 ára, inn á Hafn­arsal­ernið í Keflavík á árunum 1961-1963, og hafa við þá kyn­ferð­is­mök… Með dómi saka­dóms Hafn­ar­fjarðar 2. októ­ber 1978 var ákærði sak­felldur fyrir að fleka 9 ára dreng upp í bif­reið og hafa við hann nauð­ugan sam­ræð­is­mök … Með sama dómi var ákærði sak­felldur fyrir að tæla 12 ára dreng inn á hót­el­her­bergi til sín og hafa þar við hann kyn­ferð­is­mok nauð­ugan… Með dómi saka­dóms Reykja­víkur
5. sept­em­ber 1986 var ákærði sak­felldur fyrir að þukla á 10 ára dreng á lostugan hátt og kyssa hann á and­litið á veit­inga­stofu… Með sama dómi var ákærði sak­felldur fyrir að veit­ast að 13 ára dreng í bún­ings­klefa Sund­hall­ar­innar í Reykja­vík og fara höndum
um lík­ama hans og kyssa hann… Samkvæmt því sem hér hefur verið rakið hefur ákærði áður verið sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­af­brot gegn 11 ungum, varn­ar­lausum drengjum, flest
stór­felld brot og til þess fall­inn að valda drengj­unum var­an­legu meini.“

Svala Thorlacius, lög­maður blað­burð­ar­drengs­ins, setti á liðnu hausti fram kröfu um að Stein­grímur Njálsson yrði látin gang­ast undir afkynj­un­ar­að­gerð í ljósi afbota­fer­ils síns.
Rík­is­sak­sókn­ari vís­aði þeirri kröfu á bug.
„Ég er ósköp feg­inn að dómur sé fall­inn í þessu máli. Miðað við fyrri dóma í málum sem þessum bjóst ég eins við að dóm­ur­inn yrði væg­ari,“ sagði faðir blað­burð­ar­drengs­ins í sam­tali við DV í gær. Stein­grímur Njálsson og lög­maður hans, Ragnar Aðal­steins­son, lýstu því yfir í saka­dómi í gær­morgun að þeir hygð­ust áfrýja dómnum til Hæsta­réttar. -EIR

Er Stein­grímur mætti til rétt­ar­ins hót­aði hann blaða­mönnum DV líf­láti. DV sagði auð­vitað frá því í sama blaði og text­inn hér að ofan er úr.

Morð­hótun í Sakadómi

Stein­grímur Njálsson kyn­ferð­is­af­brota­maður hót­aði frétta­mönnum DV líf­láti er hann gekk í
dóms­sal Sakadóms f gær­morgun. Fjölmörg vitni voru að hótun Stein­gríms er hann lét eft­ir­far­andi orð falla: „Það kemur að því að ég slepp út. Eruð þið ekki hræddir um líf
ykkar?“ -EIR

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð