Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Vítalíumálið vefur upp á sig: Forstjórinn malaði gull, fordæmdi kynferðisofbeldi og missti starfið

Vítalíumálið vefur upp á sig: Forstjórinn malaði gull, fordæmdi kynferðisofbeldi og missti starfið
Eggert Þór Krist­ó­fers­son Mynd: n1.is

Mikil átök hafa verið að tjalda­baki eftir að Vítalía Lazareva sagði frá áreiti í potta­ferð með við­skipta­jöfrum í árs­lok 2020. Tveir pott­verj­anna, Hregg­viður Jónsson og Þórður Már Jóhann­es­son eru í hópi stærstu eig­enda Festi sem rekur meðal ann­ars Krónuna, N1 og Elko. Þórður Már vék úr stjórn Festi og Hregg­viður hætti sem stjórn­ar­for­maður Veritas vegna ásakan­anna. Málið hefur nú dregið dilk á eftir sér. 

Það vakti athygli í vik­unni þegar Eggert Krist­ó­fers­son, for­stjóri hjá Festi, sendi til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands um að hann hafi ákveðið að láta af störfum. Til­kynn­ingin kom fjár­festum í opna skjöldu og lækk­aði hluta­bréfa­verð fyr­ir­tæk­is­ins um 3,7 pró­sent í við­skiptum gær­dags­ins. Í for­stjóra­tíð Eggerts hefur Festi og fyr­ir­tæki sam­stæð­unnar skilað vænum hagn­aði. Ávöxtun hlut­hafa hefur verið með því hæsta sem sést hefur á Íslandi frá fjár­mála­hruni. Þykir Eggert hafa verið ein­stak­lega far­sæll í starfi og vel lið­inn innan fyr­ir­tæk­is­ins. Síð­ast­liðna 12 mán­uði hafa hluta­bréf í Festi hækkað um tæp 11 pró­sent og frá skrán­ingu fyr­ir­tæk­is­ins á hluta­bréfa­markað hefur gengi bréfa í Festi og for­vera þess hækkað um 865 pró­sent.

„Fordæmir allt ofbeldi og kynferðisbrot“

Til­kynn­ingin bar þess merki að Eggert sjálfur hefði skyndi­lega ákveðið að láta af störfum. Heim­ildir Mannlífs herma að svo var ekki. Eggerti var sagt upp störfum og honum tjáð að stjórn fyr­ir­tæk­is­ins vildi „breyta til“, sam­kvæmt heim­ildum Mannlífs. Heim­ildir herma að það hafi meðal ann­ars verið fyrir til­stilli hlut­haf­anna Þórðar Más og Hregg­viðs að for­stjór­inn var lát­inn fjúka. Þórður Már neydd­ist til að segja sig úr stjórn Festis og Hregg­viður hætti sömu­leiðis í stjórn Veritas eftir að fjöl­miðlar upp­lýstu um meinta ósæmi­lega hegðun þeirra gagn­vart Vítalíu Lazareva í sum­ar­bú­stað­ar­ferð­inni frægu. Vítalía greindi frá því í mars að hún hefði kært tví­menn­ing­ana ásamt Ara Edwald til lög­reglu vegna máls­ins. 

Í ágúst 2021 steig Eggert fram og gagn­rýndi for­ystu KSÍ vegna meintra kyn­ferð­is­brota sem þá voru til umfjöll­unar. Festi hefur verið einn af stærstu bak­hjörlum sam­bands­ins. Í sam­tali við mbl.is sagði Eggert: 

„Við hjá Festi sam­stæð­unni […] for­dæmum allt ofbeldi, og kyn­ferð­is­brot er eitt­hvað sem við líðum alls ekki. Mik­il­vægt er að tekið sé á slíkum málum af fag­mennsku með hags­muni brota­þola að leið­ar­ljósi.“

Heim­ild­ar­menn Mannlífs segja þá Þórð og Hreggvið vart hafa rætt við Eggert frá því meint kyn­ferð­is­brota­mál þeirra kom upp í fjöl­miðlum. Þeim deilum hafi lokið í vik­unni, þegar Eggert hætti störfum.  

Nýr forstjóri kynntur á næstu tveimur vikum

Í til­kynn­ingu segir að Eggert hætti störfum þann 1. ágúst næst­kom­andi. Þar seg­ir að Festi standi nú á tíma­mót­um eft­ir mikla upp­bygg­ingu und­an­far­inna ára og að Eggert telji að nú sé æski­legt að leitað verði til nýs ein­stak­lings til að leiða starf­semi þess.  Samkvæmt heim­ildum Mannlífs hófst leit að nýjum for­stjóra í vik­unni. Ýmis nöfn hafa verið nefnd og heim­ildir herma að nýr for­stjóri verði kynntur til sög­unnar á næstu tveimur vikum. Telja heim­ild­ar­menn að stjórn hafi nú þegar auga­stað á konu í for­stjóra­stól­inn. Ef af þeirri ráðn­ingu verður má ætla að það yrði hæst­laun­að­asta kona í sögu Kaup­hallar Íslands ef hún nyti sömu launa­kjara og Eggert.   

Laun Eggerts á árinu 2020 voru um 73 millj­ónir króna og heim­ildir Mannlífs herma að ráðn­inga­samn­ingur Eggerts tryggi honum ein árs­laun hið minnsta. Líklegt má þó telja að stjórn fyr­ir­tæk­is­ins hafi kosið að gera enn betur við for­stjór­ann far­sæla sem malað hefur gull fyrir hlut­hafa sína, gegn því að hann tjái sig ekki um starfs­lokin.

Mannlíf heyrði í Eggerti og spurði hann hvort satt væri að hann hafi í raun verið lát­inn hætta hjá Festi. „Ég held að þetta sé algjör­lega úti á túni, því miður.“

Ekki náð­ist í þá Hreggvið og Þórð við gerð frétt­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi