Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Hér er kynbundið ofbeldi og byrði kvenna í samfélaginu er langt frá því að vera sú sama og karla“

„Hér er kynbundið ofbeldi og byrði kvenna í samfélaginu er langt frá því að vera sú sama og karla“
Stefanía Sig­urð­ar­dóttir er stjórn­ar­maður í Kven­rétt­inda­fé­lagi Íslands

„Hve­nær fá konur bara að vera í friði?“ spyr Stefanía Sig­urð­ar­dóttir, sem er stjórn­ar­kona í Kven­rétt­inda­fé­lagi Íslands, í pistli sínum – og bætir við:

„Að kona fái að ráða yfir sínum lík­ama er sumum fram­andi hug­mynd. Enn eru til menn í þessum heimi sem telja það rétt sinn að stunda mök við konur án þeirra sam­þykkis. Það eru enn til menn sem telja það líka rétt sinn að ákveða hvort kona gangi með barn eða ekki. Það eru enn til menn sem vilja setja lög um lík­ama kvenna.“

Bætir því við að „það er ekki langt síðan að við þurftum að berj­ast hér á Íslandi fyrir þeim rétti að ráða yfir okkar eigin lík­ama. Löggjöf um þung­una­rof fór í gegnum Alþingi en þar voru meira að segja ráð­herrar í rík­is­stjórn, nokkrir for­menn stjórn­mála­flokka sem kusu gegn því að konur hafi rétt yfir sínum eigin lík­ama; þannig áður en við hugsum, þetta er ekki svona á Íslandi, munum þá bara að það er fólk, fólk í ábyrgð­ar­stöðum sem vill ekki leyfa konum að hafa vald yfir lík­ömum sínum.“

Stefanía bendir á að „við höfum und­an­farið heyrt fréttir af vænt­an­legri nið­ur­stöðu hæsta­réttar Banda­ríkj­anna að snúa við Roe v Wade sem er þekktur dómur fyrir það að hann stað­festir að frelsi kvenna að ráða því hvort þær fari í þung­un­ar­rof. Ríki Banda­ríkj­anna mega því ekki setja lög sem skerða þetta frelsi. Nú er lík­legt að þetta breyt­ist og hopp­aði Oklahoma á vagn­inn og sam­þykkti hörð­ustu lög­gjöf í Banda­ríkj­unum þegar kemur að þung­ar­rofi. Lögin verða þess eðlis að það er bannað að fara í þung­un­ar­rof eftir getnað, (það mætti kannski segja þessum körlum að eng­inn fer í þung­un­ar­rof fyrir getnað).“

Einnig að „þung­una­rof er leyft ef konu er nauðgað eða ef um barn­a­níð sé að ræða en bara, athugið bara, ef það er kært til lög­reglu. Kona eða barn sem sagt þarf ekki bara að taka ákvörðun um hvort hún fari í þung­una­rof heldur þarf hún líka að kæra lík­lega ein­hvern nákom­inn. Við verðum að muna að allir þeir sem vinna gegn konum eru ekki gamlir karlar með heygafla. Oklahoma er bara frekar venju­legt fylki í Banda­ríkj­unum, þar er meira að segja sér­stakt safn sem fagnar kven­kyns frum­kvöðlum. Hug­mynda­fræði safns­ins er á þá leið að ef þau hefðu ekki átt þessar frum­kvöðla konur sem hafa sett svip sinn á Banda­ríkin í gegnum árin þá væru þau ekki Banda­ríkin sem þau eru í dag.“

Heldur áfram:

„Mikið vildi ég að þau myndu muna að hafa þessar konur í huga þegar þau banna konum að fara í þung­un­ar­rof þó þær vilji ekki ganga með barn.“

Stefanía færir í tal að „árið 2019 voru 18 þing­menn sem kusu gegn þung­un­ar­rofs lög­unum 2019 á Alþingi Íslend­inga. Við fögnum því ítrekað að vera í fyrsta sæti í jafn­rétti í heim­inum. En þýðir það að allt sé bara frá­bært hér? Nei svo sann­ar­lega ekki. Á Íslandi er enn kyn­bundið ofbeldi, kyn­bund­inn launa­munur og byrði kvenna í sam­fé­lag­inu er langt frá því að vera sú sama og karla. Við erum í fyrsta sæti því hin eru ekki góð í jafn­rétti, við erum bara aðeins betri í því. Við erum fremst meðal jafn­ingja ekki fremst meðal jafn­rétt­is­sinna. Og höfum í huga að ef við pössum okkur ekki t.d. þegar við kjósum full­trúa okkar í kosn­ingum þá getum við hratt fallið niður úr fyrsta sæti.“

Stefanía endar pistil sinn á þessum orðum:

„Framtíð okkar gæti verið sá raun­veru­leiki sem blasir við konum í Oklahoma eða í Banda­ríkj­unum ef við vöndum okkur ekki við val á full­trúum okkar. Það þurfti bara að kjósa einn hræði­legan for­seta í Banda­ríkj­unum og staðan gjör­breytt­ist fyrir allar konur þar í landi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð