Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Húsvíkingar með undirskriftarlista til stuðnings gerandanum – Fann fyrir andúð og slæmu viðmóti

Húsvíkingar með undirskriftarlista til stuðnings gerandanum – Fann fyrir andúð og slæmu viðmóti
Húsa­vík­ur­kirkja Mynd / Skjáskot

Aðgerða­hóp­ur­inn Öfgar héldu erindi á Kynja­þingi á laug­ar­dag­inn síð­asta í Háskóla Íslands og fjall­aði Mannlíf um þingið. Saga þolenda – hin raun­veru­lega slaufun, hét erindið og fjall­aði það um slauf­un­ar­menn­ingu og sögu þolenda í gegnum ald­irnar.

Erindi Öfga var fjöl­breytt og fróð­legt og þar á meðal var rætt um svo­kall­aða Húsa­vík­ur­málið. Með Húsa­vík­ur­mál­inu er átt við þegar þol­andi kyn­ferð­is­of­beldis mátti þola slaufun.

Stúlkan fór að finna fyrir andúð og slæmu viðmóti

Árið 1999 var 17 ára stúlku nauðgað á Húsavík. Stúlkan leit­aði strax til lög­reglu eftir nauðg­un­ina og lagði fram kæru dag­inn eftir.

Ger­and­inn ýmist neit­aði eða ját­aði á sig brotið í skýrslu­tökum lög­reglu en fyrir dómi við­ur­kenndi hann að hafa kannski haft þá á til­finn­ing­unni að stúlkan væri ekki til í þetta. Maðurinn var sak­felldur fyrir nauðgun og dæmdur í 15 mán­aða fang­elsi.

Eftir að dóm­ur­inn féll leið ekki á löngu þar til stúlkan fór að finn fyrir andúð og slæmu við­móti frá stórum hópi fólks í bænum. Fólk horfði undan þegar það mætti henni úti á götu og heils­aði henni ekki þegar hún afgreiddi það í verslun. Hún fékk nafn­laus sms með hót­unum og ljótum orðum. Þegar hún var úti að skemmta sér með vinum sínum gekk fólk upp að henni og sagði henni að hún væri ógeðs­leg og vinum hennar að passa sig á henni.

Þolendur kynferðisofbeldis skyldu varast að leita réttar síns

Ári eftir nauðg­un­ina var dóm­ur­inn stað­festur í Hæsta­rétti. Eftir þann dóm birtu for­eldrar stúlkunnar til­kynn­ingu í bæj­ar­blað­inu þess efnis að skila­boðin til dóttur þeirra sýndu svart á hvítu að þolendur kyn­ferð­is­of­beldis skyldu var­ast að leita réttar síns. Aðrar stúlkur sem urðu fyrir kyn­ferð­is­of­beldi á svip­uðum tíma hafa haft sam­band við hana og sagt að þær hafi ekki þorað að kæra vegna með­ferð­ar­innar sem hún fékk. Þær þorðu ekki að kæra af hræðslu við bæj­ar­fé­lagið.

Stúlkan flutti aldrei aftur til Húsa­víkur eftir þetta og kom sára­lítið til bæj­ar­ins því henni leið svo illa þar. Hún kláraði mennta­skóla í Reykja­vík og flutti síðan til Noregs þar sem hún býr enn og starfar sem læknir. Hún segir að þegar hún heim­sæki Húsavík upp­lifi hún aldrei þá til­finn­ingu að vera komin heim, þ.e. þessa ljúfu heim­komu­til­finn­ingu sem fyllir flesta þá sem heim­sækja æsku­slóðir sínar.

Undirskriftarlisti til stuðnings geranda hennar

Á 18 ára afmæl­is­dag­inn sinn fékk stúlkan síðan sím­tal frá prest­inum í bænum sem sagði henni að um bæinn gengi und­ir­skrift­ar­listi til stuðn­ings ger­anda hennar.

Ekki er vitað hver stóð að baki þessu fram­taki en vitað er að það var með vit­und og vilja hins dæmda og fjöl­skyldu hans. 113 manns skrif­uðu undir stuðn­ings­yf­ir­lýs­ing­una. Var það fólk á öllum aldri og meðal ann­ars fólk sem stúlkan og fjöl­skyldan hennar álitu vera vini sína. Yfir­lýs­ingin og list­inn voru síðan birt í bæj­ar­blað­inu. Þegar blaðið kom út var stúlkan flutt til Reykja­víkur, en fjöl­skylda hennar upp­lifði andúð­ina á götum bæj­ar­ins.

Fólk á list­anum veitti fjöl­miðlum við­töl og sögðu þar sumir að þeim fynd­ist að strák­ur­inn ætti að njóta vafans.

„Ég trúi því ekki að hann hafi gert þetta, hann er bara ekki þannig strákur,“ sagði einn stuðn­ings­maður.

Sagt var að pilt­ur­inn hefði alveg eins getað kært stúlk­una fyrir nauðgun, þetta hefði verið spurn­ing um hvort þeirra yrði á undan. Sagt var að hún hefði kært nauðgun til að forð­ast vand­ræði hjá kærasta sínum. En vin­kona stúlkunnar kom að henni og ger­and­anum og fylgdi henni heim til kærasta síns. Þau sem skrif­uðu undir stuðn­ings­yf­ir­lýs­ing­una þekktu málið bara af sögu­sögnum og höfðu lík­lega ekki lesið dóm­inn.

HÉR er hægt að hlusta á erindið í heild sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð