Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Jón Ingi: „Þjónusta við bæjarbúa er bensínið sem keyrir mann áfram“

Jón Ingi: „Þjónusta við bæjarbúa er bensínið sem keyrir mann áfram“
Jón Ingi Hákon­ar­son er odd­viti Við­reisnar í Hafn­ar­firði

Stjórn­mála­mað­ur­inn og leik­ar­inn Jón Ingi Hákon­ar­son er odd­viti Við­reisnar í Hafn­ar­firði og Mannlíf átti við hann við­tal um lífið og til­ver­una og ýmis­legt fleira.

Segðu mér, hvaðan ertu?

Ég bjó í Norð­ur­bænum fram til tíu ára, þá varð fjöl­skyldan að flytja úr Hafn­ar­firði til Reykja­víkur því að ekki var hægt að fá banka­fyr­ir­greiðslu í Spari­sjóðnum þar sem for­eldrar mínir voru hvorki inn­fæddir Hafn­firð­ingar og ekki voru þau í Flokknum. Konan mín er aftur á móti inn­fæddur Hafn­firð­ingur, fædd á Sólvangi á þriðju hæð og setn­ing sem ég hef oft heyrt frá henni er “ég fædd­ist á Sólvangi þriðju hæð, ég vann á Sólvangi á þriðju hæð og ég ætla að enda á Sólvangi á þriðju hæð.”

En við fluttum í vest­ur­bæ­inn en ég sór þess dýran eið að koma aftur og við það stóð ég. Ég átti góða æsku, var í fót­bolta og hand­bolta og eign­að­ist marga góða vini á þeim vett­vangi. Þegar ég hugsa til baka þá var ég hepp­inn með félags­skap og er ákaf­lega þakk­látur fyrir það, því slíkt er ekki sjálf­sagt.

Hvað ætlaðirðu að verða þegar þú yrðir stór?

Ég ætl­aði lengi vel að verða strætó­bíl­stjóri og kunni nöfnin á öllum strætó­leið­unum í gamla daga, ég elskaði að vera í strætó. Þessi draumur dó þegar ég varð aðeins eldri. En þegar ég var í menntó þá hafði ég mik­inn áhuga á því að verða hag­fræð­ingur, en hætti í hag­fræð­inni þegar ég kynnt­ist leik­list­inni í Stúd­enta­leik­hús­inu. Þá átti leik­listin mig allan.

Örlögin hög­uðu því að ég fór á æfingu í Stúd­enta­leik­hús­inu á sínum tíma og Benedikt Erlings­son var með nám­skeið og það var svo skemmti­legt að ég ákvað að leggja þetta fyrir mig og fór til London og lærði leik­list. Frábær ákvörðun, fátt holl­ara ungum manni en að standa á eign fótum í öðru landi, læra nýja siði og menn­ingu. Dásam­legur tími og kynnt­ist sjálfum mér upp á nýtt.

Leik­listin – þið eruð leik­ara­hjón þú og Laufey Brá. Býr hún alltaf í þér, kannski ykkur báðum, leik­listin?

Ég kynnt­ist nátt­úru­lega Laufeyju minni á leik­svið­inu þannig auð­vitað sam­einar leik­listin okkur.

Fátt ef ekk­ert hefur mótað mig meira en leik­listin, hún hefur gefið mér svo margt, hvernig ég hugsa og hvernig ég nálg­ast við­fangs­efnin.

Í leik­list­inni er bara eitt bann­orð sem er orðið NEI.

Agi list­ar­innar, sköp­un­ar­kraft­ur­inn, sam­vinnan og að vera stöðugt fyrir utan þæg­ind­ara­mmann er eitt­hvað sem ég bý að og hjálpar mér í póli­tík­inni. Leik­listin býr í mér og mun búa í mér þar til yfir lýkur, ég er leik­ari þó ég sé ekki að leika. 

Ég fékk á sínum tíma nóg af sjálfum mér sem leik­ara, var orð­inn hroka­fullur og sjálf­um­glaður. Égáttaði míg á því eitt kvöldið þar sem ég var í upp­klapp­inu að ég var ekki ánægður með mig, þó að ég væri að leika í frá­bærri sýn­ingu, í drauma­hlut­verki og með stór­skota­liði sam­leik­ara. Ég man að ég fór heim og tók þá ákvörðun að gera eitt­hvað annað. Mér fannst það óvirð­ing við leik­list­ina að vera ekki 100% glaður og þakk­látur því ég var að lifa draum­inn. Ég fór í MBA nám í HR og í Madrid, auk meist­ara­náms í mark­aðs­fræði. Mér finnst þessi kok­teill af skap­andi hugsun og við­skipta­fræði vera það sem ég á að vera að nota.

Áhugamál þín og fjöl­skyld­unnar?

Mér finnst fátt eins skemmti­legt og nær­andi og að fara í leik­hús eða tón­leika, mætti gera meira af því. En ég er mik­ill íþrótta­á­huga­maður, stunda lík­ams­rækt og golf. Svo er æðis­legt að ferð­ast með henni Laufeyju minni sem er fjöl­skyldan mín, þar sem við gátum ekki eign­ast börn. Þess vegna skiptir það mig miklu máli að skapa hér sam­fé­lag þar sem fólk getur verið sjálf­stætt eins lengi og mögu­legt er. Við munum ekki geta reitt okkur á stuðn­ing afkom­enda okkar því er það mitt hjart­ans mál að eldra fólk fái þá þjón­ustu sem þörf er á. Það eru ekki allir jafn heppnir að geta reitt sig á stuðn­ing afkom­enda sinna.

Stjórn­mál, hvernig kom það til? Af hverju Viðreisn?

Ég hef alltaf verið mjög póli­tískur, fylgst með frá því ég var barn og ung­lingur. Fyrsti flokk­ur­inn sem ég studdi að ein­hverju ráði var Alþýðu­flokk­ur­inn, en ég missti svo póli­tískt heim­ili þegar Sam­fylk­ing­ing var stofnuð. Ég tengdi ekki við hana og varð þá partur af hinu fljót­andi fylgi en skil­aði ansi oft auðu í kosn­ingum. Þegar Benedikt Jóhann­es­son og félagar hófu und­ir­bún­ing að stofnun nýs stjórn­mála­flokks varð ég for­vit­inn og fór að mæta á fundi og leist vel á það sem ég heyrði og kunni vel við fólkið. Mér fannst líka mjög spenn­andi að taka þátt í starfi flokks alveg frá stofnun hans. Ég er í eðli mínu Krati með sterkan hægri fót og ég fann þessu eðli mínu ágætis heim­ili í Viðreisn.

Sérðu fyrir þér stjórn­mál sem aðal­starf þitt næstu árin eða ára­tug­ina?

Mér hefur fund­ist alveg ein­stak­lega gaman og gef­andi að fá að vera í bæj­ar­stjórn Hafn­ar­fjarðar. Þetta starf á vel við mig þar sem ég er nokkuð góður í að koma mér inn í mörg ólík mál, setja mig inn í flókin mál og skýra þau út á ein­faldan hátt. Ég hef svo breitt áhuga­svið og hef svo mikla ánægju af því að vinna með ólíku fólki og vera stöðugt að læra nýja hluti. Eins og staðan er þá gæti ég alveg séð það fyrir mér að taka að mér fleiri verk­efni í póli­tík.

Hvað bjóðið þið í Viðreisn upp á fram yfir aðra flokkar? Hvers vegna ætti fólk að kjósa þig og ykkur en ekki aðra flokka?

Ég myndi aldrei leyfa mér að segja að við bjóðum upp á eitt­hvað sem er betra, við erum ein­fald­lega val­kostur, við erum öðru­vísi en aðrir flokkar.

Svo er það kjós­enda að meta hvort það sé betra eða verra. En í mínum huga þá erum við val­kostur í þessum kosn­ingum fyrir þá sem vilja aukna fag­mennsku í stjórnun bæj­ar­ins og sjá tæki­færin út frá lang­tíma­sýn en ekki út frá stund­ar­hags­munum. Það sem mér líkar best við Viðreisn er að við tökum stöðu með neyt­endum og not­endum kerf­anna.

Annað sem fellur vel að mínu gild­is­mati er að lífs­gæði og val­frelsi eru sitt­hvor hliðin á sama pen­ingi. Ég vil til að myndaa auka raun­veru­legt val­frelsi í skóla­málum og félags­þjón­ustu. Fólk á að fá að blómstra á eigin for­sendum, en stundum vilja kerfin okkar steypa okkur í sama mót. Það fer í taug­arnar á mér. Sér­stak­lega þegar fólkið er farið að þjóna kerf­inu í stað þess að kerfin þjóni fólk­inu.

Jón Ingi, ertu ekki bara einn af þeim sem segir fal­lega hluti kortér í kosn­ingar og svo ekk­ert meir þangað til það stytt­ist í næstu kosn­ingar á nýjan leik? 

Þú ert ekk­ert að skafa utan af því, það er gott.

Það er bara ein leið til að kom­ast að því hvort að ég sé froðu­snakkur eða heil­steyptur ein­stak­lingur sem vill gera vel og það er gefa mér tæki­færi til að sýna úr hverju ég er.

En ég vona að mál­flutn­ingur minn síð­ustu fjögur ár gefi fólki ein­hverja til­finn­ingu fyrir því hver ég er og hverju ég stend fyrir.

Eitt af því sem ég hef kom­ist að á kjör­tíma­bil­inu og er þakk­látur fyrir er sú stað­reynd að ég skulda engum neitt. Það á eng­inn neitt inni hjá mér. Það er mikið frelsi fólgið í því og það frelsi vil ég ekki missa.

Ég vona að þetta svar sé ekki út í hött, en ég er alveg hund­rað pró­sent viss um það að ekki eru allir ánægðir með mín störf og munu kalla mig froðu­snakk og popúlista. En ég veit líka að það eru ein­hverjir þarna úti sem líkar vel við það sem ég hef staðið fyrir. Ég hef að minnsta kosti reynt eftir bestu getu að standa fyrir máli mínu og rök­styðja mitt mál.

Ég hef líka hlaupið á mig og dregið rangar álykt­anir, en ég hef þá líka beðist vel­virð­ingar og afsök­unar þegar það hefur gerst. En í raun er þessi spurn­ing erfið vegna þess að það er í raun kjós­enda að meta það hvort ég sé pappa­kassi eða eitt­hvað annað.

Ef þið haldið ykkur inni, hvað bæti þið við, er ein­hver flokkur eða flokkar sem eru efstir á óska­list­anum varð­andi sam­starf?

Það er ljóst að það hafa verið átök um mörg mál á þessu kjör­tíma­bili og minni­hlut­inn hefur náð að vinna vel saman. Þar hefur ríkt traust á milli okkar og gagn­kvæm virð­ing þrátt fyrir ólíkar skoð­anir.

Aftur á móti er ljóst að nokkrir bæj­ar­full­trúar úr minni­hlut­anum munu ekki setj­ast aftur í bæj­ar­stjórn þannig að það flækir aðeins málin. Ég vil aftur á móti snúa spurn­ing­unni við og spyrja hverjir séu til­búnir að vinna með okkur í Viðreisn því við gerum kröfur um fag­mennsku, gagn­sæi og fag­lega ráð­inn bæj­ar­stjóra.

Útilokið þið í Viðreisn samstarf með einhverjum flokki eða flokkum?

Nei, en það er ljóst að minni­hlut­inn hefur unnið vel saman og þar ríkir gott traust.

Er ein­hvern tím­ann hægt að stimpla sig út eftir erf­iðan dag eða góðan í stjórn­málum?

Ég átti stundum í erf­ið­leikum með það fyrstu tvö árin en svo tók ég með­vit­aða ákvörðun um að stimpla mig út á kvöldin.

En ég neita því ekki að þegar þung og erfið mál eru til umfjöll­unar þá er það mjög erfitt. Erfiðast hefur þó verið að vinna í málum þar sem fólk hefur per­sónu­gert ágrein­ing­inn og vænt mann um eitt­hvað mis­jafnt. En ég tók líka með­vit­aða ákvörðun um að brynja mig gagn­vart því.

En þessi þjón­usta við bæj­ar­búa er svo gef­andi og mik­il­væg að það er bens­ínið sem keyrir mann áfram.

Jón Ingi Hákon­ar­son er odd­viti Við­reisnar í Hafn­ar­firði
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð