Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Gunnar um lóð Jóns: „Ef ég hefði verið áfram þá hefði ég ekki tekið þetta í mál – Stóð við mitt“

Gunnar um lóð Jóns: „Ef ég hefði verið áfram þá hefði ég ekki tekið þetta í mál – Stóð við mitt“

Einka­hluta­fé­lag, stofn­að af Jóni Gunn­ars­syni dóms­mála­r­á­herra og eig­in­konu hans í mars, keypti ein­býl­is­hús og 3,2 hekt­ara lóð í Garða­bæ á 300 millj­ón­ir mán­uði síð­ar. Dag­inn áð­ur komu ný­ir eig­end­ur inn í fé­lag­ið og Jón yfir­gaf eig­enda­hópn­inn. Kon­an hans er með­al eig­enda og sit­ur hún í stjórn fé­lags­ins ásamt syni þeirra og tengda­dótt­ur. Stefnt er að bygg­ingu 30-40 íbúða byggð. Fyrri eig­andi reyndi ít­rek­að að fá að ráð­ast í sam­bæri­lega upp­bygg­ingu en var alltaf hafn­að af bæn­um, eins og segir í grein Stund­ar­innar.

Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra og fjöl­skylda hans eru aðal­fólkið í 300 millj­óna fast­eigna­við­skiptum með þriggja hekt­ara land í Garðabæ; fyrri eig­andi reyndi ítrekað að fá bæj­ar­yf­ir­völd til að sam­þykkja breytt deiliskipu­lag og leyfa bygg­ingu íbúða á land­inu en án árang­urs. Síðast fyrir tveimur árum.

Þessi hópur í kringum Jón dóms­mála­ráð­herra hefur nú þegar leitað til arki­tekta vegna hug­mynda um að byggja tugi íbúð­ar­húsa á land­inu og virð­ist vera búin að veðja 300 millj­ónum á að þau geti sann­fært nýjan meiri­hluta í Garðabæ um að snúa af fyrri leið.

„Þú ert ekki með réttar upp­lýs­ingar,“ voru fyrstu við­brögð Jóns þegar Stundin spurði Jón út í við­skipti félags­ins:

„Það eru fleiri aðilar sem eru komnir inn í þetta félag og það er ekki búið að ganga frá kaup­samn­ingi um eitt­hvað land.“

Ekki löngu síðar segir hann þó að það sé ekk­ert leynd­ar­mál að félag sem þau hjónin ættu ein­hvern hlut í væri í ferli að kaupa land ásamt fleirum; hann væri þó ekki á meðal hlut­hafa lengur, en eig­in­kona hans sé það.

„Við erum bara þátt­tak­endur í félagi sem er að kaupa þarna ákveðið land. Og það er eig­in­lega ekk­ert annað um það að segja, og síðan eiga menn eftir að þróa það og skoða hvað verður gert með þetta land og hvernig það vinnst,“ sagði Jón.

Sjálf kaupin voru gerð í gegnum einka­hluta­fé­lagið Hraun­prýði bygg­ingar ehf. sem Jón og eig­in­kona hans Margrét Halla Ragn­ars­dóttir stofn­uðu 23. mars á þessu ári: áttu hjónin félagið til helm­inga; minna en mán­uði síðar, þann 20. apríl, keypti þetta félag ein­býl­is­hús og með­fylgj­andi lóð fyrir 300 millj­ónir króna.

Jón segir að hann sé ekki lengur í hlut­hafa­hópnum. Eig­in­kona Jóns er það hins vegar.

Og sam­kvæmt Jóni, og upp­lýs­ingum frá Skatt­inum, á eig­in­kona Jóns, 26% hlut í félag­inu. Skráning, um raun­veru­lega eig­endur félags­ins var upp­færð á vef Skatts­ins eftir að Stundin hafði sam­band við Jón.

En sjálfur eign­ar­hlutur eig­in­kon­unnar er alls ekki eina teng­ing dóms­mála­ráð­herr­ans við áður­nefnt félag: Sonur Jóns, Gunnar Bergmann Jónsson er vara­maður í stjórn þess og eig­in­kona hans, Halla Hall­geirs­dóttir, er aðal­maður; stjórn félags­ins er sem sé sam­sett af eig­in­konu ráð­herr­ans og tengda­dóttur, auk fjár­festa og aðila úr bygg­inga­geir­anum, og þá situr sonur hans í vara­stjórn.

Verðið sem félagið Hraun­prýði bygg­ingar greiddi fyrir eign­ina er í litlu sam­ræmi við það deiliskipu­lag sem nú gildir, sam­kvæmt þeim sem þekkja vel til þessa máls.

Vert er að nefna að íbúð­ar­húsið á lóð­inni marg­um­töl­uðu var metið nán­ast ónýtt árið 2011, þegar Rík­is­kaup, sem þá sýsl­aði með lóð­ina fyrir hönd nokk­urra stofn­anna, sem höfðu fengið húsið í arf frá fyrri eig­anda, bauð það til sölu.

Yfirlit mats­manns var lagt fram sam­hliða söl­unni þar sem þessar upp­lýs­ingar litu dags­ins ljós.

Kaup­and­inn var Dalsnes ehf, félag; sem er í eigu Ólafs Björns­sonar, sem meðal ann­ars heldur utan um eign­ar­hlut hans í heild­söl­unni Innnes. Um leið og hann eign­að­ist lóð­ina hóf hann und­ir­bún­ing að end­ur­skipu­lagn­ingu og upp­bygg­ingu íbúða; það var í sam­ræmi við það sem gerst hafði á lóð­unum í kring; þar hefur risið íbúða­byggð í hverfi sem fékk nafnið „Prýði“. En erindi Ólafs og áformum hans var hafnað af bæj­ar­yf­ir­völdum í Garðabæ.

Ástæðan fyrir höfn­un­inni var sögð sú að vernda ætti skóg­rækt sem fyrri eig­andi hafði staðið að á land­inu um langt ára­bil. Og þau sjón­ar­mið bæj­ar­ins héldu þegar Ólafur kærði ákvörð­un­ina til úrskurð­ar­nefndar umhverfis- og auð­linda­mála; Þessi afstaða er óbreytt: Í það minnsta á papp­ír­unum.

Ekki liggur ljóst fyrir í stjórn­kerfi Garða­bæjar hvort unnið sé í að breyta deiliskipu­lag­inu; út á það virð­ast við­skipti fjöl­skyldu Jóns og við­skipta­fé­laga ganga.

Kemur fram að stjórn­ar­for­maður félags­ins, sem á þeim tíma var samt ekki orð­inn slíkur, leit­aði í aðdrag­anda kaupanna til arki­tekta um að kanna hversu mikið bygg­inga­magn kæm­ist fyrir á lóð­inni sam­kvæmt heim­ildum blaðs­ins.

Lóðin Hrauntunga er gríð­ar­lega stór; hafa nær­liggj­andi lóðir þegar verið skipu­lagðar fyrir íbúða­byggð og hug­myndir hóps­ins á bak við Hraun­prýði bygg­ingar eru að reisa á bil­inu 30-40 hús á land­inu.

Gunnar Ein­ars­son, frá­far­andi bæj­ar­stjóri í Garðabæ, stóð í stafni gegn deiliskipu­lags­breyt­ingum, og hann kann­ast ekki við að neinar breyt­ingar séu fyr­ir­hug­aðar á lóð­inni: Enda hefði afstaða sveit­ar­fé­lags­ins verið afar skýr í gegnum mála­rekstur fyrri eig­enda:

„Svo veit ég ekk­ert hvað fram­tíðin ber í skauti sér, en ef ég hefði verið áfram bæj­ar­stjóri þá hefði ég ekki tekið þetta í mál,“ segir Gunnar.

Hjálmar R. Bárð­ar­son, fyrr­ver­andi sigl­inga­mála­stjóri og for­stjóri Alþjóða­sigl­inga­mála­stofn­un­ar­innar, var eig­andi jarð­ar­innar Hraun­tungu og bjó þar ásamt Else konu sinni og stund­aði skóg­rækt.

Gunnar segir um sam­skipti sín við Hjálmar að „við náðum mjög vel saman og hann lagði mikla áherslu á að lóðin fengi að halda sér bara svona eins og hún er; það er mikil skóg­rækt þarna og ég var bara alveg sam­mála honum í því að mér fynd­ist það vera skyn­sam­legt. Og síðan kaupir Óli í Innnes húsið, þegar Hjálmar fellur frá, og sækir á okkur með það að fá að skipu­leggja þarna ein­hverja íbúða­byggð. Og ég bara mundi eftir orðum okkar Hjálmars og ég var alls ekki til­bú­inn til þess að, ja ég segi að svíkja það lof­orð sem ég gaf.“

Að sögn Gunnars hafa engin áform komið inn á borð bæj­ar­yf­ir­valda og að hann hafi ekki vitað af því að húsið við Hraun­tungu hefði skipt um eig­endur.

„Það hefur eng­inn haft sam­band við mig og spurt mig, enda vita menn að ég er á útleið og mér þætti það mjög furðu­legt ef arf­taki minn eða næsti meiri­hluti breytti eitt­hvað út af þessu, þess­ari sýn sem ég var að lýsa fyrir þér áðan. Að það væri svona grænt svæði á þessum stað og svo líka bara ákveðin virð­ing við lát­inn mann. En það er kannski bara eitt­hvað sem telur ekki í þessum nútíma­heimi, ég veit ekk­ert um það. En alla­vega stóð ég við mitt lof­orð.“

Jafnvel Þótt að heim­ildir Stund­ar­innar hermi að stór­felld íbúða­upp­bygg­ing sé það sem vaki fyrir fjöl­skyldu Jóns og við­skipta­fé­lögum þeirra, vill dóms­mála­ráð­herra ekk­ert um það segja; bendir þó á að nýr stjórn­ar­for­maður félags­ins sé bygg­inga­meist­ari.

„Já já, það hlýtur aug­ljós­lega að vera eitt­hvað mark­mið í því. Ég er að segja þér það, það á eftir að skipu­leggja þetta land og fara alveg í gegnum það hvað menn ætla að gera þarna og hvað menn geta gert þarna og allt svo­leiðis. Það eru aðrir að keyra það heldur en ég. Það er þarna bygg­inga­meist­ari í þessu eign­ar­haldi og annað gott fólk,“ segir Jón.

Vert er að nefna að Jóhann Berg Guð­munds­son fót­bolta­maður er í liði með fjöl­skyldu Jóns í kaup­unum á Hraun­tungu. Segist Jón ekki þekkja til­raunir fyrri eig­anda til þess að fá deiliskipu­lagi lóð­ar­innar breytt; né heldur að fyrir liggi eitt­hvað vil­yrði um að slíkar breyt­ingar myndu ná í gegn fyrir nýja eig­endur.

„Bara veistu það, ég þekki þetta ekki. Hvað hefur gerst þarna áður sko. En það er auð­vitað bara ekk­ert ákvörðun þeirra sem eiga landið nákvæm­lega hvað er hægt að gera, það er sam­komu­lag við yfir­völd og svo­leiðis og liggur ekk­ert slíkt sam­komu­lag mér vit­an­lega fyrir enda er nú bara nýbúið að kjósa þarna í sveit­ar­fé­lag­inu eins og öðrum sveit­ar­fé­lögum.“

Stjórn­ar­for­maður félags­ins er Vignir Steinþór Hall­dórs­son og er í dag skráður eig­andi að 26% hlut, sam­kvæmt fyr­ir­tækja­skrá Skatts­ins yfir raun­veru­lega eig­endur; auk áður­nefndra fjöl­skyldu­með­lima Jóns og Vignis, eru Jóhann Berg Guð­munds­son lands­liðs­maður í knatt­spyrnu og leik­maður Burnley í ensku úrvals­deild­inni, og for­stjóri HS Orku, Tómas Már Sig­urðs­son, sestir í stjórn félags­ins.

Nefnt er að Tómas er ekk­ill Ólafar Nordal, fyrr­ver­andi ráð­herra og vara­for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem sat lengi á þingi með Jóni. Þá er móðir Jóhanns Bergs, Íris Gunn­ars­dóttir, vara­maður í stjórn félags­ins; eig­in­maður hennar og faðir Jóhanns Bergs er Guð­mundur Örn Jóhanns­son fram­kvæmda­stjóri hjá útgáfu­fé­lag­inu Torgi, og fyrrum fram­kvæmda­stjóri Slysa­varn­ar­fé­lags­ins Lands­bjargar.

Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra var sjálfur í því starfi áður en hann sett­ist á þing árið 2007; 5 árum áður en Guð­mundur tók við starf­inu.

Þá er búið er að segja upp leigu­samn­ingi íbú­anna sem leigt hafa húsið sem stendur á Hraun­tungu.

Og Jón segir:

„Þú veist að það er hátt í 400 fm ein­býl­is­hús á þessu landi,“ segir hann aðspurður um áform hóps­ins; vísar til húss­ins sem var metið ónýtt árið 2011.

„Það er búið í því. En það þarf örugg­lega að laga það heil­mikið til, en það er búið í því. Og þetta er ein­stakt svæði,“ segir hann.

Bætir við:

„Ég er ekki að fara að búa þarna, svo þú vitir það. Ég er ekki að flytja þangað.“

Húsið er vissu­lega á lóð­inni, en fast­eigna­mat þess er rétt rúm­lega 100 millj­ónir króna, en í því mati er ekk­ert til­lit tekið til þess mats sér­fræð­ings, sem tók húsið út árið 2011, að ástand þess væri svo lélegt að ráð­ast þyrfti í stór­felldar end­ur­bætur á því; Þar hafa verið leigj­endur um ára­bil og þeir stað­festu við Stundina að búið væri að segja upp leigu­samn­ingnum

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð