Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Dagur B. Eggertsson gefur loðin svör: „Aldrei sett einhverja úrslitakosti og aldrei útilokað neitt“

Dagur B. Eggertsson gefur loðin svör: „Aldrei sett einhverja úrslitakosti og aldrei útilokað neitt“
Dagur B. Egg­erts­son.

Borg­ar­stjóri Reykja­víkur, Dagur B. Egg­erts­son, segir að hann úti­loki ekki að hann muni gefa eftir sjálfan borg­ar­stjóra­stól­inn í yfir­vof­andi meiri­hluta­við­ræðum flokks­ins við Pírata, Viðreisn og Fram­sókn­ar­flokk­inn:

„Ég er mjög ánægður og held að þessi staða eftir kosn­ingar hafi kallað á það að hún fengi að krist­all­ast og fólk fengi að spreyta sig á að mynda mis­mun­andi meiri­hluta í þreif­ingum. Ég held að það sé afdrátt­ar­laust eftir þessa viku að þessi meiri­hluti getur orðið sterkur, fram­sýnn og góður fyrir Reykja­vík. Það er verk­efnið eftir kosn­ingar að ná að mynda meiri­hluta sem er góður fyrir þróun borg­ar­innar.“ sagði Dagur að loknum blaða­manna­fundi þar sem greint var frá meiri­hluta­við­ræðum áður­nefndra flokka:

„Í mínum huga erum við hér í dag einmitt vegna þess að það er býsna mikil mál­efna­leg sam­leið með þessum flokkum. Það eru auð­vitað atriði sem skera sig úr og við munum meðal ann­ars þurfa að fara yfir þau. En ég held að það sé ekk­ert óyf­ir­stíg­an­legt í þeim og er bjart­sýnn á fram­haldið.“

Og um borg­ar­stjóra­stól­inn eft­ir­sótta sagði Dagur:

„Ég held að fólk hafi tekið eftir því að ég hef aldrei, hvorki núna né í fyrri við­ræðum, sett ein­hverja úrslita­kosti. Ég held að það sé nú lyk­ill­inn að góðu sam­starfi að nálg­ast það af ákveð­inni festu en líka sann­girni. Það var auð­vitað ekki kosið um ein­stök emb­ætti. Við vitum að 35% Reyk­vík­inga vildu mig áfram en það skiptir ekki heldur öllu máli í dag, heldur að þessi hópur nái saman um verka­skipt­ingu sem að verði far­sæl út kjör­tíma­bilið,“ og að „ég hef aldrei úti­lokað neitt í því.

En við ætlum að byrja á því að ræða mál­efnin og svo ræðum við verka­skipt­ingu og sjáum hver nið­ur­staðan verður úr þeim sam­tölum.“

Aðspurður hvort til greina kæmi að skipta emb­ætti borg­ar­stjóra upp sagði Dagur:

„Slíkar hug­myndir verða að bíða betri tíma. Við byrjum á mál­efn­unum, svo kemur hitt inn. Ég held að það sé mjög far­sælt að hafa þá röð á hlut­unum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð