Stórrar bilunar hefur orðið vart hjá Landsbankanum nú síðdegis. Viðskiptavinir komast ekki inn í heimabanka og starfsmenn bankans eru sömuleiðis ófærir um að komast inn í kerfið til að þjónusta fólk.
„Það er einhver allsherjar bilun. Þau komast ekki sjálf inn í kerfið, geta ekki þjónustað viðskiptavini í kerfinu, ekki millifært eða neitt slíkt,“ segir viðskiptavinur bankans í samtali við Mannlíf, sem hafði nýlokið símtali við starfsmann Landsbanka.
„Starfsmaðurinn sem ég talaði við sagðist ekki einu sinni hafa neinar frekari upplýsingar,“ segir viðskiptavinurinn.
Samkvæmt heimildum Mannlífs er verið að vinna að því að laga bilunina.
„Samkvæmt þessum starfsmanni komast þau ekki einu sinni sjálf inn í kerfið með neinu móti, eins og staðan er núna.“































Athugasemdir