Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Lögreglan skutlaði manni 60 kílómetra leið til að ná strætó: Sá barði strætóbílstjórann í klessu

Lögreglan skutlaði manni 60 kílómetra leið til að ná strætó: Sá barði strætóbílstjórann í klessu
Árásin á strætó­bíl­stjór­ann átti sér stað fyrir framan Hof á Akureyri

Eftir langa stræt­ó­ferð frá Reykja­vík til Akur­eyrar réð­ust tveir menn sem voru far­þegar í ferð­inni á strætó­bíl­stjór­ann og börðu hann illa, og er hann enn frá vinnu vegna árás­ar­innar.

Atburð­ar­rásin var ein­kenni­leg, því lög­reglan á Blöndu­ósi bland­að­ist inn í málið á frekar óvenju­legan hátt; lög­reglan skutl­aði félaga árás­armanns­ins til Varma­hlíðar meðan Strætó varð að bíða eftir honum. Einungis um klukku­stund síðar var ráð­ist á bíl­stjór­ann.

Við Blönduós

Komið hefur upp úr dúrnum að far­þeg­inn hafði á­samt ferða­fé­laga sínum verið til vand­ræða lung­ann úr ferð­inni frá Reykja­vík, að sögn bíl­stjór­ans.

Annar félag­anna tveggja var skil­inn eftir á Blöndu­ósi, en hann kom aftur inn í stræt­is­vagn­inn í Varma­hlíð, eftir að lög­reglan á svæð­inu hafði óskað eftir því að vagn­inn biði á meðan lög­reglan skutl­aði mann­inum sex­tíu kíló­metra leið frá Blöndu­ósi.

Tomasz, en það er nafn strætó­bíl­stjór­ans, er í veik­inda­leyfi; verður það í að minnsta kosti 2 vikur:

„Ég veit ekki hversu oft hann kýldi mig. Ég sat í bíl­stjóra­sæt­inu og hann kýldi mig. Ég má ekki kýla á móti og því reyndi ég að verja mig. Svo hætti hann en kom aftur stuttu seinna með vini sínum og þeir réð­ust á mig saman,“ segir hann og bætir við að eng­inn af þeim 20 far­þegum sem voru í vagn­inum hafi hjálpað sér.

Arn­fríður Gígja Arn­fríðs­dóttir

Hjá lög­regl­unni á Norður­landi eystra, stað­festir Arn­fríður Gígja Arn­gríms­dóttir, að á­rásin sé til rann­sóknar hjá em­bætt­inu.

Pétur Björns­son hjá lög­regl­unni á Norður­landi vestra segir boð hafa komið til emb­ætt­is­ins frá fjar­skipta­mið­stöð um vega­lausan mann á ráfi:

„Hann sagð­ist hafa misst af strætó á meðan hann keypti sér pylsu og varð­stjór­inn á­kvað, því það var bíll þegar á leið til Skaga­fjarðar, að hann gæti fengið far,“ sagði Pétur og við­ur­kennir að lög­reglan leggi það ekki í vana sinn að skutla fólki; hafi þetta verið gert sem greiði við mann­inn.

Eftir því sem Strætó hafði lög­reglan sam­band við stjórn­stöð fyr­ir­tæk­is­ins vegna far­þeg­ans sem skil­inn varð eftir á Blöndu­ósi; lög­reglan væri á alveg sömu leið; vildi koma mann­inum aftur um borð í stræt­is­vagn­inn.

Guð­mundur Heiðar Helgason upp­lýs­inga­full­trúi Strætó

Samkvæmt Guð­mundi Heiðari Helga­syni upp­lýs­inga­full­trúa Strætó hefur sam­starf við lög­regl­una ávallt gengið vel; því hafi stjórn­stöðin á­kveðið að biðja strætó­bíl­stjór­ann að bíða. Guð­mundur Heiðar segir lög­regl­una aldrei hafa farið fram á slíkt áður, en að at­vikið verði skoðað vel og vand­lega hjá stjórn­endum Strætó; hann segir beiðni lög­reglu að láta strætó bíða hafa vakið mikla undrun.

„Vanda­málið byrj­aði í Blöndu­ósi,“ segir Tomasz. Hann segir einnig að sem strætis­vagn­stjóri verði hann að fylgja á­ætlun í þaula og út­skýrir að hann hafi verið á Blöndu­ósi þegar einn far­þeg­inn segir við hann að hann þurfi að fara á kló­settið; Tomasz leyfir það, en segir honum að flýta sér – aðrir far­þegar séu að bíða:

„Ég fann af honum alka­hól­lykt en vildi ekk­ert vesen þannig ég sagði honum að flýta sér.“

Stuttu seinna hafi annar far­þegi, sem var með hinum í för, farið út að kaupa sér pulsu og að þá hafi verið lið­inn ansi langur tími; því hafi Tomasz sagt mann­inum að hann gæti ekki beðið lengur og keyrði af stað.

Vinur hans, sem eftir var í strætis­vagn­inum, reidd­ist mikið við þetta; bað hann að stöðva bíl­inn, sem Tomasz sagð­ist ekki mega; hann þurfi að halda á­ætlun:

Frá Varma­hlíð

„Ég varð að halda á­fram að keyra til Akur­eyrar og stjórn­stöð sagði þá við mig að ég væri að gera rétt. Svo þegar ég er kom­inn í Varma­hlíð þá heyri ég aftur í stjórn­stöð sem segir mér að bíða því að lög­reglan hafi haft sam­band og að þau séu að skutla far­þeg­anum sem ég skildi eftir aftur til mín.“

Tomasz beið eftir lög­regl­unni og far­þeg­anum í Varma­hlíð í um það bil kortér, og þegar lög­reglan var komin á stað­inn bað hann þá að ræða við far­þeg­ana tvo um að vera ró­legir:

„Lög­reglan kom inn, tal­aði við þá og sagði svo við mig að ef það yrðu meiri vand­ræði þá ætti ég að hringja í lög­regl­una á Akur­eyri.“

Lög­reglu­stöðin á Akureyri

Þegar til Akur­eyrar var komið, opnar Tomasz tösku­rýmið fyrir far­þega; bíður eftir því að þeir taki far­angur sinn, þegar annar mann­anna áður­nefndu kemur og seg­ist hafa týnt hring; sakar To­masz um stuld á hringnum. Tomasz neitar því, og segir að hann geti ekki hjálpað honum. Þá reidd­ist far­þeg­inn mjög svo mikið og seg­ist To­masz þá hafa tekið upp hringt á lög­regl­una.

En á meðan dundu höggin á honum og eng­inn kom til hjálpar.

Heimild: Frétta­blaðið

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð