Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ungarnir í Ármúlanum – Ripp og Rapp stækka hratt en Rupp ekki: „Þetta er harður heimur“

Tryggvi í nærmynd
Tryggvi í nær­mynd

Ungarnir þrír sem tjalda­parið Tryggvi og Tryggvína eignuðust á dögunum vaxa nokkuð hratt þessi dægrin – það er að segja flestir.

Þannig er mál með vexti að tveir unganna, Ripp og Rapp, vaxa og dafna nokkuð vel á meðan Rupp er hálfdrættingur á við bræður sína að stærð og atgervi.

Blaðamenn Mannlífs urðu vitni að ansi spaugilegu atviki hjá ungunum í morgun. Þá kom Tryggvi með stærðarinnar ánamaðk handa þeim en sá litli greip hann og hljóp með hann í burtu. Rapp tók þá á rás á eftir honum en gafst að lokum upp. Því næst kom Tryggvi og tók orminn af þeim litla og gaf Rapp orminn. Þeim stutta leist ekkert á það og hljóp á eftir honum.

Þó að blaða­mönnunum hafi fundist þessi eltinga­leikur skemmtilegur er raun­veruleikinn á bak við hann allt annað en léttvægur. Mannlíf heyrði í líffræðingnum Sölva Rúnari Vignis­syni sem sérhæfir sig í tjöldum og spurði hann út í bæði fjölda unganna og stærð þeirra. „Þetta er mjög eðlilegur fjöldi unga en tjaldar verpa venjulega einu eggi og upp í allra mesta lagi fimm, en ég hef nú bara einu sinni séð það.“ Ástæðuna fyrir stærðar­muninum á ungunum segir Sölvi vera þá að tveir þeirra fái meira að borða en sá þriðji. „Þá eru þeir að gefa hinum tveimur meira að éta, þeir eru frekari. Þeir gera þetta af því að þeir halda að það sé ekki næg fæða handa þeim öllum. Þá einbeita þeir sér að þeim frekari og sá þriðji drepst. Þetta er harður heimur.“

Nú eru blaðamenn Mannlífs að skrifa upp björgunar­áætlun svo koma megi Rupp á legg en meira um það síðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Ökutækin eiga að efla þjónustu sveitarfélaga í Malaví
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá