Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Siggi Stormur alveg stúmm: „Undarlegt að afgreiða svo stórt mál í bæjarráði daginn fyrir kosningar“

Siggi Stormur alveg stúmm: „Undarlegt að afgreiða svo stórt mál í bæjarráði daginn fyrir kosningar“
Siggi Stormur

Samkvæmt grein Fjarð­ar­frétta var boðað var til fundar í bæj­ar­ráði á afar óhefð­bundnum tíma, á föstu­dag­inn 13. maí, klukkan 10. Segir mið­ill­inn að fund­ar­boð hafi borist þremur mín­útum eftir áskyldan fyr­ir­vara, en fund­inn sátu:

Ágúst Bjarni Garð­ars­son for­maður, Kristinn Andersen vara­for­maður, Ólafur Ingi Tómasson aðal­maður, Adda María Jóhanns­dóttir aðal­maður, Jón Ingi Hákon­ar­son aðal­maður, Sigurður Pétur Sig­munds­son vara­maður, Sigurður Þórður Ragn­ars­son áheyrn­ar­full­trúi; auk þeirra sátu fund­inn Rósa Guð­bjarts­dóttir bæj­ar­stjóri og Sigurður Nordal sviðs­stjóri stjórn­sýslu­sviðs.

Rósa Guð­bjarts­dóttir og Ágúst Bjarni Garð­ars­son

Á fund­inum áður­nefnda voru það fimm mál sem tekin voru fyrir á þessum síð­asta degi fyrir kosn­ingar.Fyrst voru teknir fyrir bæj­ar­ráðs­styrkir þar sem 1,3 millj­ónir kr. til þriggja aðila. Einnig sam­þykkti bæj­ar­ráð að afsala sér for­kaups­rétti á fiski­skip­inu Guðrúnu BA 127 en hafn­firska Útgerð­ar­fé­lagið Dagný ehf. átti skipið; var að selja það úr bænum. Í slíkum til­fellum á sveit­ar­fé­lag selj­anda for­kaups­rétt. Þriðja málið á dag­skrá var end­ur­nýjun á þjón­ustu­samn­ingi við Fjöl­smiðj­una, sem gerður var við Samtök sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Er við­bót­ar­fram­lagið 11,5 millj­ónir og hlut­deild Hafn­ar­fjarðar í því 1.495.000 kr. Heild­ar­fram­lag sveit­ar­fé­lag­anna hækkar því um 105 pró­sent frá gerð samn­ings­ins árið 2020.Síðustu tvö málin sem tekin voru fyrir á umræddum fundi hafa verið nokkuð mikið til umræðu; aðal­lega vegna skorts á form­legum heim­ildum: En bæj­ar­ráð heim­il­aði á fundi sínum 3. maí síð­ast­lið­inn að veita heim­ild til að und­ir­búa útboð vegna bygg­ingar reið­skemmu Sörla og knatt­húss Hauka. Því hefur það ekki tekið nema rúma viku að und­ir­búa útboðin, en Fjarð­ar­fréttir greina svo frá að mið­ill­inn hafi mjög áreið­an­legar heim­ildir fyrir því að sú und­ir­bún­ings­vinna hafi þegar verið hafin á fram­kvæmda­sviði Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar.Einnig kemur fram að nú, rúmri viku síðar, sam­þykkti bæj­ar­ráð að ráð­ist verði í útboð á 1. áfanga reið­hallar Sörla í sam­ræmi við fyr­ir­liggj­andi útboðs- og verkskil­mála; við útboðið áskilur sveit­ar­fé­lagið sér allan rétt til að hafna öllum til­boðum yfir fram­lagðri kostn­að­ar­á­ætlun. Það verði nýkjör­innar bæj­ar­stjórnar að taka afstöðu til þess; hvort og þá líka hvaða til­boði verður tekið að afloknu útboði.Sama form var á sam­þykkt bæj­ar­ráðs á útboði á 1. áfanga knatt­húss Hauka. Það verður því nýkjörin bæj­ar­stjórn sem tekur málið fyrir, enda mál­inu vísað til bæj­ar­stjórnar til stað­fest­ingar sem eðli­lega tekur afstöðu til þess hvaða til­boði verði tekið að loknu útboði eða hafni þeim öllum.Sigurður Þ. Ragn­ars­son, betur þekktur sem Siggi Stormur, þáver­andi full­trúi Mið­flokks­ins, sagði mik­il­vægt að afstaða flokka í núver­andi bæj­ar­stjórn til þessa máls sé ljós; enda komi það í hlut nýkjör­innar bæj­ar­stjórnar að sam­þykkja útboðið end­an­lega. Sigurður lýsti undrun sinni á að afgreiða svo stórt mál í bæj­ar­ráði, dag­inn fyrir kosn­ingar. Og bók­aði:„Fulltrúi Mið­flokks­ins styður að setja fram­kvæmdir við knatt­hús Hauka í útboð. Það er mik­il­vægt að afstaða flokka í núver­andi bæj­ar­stjórn til þessa máls sé ljós, enda kemur það í hlut nýkjör­innar bæj­ar­stjórnar, með sitt end­ur­nýj­aða umboð, að sam­þykkja útboðið end­an­lega. Fulltrúi Mið­flokks­ins lýsir hins vegar undrun sinni á að afgreiða svo stórt mál í bæj­ar­ráði, dag­inn fyrir kosn­ingar.“

Annar Sigurður, Sigurður P. Sig­munds­son, full­trúi Bæj­ar­list­ans, sagð­ist í bókun sinni mót­mæla harð­lega þeirri aðferð bæj­ar­stjórn­ar­meiri­hluta Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks að taka til afgreiðslu í bæj­ar­ráði degi fyrir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar til­lögu um að farið verið strax í útboð á fram­kvæmdum við knatt­hús Hauka og reið­skemmu Sörla.Sagði hann ekki tíma­bært að taka þessa ákvörðun og ekki rétt stjórn­sýslu­lega séð að binda hendur næstu bæj­ar­stjórnar með þessum hætti. Réttara væri að bæj­ar­stjórn taki málið til afgreiðslu og þannig myndu allir bæj­ar­full­trúar fá tæki­færi til að taka þátt í umræðum og afgreiðslu:„Þá skal á það bent að umhverf­is­mat um bygg­ingu knatt­húss­ins mun ekki liggja fyrir fyrr en í ágúst eða sept­em­ber 2022. Að sam­þykkja útboð með fyr­ir­vara um nið­ur­stöðu umhverf­is­mats­ins er ekki góð stjórn­sýsla. Þá er nokkuð ljóst að ekki verður hægt að hefja jarð­vinnu á starfs­svæði Sörla fyrr en í sept­em­ber 2022. Það er sem sagt ekk­ert sem kallar á það að bjóða þessi verk­efni út núna. Það liggur því fyrir að ekki er búið að tryggja fjár­mögnun til þess­ara verk­efna. Ef þessar fjár­fest­ingar eru ekki innan fjár­hags­á­ætl­unar þarf við­auka við fjár­hags­á­ætlun, sem bæj­ar­ráð þarf að vísa til bæj­ar­stjórnar til sam­þykktar,“ segir Sigurður og tekur fram að þessi gjörn­ingur úti­loki tvo af fjórum minni­hluta­flokk­unum frá því að taka form­lega afstöðu; til­lagan er sett fram í bæj­ar­ráði þar sem ekki allir hafa atkvæð­is­rétt.„Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem þessi meiri­hluti hagar sér svona í sam­bæri­legum málum,“ segir Sigurður að lokum í bókun sinni. Hann sam­þykkti þó, en lét fylgja með að hann teldi aðgerð­ina dansa á línu þess lög­lega.

Adda María Jóhanns­dóttir, þáver­andi full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar, en hún gaf ekki kost á sér fyrir kosn­ing­arnar í gær, sam­þykkti aug­lýs­ingu útboðs, en sagði athygl­is­vert að meiri­hluti Fram­sókn­ar­flokks­ins og Sjálf­stæð­is­flokks­ins ætli að enda kjör­tíma­bilið með sama hætti og þeir hófu það; með því að dansa á línu þess lög­lega við afgreiðslu mála er varða upp­bygg­ingu íþrótta­mann­virkja.Adda segir í bókun sinni að fund­ar­boð fyrir fund­inn hafi verið sent út með minnsta lög­lega fyr­ir­vara; á afar óhefð­bundnum fund­ar­tíma; þegar umboð frá­far­andi full­trúa er um það bil að renna út.„Með þess­ari til­lögu er enn verið að gefa inni­halds­laus lof­orð og óút­fylltur tékki sendur áfram á nýja bæj­ar­stjórn. Umhverf­is­mat vegna knatt­húss á Ásvöllum hefur ekki verið lokið og fyr­ir­vari gerður um það í útboðs­gögnum. Þá hefur heldur ekki fylli­lega verið gert ráð fyrir fjár­mögnun þess­ara verk­efna í gild­andi fjár­hags­á­ætlun og ekki verið gerður við­auki vegna útboð­anna.Skv. sveit­ar­stjórn­ar­lögum er óheim­ilt að víkja frá fjár­hags­á­ætlun nema sveit­ar­stjórn hafi áður sam­þykkt við­auka, sem geri grein fyrir breyt­ingum á útgjöldum og skuld­bind­ingum,“ sagði Adda og benti á að fyrir um það bil ári síðan hafi bæj­ar­stjóri tekið fyrstu skóflustungu að knatt­húsi Hauka og að for­maður bæj­ar­ráðs hafi gert slíkt hið sama að reið­höll Sörla. Ekkert hafi hins vegar gerst fyrr en nú þegar málið er sett á dag­skrá á loka­metrum kosn­inga­bar­átt­unnar:„Hér er um sýnd­ar­til­lögu að ræða til að slá ryki í augu kjós­enda,“ sagði Adda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð