Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fjórtán verið ákærðir fyrir hatursorðræðu: „Verðum að útrýma slíkri meinsemd“

Fjórtán verið ákærðir fyrir hatursorðræðu: „Verðum að útrýma slíkri meinsemd“
Lenya Rún

Frá árinu 2014 hefur lög­regl­unni borist 20 kærur vegna hat­urs­orð­ræðu. 14 ákærur hafa verið gefnar út, 5 mál hafa verið felld niður og í einu máli var rann­sókn hætt.

Lenyu Rún Taha Karim, sem er fyrsti Kúrdinn á Alþingi Íslend­inga, greindi frá því í við­tali við Kjarnann í síð­asta mán­uði að hún hefði íhugað að skila inn kjör­bréfi sínu vegna per­són­u­árása. Frétt sem unnin var upp úr við­tal­inu var síðan tekin út af vef Kjarnans vegna per­són­u­árása, ras­isma og hat­urs­orð­ræðu.

Nærri helm­ingur allra kæra eða 9 þeirra sem bár­ust árið 2015 má rekja til umræðu á útvarps­stöð­inni Útvarp Sögu um hinsegin fræðslu í grunn­skólum Hafn­ar­fjarðar. Af þessum níu málum voru sjö ákærur gefnar út. Sex voru sýkn­aðir og einn sak­felldur í hér­aðs­dómi. Tvö af mál­unum fóru fyrir Hæsta­rétt sem sak­felldi í þeim báðum.

Útrýma slíkri meinsemd

Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra

„Nið­ur­staða mín er að við getum lært ýmis­legt af því hvernig við höfum tek­ist á við orð­ræð­una um kyn­bundið ofbeldi og kyn­ferð­is­legt ofbeldi, og hvernig við getum reynt að vinna þvert á kerfið til að útrýma slíkri mein­semd,“ segir Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra í sam­tali við frétta­stofu Rúv.

Hat­urs­orð­ræða á ekki að líð­ast í íslensku sam­fé­lagi, segir for­sæt­is­ráð­herra. Hún vill sam­hæfa aðgerðir stjórn­valda og vinna mark­visst gegn þess­ari mein­semd í sam­fé­lag­inu.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir í sam­tali við frétta­stofu að hún hafi velt því tölu­vert fyrir sér hvernig best sé að takast á við vax­andi hat­urs­orð­ræðu og umræðu um hana sem sprottið hafi upp á und­an­förnum vikum og mán­uðum.

Mikilvægt að nýta hæfileika sýna í öruggu rými

„Það er mikið virði fólgið í því fyrir sam­fé­lagið að fólk geti nýtt hæfi­leika sína og verið í öruggu rými, ef svo má segja, í sam­fé­lag­inu. Algjör­lega óháð kyn­þætti, kyn­hneigð, eða hverju sem er,“ segir Katrín.

Ráðherra hefur ákveðið að skipa starfs­hóp sem fær það verk­efni að gera til­lögur að aðgerðum. Hún hefur þegar kallað eftir til­nefn­ingum frá þeim stofn­unum sem eiga eftir að skipa hóp­inn.

Þá er fyr­ir­hugað að hafa sam­ráð við hags­muna­að­ila og félaga­sam­tök sem hafa beitt sér á þessum vett­vangi. Katrín segir að hóp­ur­inn verði full­skip­aður um mitt sumar og stefnt sé að þvi að vinnu ljúki fyrir lok árs.

Í minn­is­blaði ráð­herra segir að meðal ann­ars verði unnið gegn hat­urs­orð­ræðu vegna kyn­þáttar, lit­ar­háttar, þjóð­ern­is­upp­runa, kyn­hneigðar og kyn­vit­undar fólks.

Eigi ekki að líðast

Katrín segir hóp­inn breiðan sem komi að vinn­unni og að horft verði heild­stætt á verk­efnið, þvert á stjórn­kerfið. Fyr­ir­byggj­andi aðgerðir, fræðsla og for­varnir í skóla­kerf­inu sem og á vinnu­mark­aði komi til álita.

„Það geta komið fram til­lögur um laga­breyt­ingar en líka til­lögur um almenna vit­und­ar­vakn­ingu. Við sjáum að hat­urs­orð­ræða getur virkað þannig að hún fælir fólk frá og bælir það niður. Þrengir að mögu­leikum fólks til að þroska sína hæfi­leika. Þannig að við lítum á þetta sem stórt sam­fé­lags­legt mál, fyrir utan það að við eigum bara ekk­ert að líða slíkt í okkar sam­fé­lagi.“

Í hópnum verða einnig full­trúar frá dóms­mála­ráðu­neyti, rík­is­lög­reglu­stjóra og sveit­ar­fé­lög­unum. Þá hefur for­sæt­is­ráð­herra kallað eftir full­trúum frá Mann­rétt­inda­skrif­stofu og Jafn­rétt­is­stofu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ