Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Rétta yfir rússneskum hermanni vegna stríðsglæps: „Ég get ekki fyrirgefið honum“

Vadim Shishimarin
Vadim Shishimarin Mynd: Reuters-skjáskot

Tuttugu og eins árs gamall rússneskur hermaður hefur játað að hafa skotið óvopnaðan borgara í Úkraínu en hann er sá fyrsti sem ákærður er fyrir stríðs­glæpi í stríðinu.

Samkvæmt BBC viðurkenndi Vadim Shishimarin að hafa skotið hinn 62 ára gamla óbreytta borgara aðeins fáeinum dögum eftir að innrásin hófst. Á hann yfir höfði sér lífstíðar­fangelsi.

Var fanginn leiddur inn í hinn smáa réttarsal í Kænugarði í hand­járnum, í fylgd með þung­vopnuðum vörðum. Virtist hann stressaður en hann gróf höfuðið í bringu sinni.

Aðeins fáeinum metrum frá honum sat ekkja mannsins sem hann drap, Kateryna.

Hún þurrkaði tárin er hermaðurinn gekk inn í réttar­salinn en settist með hendur í skauti á meðan saksókn­arinn lýsti voða­verkinu.

„Viðurkennir þú sekt þína?“ spurði dómarinn. „Já,“ svaraði Shishimarin.

„Að fullu?“ „Já,“ svaraði hermaðurinn ungi lágum rómi innan úr gler­búrinu sem hann sat í.

Sagði saksókn­arinn að hermaðurinn hafi verið foringi skriðdreka­deildar þegar gerð var árás á dreka­lestina. Hann og fjórir aðrir hermenn hafi þá stolið bíl og keyrt nærri Chupakhivka þar sem hinn 62 ára karlmaður varð á vegi þeirra er hann hjólaði framhjá þeim. Samkvæmt saksókn­aranum var Shishimarin skipað að skjóta manninn sem hann og gerði en notaði hann Kalashnikov riffil við verkið.

Eftir réttar­höldin í dag sagðist ekkja fórnar­lambsins vorkenna hinum unga hermanni, „en fyrir svona glæp, get ég ekki fyrir­gefið honum.“

Samkvæmt yfir­völdum í Úkraínu hefur orðið vart við um 10.000 stríðs­glæpi síðan innrásin hófst og því er nokkuð ljóst að Shishimarin verður ekki sá eini sem þarf að gjalda fyrir glæpi sína í þessu stríði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Christina Blake var úrskurðuð látin á vettvangi

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall