Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Maður skaut eiginkonu sína til bana á Akranesi og framdi því næst sjálfsmorð

Maður skaut eiginkonu sína til bana á Akranesi og framdi því næst sjálfsmorð

Maður skaut eig­in­konu sína til bana á Akranesi árið 2016 og framdi því næst sjálfs­morð. Konan var rúss­nesk, 54 ára en mað­ur­inn var á sjö­tugs­aldri og hafði glímt við langvar­andi veik­indi. Lög­reglan taldi að mað­ur­inn hefði skotið eig­in­konu sína til bana áður en hann svipti sig lífi.

Maðurinn var fæddur árið 1952 og lét eftir sig fjögur upp­komin börn. Auk þess átti hann son sem hann missti í svip­legu umferð­ar­slysi á Akranesi árið 2008, sem þá var á nítj­ánda ald­ursári.

Konan fædd­ist í Rúss­landi árið 1961, og var 54 ára þegar hún lést. Hún lét eftir sig upp­komna dóttur í heima­land­inu. Þau höfðu verið gift í um ára­tug og áttu engin börn saman.

Við húsleit fundust þrjú skotvopn

Konan var sof­andi þegar eig­in­maður hennar, skaut hana í hnakk­ann í íbúð þeirra á Akranesi aðfara­nótt mið­viku­dags­ins 13. apríl 2016.

Lá hún sof­andi í hjóna­rúmi en eftir verkn­að­inn skaut mað­ur­inn sjálfan sig þar sem hann sat á rúm­stokknum.

Byssan sem mað­ur­inn not­aði var í eigu dán­ar­bús föður hans en við hús­leit fund­ust þrjú skot­vopn. Hafði mað­ur­inn leyfi fyrir hinum tveimur.

Reyndi að skilja við manninn

Konan hafi reynt að skilja við mann­inn þremur vikum áður en að hún var myrt.

„Mamma var hjarta­hlý, skörp og góð kona sem vildi öllum vel,“ sagði dóttir hennar í sam­tali við Morg­un­blaðið. Konan vann sem skóla­liði í Grunda­skóla á Akranesi og minnt­ist dóttir hennar móður sinnar með hlýjum orðum í minn­ing­ar­grein í Morg­un­blað­inu.

„Mamma mín, var myrt þann 13. apríl 2016. Mamma var hjarta­hlý, skörp og góð kona sem vildi öllum vel. Við vorum afar nánar, hún var mér allt í senn mamma, systir og besta vin­kona. Andlát hennar er mér og fjöl­skyldu minni svo ákaf­lega þung­bært. Elsku mamma – við vitum að þú ert með okkur, við elskum þig og þú verður ævin­lega í hjörtum okkar. Fjöl­skylda þín syrgir og biður fyrir sál þinni,“ segir í grein­inni.

Samfélagið harmi slegið

Konan starf­aði eins og fyrr segir sem skóla­liði, en hún flutti til Íslands árið 1999. Hún hafði starfað sem skóla­liði í Grunda­skóla um margra ára skeið og var vel liðin. „Það er óhætt að segja það að við erum harmi lostin. Við erum mjög slegin,“ sagði skóla­stjóri Grunda­skóla í sam­tali við DV.

Eðvarð Ing­ólfs­son, sókn­ar­prestur á Akranesi, sagði í sam­tali við DV eftir atvikið að margir væru í sárum og aðstand­endur og íbúar tækjust á við djúpar til­finn­ingar.

„Það bland­ast allt saman. Fólki veit ekki hvernig því á að líða. Sorgin er mikil að hafa misst ást­vin frá sér. Sorg yfir því sem hefur gerst. Aðrir finna fyrir skömm og reiði að svona hafi farið. Tíminn vinnur síðan með þessu líkt og ger­ist ávallt í sorg­inni, því við eigum enga aðra val­kosti en að halda áfram,“ sagði séra Eðvarð sem var aðstand­endum innan handar eftir harm­leik­inn.

Maðurinn hafði glímt við veik­indi og sagði séra Eðvarð að konan hafi hugsað vel um eig­in­mann sinn í veik­ind­unum. Hann kvaðst hafa fyrst kynnst mann­inum þegar hann missti son sinn í umferð­ar­slysi á Akranesi árið 2008.

„Hann var hinn ljúfasti í við­móti og þakk­látur þegar ég hringdi til að vitja um heilsu­far hans eftir jarð­ar­för­ina,“ sagði Eðvarð.

Fór fram á bætur úr ríkissjóði

Mynd/skjá­skot

Dóttir kon­unar sem myrt var á heim­ili sínu á Akra­nesi, fór fram á bæt­ur úr rík­is­sjóði til þolenda af­brota vegna and­láts móður sinn­ar.

Rann­sókn lög­reglu á mál­inu lauk um sum­arið í kjöl­far atviks­ins og lá þá fyr­ir nið­ur­staða í mál­inu. Þar sem sak­born­ing­ur­inn var einnig lát­inn var ekki dæmt í mál­inu og því gat dóttir hennar nýtt sér úrræðið.

Helga Vala Helga­dótt­ir var lög­maður dótt­ur­innar og vann að bóta­kröf­um fyr­ir henn­ar hönd. Ann­ars veg­ar var send krafa til lög­reglu sem fór þaðan til bóta­nefnd­ar og hins veg­ar var gerð krafa í dán­ar­bú hjón­anna.

Málið tók mjög á dótt­ur­ina að sögn Helgu Völu. „Þetta er hrika­lega sorg­legt og þungt mál. Það er auð­vitað al­veg svaka­lega þungt að fá svona fregn­ir, þó að hún hafi vitað að það væri erfitt hjá þeim,“ sagði hún í sam­tali við mbl.is.

Um bóta­sjóð­inn gilda lög nr. 69/​1995. Þar kem­ur fram að sjóðnum sé meðal ann­ars ætlað að bæta and­lát sem leiðir af brot­um á al­menn­um hegn­ing­ar­lög­um. „Verði af­leið­ing hins refsi­verða verkn­aðar sú að brota­þoli and­ast skulu bæt­ur greidd­ar vegna hæfi­legs út­far­ar­kostn­aðar og bæt­ur vegna missis fram­fær­anda. Skil­yrðið um að brot skuli varða við al­menn hegn­ing­ar­lög er sams kon­ar og gild­ir um lík­ams­tjón vegna brota á al­menn­um hegn­ing­ar­lög­um (1),“ seg­ir í lög­un­um.

Dóttir kon­unnar ræddi við Önnu Marsi­bil Clausen, blaða­mann mbl.is, um móður sína og var við­talið birt á mbl.is og í Morg­un­blað­inu. Von­aðist dóttirin til þess að sag­an kynni að bjarga öðrum kon­um frá sömu ör­lög­um og mættu móður henn­ar. Í við­tal­inu grein­di hún frá því að móðir henn­ar hefði tví­veg­is reynt að skilja við mann­inn, í seinna skiptið þrem­ur vik­um áður en hann myrti hana.

Heim­ildir:

Einar Þór Sig­urðs­son. 27. apríl 2016. Kveður móður sína sem var myrt á Akranesi: „Elsku mamma – við vitum að þú ert með okkur“… verður jarð­sungin frá Akra­nes­kirkju í dag. DV.

Innlent. 8. ágúst.2016. Vill bætur vegna morðs­ins á …. MBL.

Tryggvi Páll Tryggva­son. 7. júlí 2016. Skaut … með byssu úr dán­ar­búi föður síns. Vísir.

Ægir Þór Eysteins­son. 14.aprí.2016. Nöfn hjón­anna sem fund­ust látin á Akranesi. RÚV.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð