Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Ripp í uppreisn og farinn að heiman: Skellti sér í verslunarferð

Ripp í uppreisn og farinn að heiman: Skellti sér í verslunarferð
Tryggvi og Ripp eftir fyrsta flugið.

Í dag var dag­ur­inn sem frum­burður tjalda­hjón­anna Tryggva og Tryggvínu hóf sig til flugs. Ábúendur í Ármúla fylgd­ust átekta með kennslu­stundum for­eldr­anna, þar sem mátti sjá þá lokka ung­ana fram að brún þaks­ins á Ísól, þar sem fjöl­skyldan er búsett.

Blaða­menn Mannlífs nög­uðu á sér negl­urnar meðan þeir fylgd­ust með æfing­unum, efins um þroska ung­anna til að hefja sig til flugs. For­eldr­arnir hlytu að vera að mis­reikna sig.

Eins og Mannlíf hefur greint frá er einn ung­inn, Rupp, ansi smá­vax­inn ennþá. Blaða­menn þurftu að stand­ast þá freist­ingu að vaða upp á þakið að sækja þann stutta eftir að fugla­fræð­ingur tjáði þeim að senni­lega leggðu for­eldr­arnir meiri áherslu á hina tvo í fæðu­öflun; að þeir veðj­uðu á þá sterk­byggðu og að sá minnsti kæmi senni­lega ekki til með að lifa af.

Það gerir hann hins vegar enn sem komið er og sést gjarnan á fleygi­ferð um þakið með orm í gogg­inum, hlaup­andi undan stærri og fyr­ir­ferð­ar­meiri bræðrum sínum.

Á meðan blaða­menn reyndu að koma þeim skila­boðum á fram­færi við þau Tryggva og Tryggvínu að tríóið væri hreint ekki til­búið til að hætta sér út í hinn stóra heim lét Ripp vaða fram af þak­inu. Hann lenti þó ekki á bílaplan­inu við Ísól, eins og venjan er hjá ungum hjón­anna ár hvert, heldur kastað­ist hann heldur klaufa­lega til um loftið, niður á næsta plan fyrir neðan.

Hvað er planið núna, hald­iði?

Þá voru góð ráð dýr. For­eldr­arnir héldu aftur upp á þak að reyna að sann­færa hina tvo um að skella sér á eftir bróður sínum. Það tóku þeir Rapp og Rupp hins vegar ekki í mál. Á meðan hljóp Ripp um neðra bílaplanið, hreint ekki eins hug­aður og hann hafði verið ein­ungis stuttu áður. Blaða­menn og aðrir vel­unn­arar í nágrenn­inu átt­uðu sig fljót­lega á því að sá stutti væri lík­lega ekki alveg jafn fleygur og hann hafði viljað vera að láta. Þegar blaða­menn Mannlífs brugðu sér á planið hjá Ísól til þess að ná nokkrum myndum af Ripp á neðra plan­inu sáu þeir sér til hryll­ings hvar hann lét sig hverfa niður fyrir bygg­ing­arnar sem snúa út að Suð­ur­lands­braut. Þetta gat ekki endað vel.

Blaða­menn létu sig því gossa fim­lega niður veggi og steypu­styrkt­ar­járn til að kanna aðstæður. Þegar komið var niður á bíla­plönin við Suð­ur­lands­braut var Ripp hvergi sjá­an­legur (blaða­menn leit­uðu undir bílum og létu engan flöt ósnertan).

Tryggvi, úfinn, leitar að Ripp.

Þegar komin var upp­gjöf í mann­skap­inn og næsta víst að Ripp hefði steypt sér í glötun kom í ljós að hann var aftur mættur upp á bílaplanið. Hann hafði þá gert sér lítið fyrir og skellt sér inn í verslun. Ekki er vitað hvað hann ætl­aði sér að aðhaf­ast þar eða hvað ævin­týra­þyrstir ungar almennt girn­ast í versl­unum, en starfs­menn versl­un­ar­innar gengu vask­lega til verks og tóku hann mjúk­lega í fangið, þar sem hann hafði tekið sér ból­festu uppi við inn­rétt­ingu. Starfs­maður skil­aði svo stroku­fang­anum aftur upp á planið, þar sem hann hljóp um nokkra stund í taugatrekk­ingi, en óskadd­aður að öðru leyti.

Þegar þetta er skrifað virð­ast þeir Rapp og Rupp enn haf­ast við á þak­inu og Tryggvi og Tryggvína hafa fullt í fangi með að fá frum­burð­inn til að halda sig innan bílaplans­ins, enda margt sem hug­ur­inn girn­inst þegar einu sinni hefur verið skyggnst inn í verslun.

Var þetta skyn­sam­leg­asti lend­ing­ar­stað­ur­inn, Ripp?

Hér fyrir neðan gefur að líta mynd­band af Ripp, tekið úr öruggri fjar­lægð (myndin hefur verið færð nær), þar sem annar blaða­maður heyr­ist stynja úr áhyggjum, á meðan hinn dáist að hraða og leikni hins fiðr­aða land­könn­uðar:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina