Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Bogi Ágústsson fréttamaður: „Ég var svo heppinn að það varð ekkert tjón á hjartavöðvanum í mér“

Bogi Ágústsson fréttamaður: „Ég var svo heppinn að það varð ekkert tjón á hjartavöðvanum í mér“

Í kvöld­við­tali Mannlífs ræðir Bogi Ágústs­son, frétta­maður hjá RÚV, við Reyni Trausta­son. Bogi rifjar meðal ann­ars upp þegar hann var háseti á skipum Eimskipa, ræðir Sam­herj­a­málið og kynni hans af Margréti Dana­drottn­ingu.

„Mér finnst það bara hræði­legt,“ segir Bogi Ágústs­son um Sam­herj­a­málið í við­tali við Reyni Trausta­son.

Starfs­menn RÚV krumu málið til mergjar. Farið var til Namibíu, þeir upp­ljóstr­uðu um mútur þar, það var líka farið til Færeyja og var upp­ljóstrað um svik þar og stór­fyr­ir­tæki, Samherji, er í spil­inu. Svo byrj­uðu þessar gríð­ar­legu árásir, sér­stak­lega hvað varðar Helga Seljan, fyrr­ver­andi starfs­mann RÚV.

„Það er nán­ast glæp­sam­legt hvernig var komið fram við Helga Seljan.“

Svo kom þetta skip­stjóra­mál upp og sagt að sím­inn hans hafi verið brot­inn upp inni á RÚV. Hvernig er þetta mál vaxið í huga Boga?

„Það er dálítið erfitt að vita hversu langt ég get gengið í að tala um þetta mál opin­ber­lega. Ég hætti sem frétta­stjóri fyrir all­nokkru þannig að ég þekki það ekki í þeim smá­at­riðum sem þeir sem stjórna frétta­stof­unni gera sem háir mér aðeins. Annað er að þetta er til rann­sóknar og fyrir dóm­stólum þannig að ég þarf að fara mjög var­lega í það sem ég segi. Ég held að fyrir yfir­gnæf­andi meiri­hluta lands­manna þá sé það alveg klárt að þarna er stór­fyr­ir­tæki staðið að því að koma fram á erlendum vett­vangi á þann hátt að ef það er ekki lög­brot þá er það sið­laust. Og í stað­inn fyrir að segja „hingað og ekki lengra, nú tökum við sjálf okkur í gegn“ þá er farið í það að reyna að drepa þann sem kemur með skila­boðin.“

Og það er gert á hreint ótrú­lega ósvíf­inn hátt.

Boð­ber­ann.

„Shoot the messen­ger. Og það er gert á hreint ótrú­lega ósvíf­inn hátt og maður getur séð umtalið í þess­ari svoköll­uðu skæru­leiða­deild Samherja. Það er með ólík­indum. Og það sem virð­ist vera er það að þetta fólk átti sig ekki á því að það sé að gera eitt­hvað af sér. Ásak­an­irnar sem hafa verið bornar á ein­staka starfs­menn Rík­is­út­varps­ins; þarna er fólk sem er að vinna af full­komnum heið­ar­leika sína vinnu.

Rík­is­út­varpið hefur á und­an­förnum árum komið upp um fullt af hlutum í gegnum rann­sókn­ar­blaða­mennsku; það sem frétta- og blaða­menn eiga að vera að gera. Við eigum að hafa ákveðið eft­ir­lit með þessu sam­fé­lagi og við eigum að segja frá því og koma upp um það þegar for­sæt­is­ráð­herra á leyni­fé­lag á Tortola. Þetta er bara okkar hlut­verk. Og nákvæm­lega það sama gildir um Samherja. Það er alveg sama hver það er; það er okkar hlut­verk að skýra frá þessum stað­reyndum.“

Bogi Ágústs­son hefur um langt ára­bil lesið fréttir fyrir lands­menn.

Það kallar á mik­inn hita þegar rík­is­fjöl­mið­ill­inn fer í rann­sókn­ar­blaða­mennsku; þá kallar þetta á ein­hvern hita sem þið gætuð alveg sloppið við með því að halda úti svona kurt­eislegri Rás 1 og vera ekk­ert að þvæl­ast inn á jarð­sprengju­svæðin.

„Ég dáist að hug­rekki og stað­festu þeirra stráka – þetta voru aðal­lega strákar – sem voru að vinna að þessu máli. Það er mjög erfitt þegar farið er að njósna um þig, það er farið að sitja um þig og það kemur ein­hver maður sem er ógn­andi. Hvert er sið­ferði þess fólks sem ber ábyrgð á slíkri fram­komu?“

Við sjáum eftir þeim öllum.

Þessir þre­menn­ingar – Stefán, Helgi og Aðal­steinn – eru allir hættir. Er það ekki svo­lítið sorg­legt?

„Jú, það er mjög sorg­legt. Við sjáum eftir þeim öllum.“

Bogi segir að allur vinnu­stað­ur­inn hafi staðið með þeim; starfs­fólkið. „Og við tókum ofan af fyrir þeim fyrir hug­rekki þeirra og þraut­seigju. Seiglan sem var í þeim að berja sig í gegnum þetta.“

Fannst ekki

Bogi Ágústs­son er sjó­manns­sonur.

„Faðir minn var sjó­maður; hann var stýri­maður og svo skip­stjóri hjá Eimskip. Það var alveg ljóst frá upp­hafi að ég gat ekki farið þá leið vegna þess að á þessum tíma gastu ekki farið í Stýri­manna­skól­ann nema þú hefðir full­komna sjón og ég var nær­sýnn alveg frá bernsku þannig að það var í raun­inni alveg lokað fyrir mér.

Þegar ég var 17 til 18 ára hafði ég áhuga á að feta í fót­spor afa míns sem var læknir. Þess vegna fór ég í nátt­úru­fræði­deild í MR. Ég inn­rit­að­ist í lækna­deild­ina í háskól­anum og ég sat þar í heilan klukku­tíma. Ég var svo lengi vegna þess að um leið og ég sett­ist niður í fyrsta kynn­ing­ar­tím­ann þá vissi ég að þetta var ekki fyrir mig. Ég var í klukku­tíma vegna þess að ég kunni ekki við að standa upp og ganga út fyrr en þessi kynn­ing á nám­inu var búin. Þetta var í hátíð­ar­sal háskól­ans í aðal­bygg­ing­unni þannig að ég stóð upp, tók tösk­una mína og labb­aði út í Árnagarð og inn­rit­aði mig í íslensku og sögu. Þar átti ég milku frekar heima.“

Við lentum í því að leita að báti sem hafði farist á milli Íslands og Færeyja og fannst ekki.

Bogi var háseti hjá Eimskip öll mennta­skóla- og háskóla­árin. „Skelfi­legar minn­ingar er þegar ég fór að vetri til þegar ég var kom­inn í háskól­ann sem háseti á Fjall­fossi og við lentum í því að leita að báti sem hafði farist á milli Íslands og Færeyja og fannst ekki.“ Það var aftaka­veður. „Fjall­foss er nátt­úr­lega stórt skip miðað við fiski­skip en það var engin leið; það var bara að slá af og sigla upp í og við komumst hvorki lönd né strönd.“

Það var skelfilegt

Það var á háskóla­ár­unum sem kunn­ingi Boga sá aug­lýs­ingu þar sem aug­lýst var laust starf frétta­manns í erlendum fréttum hjá Sjón­varp­inu. „Honum þótti þetta vera starf sem myndi henta mér og ég sótti um og mér til mik­illar furðu þá fékk ég starfið.“

Og Bogi Ágústs­son hefur starfað þar í ára­tugi. „Það eru 45 ár síðan ég hóf störf hjá RÚV og frétta­stofu Sjón­varpss­ins sem þá var. Ég hef verið frétta­les­ari í svona 42 ár.“

Hver eru verstu mis­tökin?

„Ég hef verið svo bless­un­ar­lega lán­samur að mér vit­an­lega hef ég ekki gert nein skelfi­leg mis­tök. Verstu mis­tökin sem ég man eftir er að þegar ég var frétta­maður í Kaup­manna­höfn var ég að skrifa frétt frá Græn­landi sem ég fékk frá Danmarks Radio; ég man ekki af hverju moskusuxar voru frétt­næmir á þessum tíma og ég bara skrif­aði um moskusuxa og það var ekki fyrr en ég var búinn að senda frétt­ina frá mér að ég fatt­aði að moskusuxar eru sauð­naut. Og sauð­nautið í þessu til­felli var ég.“

Hver eru erf­ið­ustu málin sem Bogi hefur feng­ist við?

„Ég var ekki á vett­vangi þegar snjó­flóðin voru fyrir vestan en þau eru það sem hefur tekið mest á mig. Án efa.“

Þetta var svo átak­an­legt og maður gleymir því aldrei.

Snjó­flóðin á Súðavík og Flateyri.

Bogi talar um við­tal sem hann tók við Hafstein Númason en hann og þáver­andi kona hans misstu þrjú börn í snjó­flóð­inu í Súðavík. „Það að tala við Hafstein Númason í sjón­varps­stúd­íó­inu er eitt­hvað sem ég gleymi aldrei. Þetta var svo átak­an­legt og maður gleymir því aldrei. Versta augna­blikið var held ég þegar ég þurfti að lesa upp nöfn þeirra í beinni útsend­ingu sem höfðu lát­ist á Flateyri. Það var skelfi­legt.“

Þá koma gusur

Það eru ekki alltaf allir sáttir við frétta­flutn­ing­inn og segir Bogi að þegar fólk sé í blaða­mennsku þá sé það svo ein­falt að það séu ekki allir ánægðir með það sem komi frá við­kom­andi eða rit­stjórn­inni.

„Og þá koma gusur og það er bara partur af líf­inu. Þú verður bara að vera öruggur um það að þú hafir unnið þína vinnu eins vel og heið­ar­lega og þér var unnt og vita að þú hafir ekki verið að skrifa eða gera neitt í ein­hverjum ann­ar­legum til­gangi. Það er svo oft sem fólk er að gera blaða­mönnum upp ein­hvern til­gang með fréttum sínum. Fyrir mér er frétt eitt­hvað sem fólk á og þarf að vita. Eða vill vita. Ég hef aldrei verið að skrifa frétt í þeim til­gangi ann­að­hvort að koma ein­hverjum vel eða illa eða auð­velda ein­hverjum fram­gang. Við erum þjónar þeirra sem við erum að skrifa fyrir. Þannig að hjá Rík­is­út­varp­inu er það þannig að það er nátt­úr­lega skrifað í lög: Við erum almanna­þjón­ustu­út­varp. Við erum að þjóna almenn­ingi. Og það er bara hlut­verk sem við tökum alvar­lega; þó við förum ekki með bænir um þetta á hverjum frétta­fundi þá er þetta inni í hausnum á öllum. Þetta er partur af grunn­inum sem þú gengur út frá þegar þú ert að vinna og gera fréttir.“

Við erum getum við sagt póli­tískt viðr­ini.

Hvað mað hug­takið „blá­skjár“?

„Stór hluti sjálf­stæð­is­manna virð­ist vera sann­færður um það að við séum öll í Sam­fylk­ing­unni ef ekki lengra til vinstri. Þegar ég var í því að ráða fólk til Rík­is­út­varps­ins þá voru það skil­yrði hjá okkur að fólk væri ekki í virkri póli­tískri þát­töku. Þegar ég byrj­aði var ég hægri­maður. Ég var í Vöku í háskól­anum og hafði verið í Sjálf­stæð­is­flokknum. Ég nátt­úr­lega gekk úr þessu öllu þegar ég byrj­aði að vinna sem fréttaamður. Og ég ætl­að­ist til þess af þeim sem komu til okkar að þeir skildu sína póli­tíska foríð að baki þegar þeir byrj­uðu að vinna hjá okkur.

Við erum getum við sagt póli­tískt viðr­ini; vegna þess að þegar þú vinnur hjá fjöl­miðli þá er mjög erfitt að binda trúss þitt við ein­hvern póli­tískan flokk vegna þess að þegar þú ert geng­inn í það lið þá verður þú að verja hann alveg sama hvað ger­ist, þú verður að úthúða and­stæðin­unum alveg sama hvað ger­ist eða hvað er verið að segja eða hver mástað­ur­inn er. Við erum póli­tísk viðr­ini; við erum ekki að ganga erinda eins eða neins.“

Erfitt fyrst

Bogi var frétta­stjóri og segir hann að það hafi eig­in­lega verið þannig að Páll Magn­ús­son, þáver­andi útvarps­stjóri, hafi rekið sig.

Hver slær hend­inni á móti slíkum díl?

„Þegar Palli Magg tók við sem útvarps­stjóri þá skipti hann um alla fram­kvæmda­stjórn­ina. En Palli Magg gerði mér alveg svaka­legan greiða. Ég var búinn að vera í „administration“ í yfir 20 ár. Stundum hugs­aði ég með mér hver mun­ur­inn væri á því að vera hér í „administration“ eða vera ein­hver deild­ar­stjóri eða skrif­stofu­stjóri í ráðu­neyti. Þetta eru fundir, þetta eru starfs­manna­mál, þetta eru vakta­töflur og stórt atriði voru fjár­hags­mál. Þetta tók alltaf meiri og meiri tíma fannst mér. Ég var að fjar­lægj­ast frétt­irnar sjálfar. Palli bauð mér að halda áfram; ég hélt launa­kjör­unum sem ég var með, hann bauð mér að vera mjög frjáls í vinnu og ég fékk eig­in­lega þann díl sem eng­inn maður getur sagt „nei“ við: Þú mátt gera það sem þú vilt, þegar þú vilt, koma þegar þú vilt og fara þegar þú vilt. Skyld­urnar voru að lesa fréttir. Hver slær hend­inni á móti slíkum díl?“

Fórstu alveg ósáttur frá þeim leik?

„Auðvitað var þetta erfitt fyrst en mjög fljót­lega átt­aði ég mig á því að Rík­is­út­varpið hafði bara gert mér mjög gott til­boð sem ég tók. Já, ég fór algjör­lega ósár frá því.“

Og þú ert í dag stærri heldur en frétta­stjóri; þú ert svo­lítið idol fyrir frétt­irnar.

„Það verða aðrir að meta. Ég bara stend þarna og les fréttir og geri þetta eins vel og mér er kostur.“

Hann fór í gras­rót­ina.

„Ég byrj­aði hjá Rík­is­út­varp­inu til að skrifa fréttir, erlendar fréttir, og það hafði ég fjar­lægst mjög. Það er eng­inn sem segir að maður sem er þokka­lega góður í því að skrifa fréttir þurfi endi­lega að vera þokka­lega góður stjórn­andi. Ég held ég hafi ekki verið slæmur stjórn­andi; það er ann­arra að dæma. Þarna allt í einu fór að verða ofsa­lega gaman að fara aftur í vinn­una.“

Það er bull

Stríðið í Úkraínu og Pútín berst í tal og segir Bogi að þetta gæti farið skelfi­lega.

„Við erum að tala um kjarn­orku­veldi sem er undir stjórn manns sem margir hafa efa­semdir um að sé heill á geðs­munum eða sé heill almennt. Og þetta er ein­ræð­is­ríki. Það er eng­inn sem getur mælt honum í móti og þetta er gríð­ar­lega hættu­legt ástand. Þetta getur ekki endað vel vegna þess að það hafa slíkir atburðir þegar gerst að þó að stríðið stöðv­að­ist á morgun þá væri það ekki góður endir. Það væri sá skásti af mögu­legum endum á þessum átökum. En ég fæ ekki séð að Úkra­ínu­menn sætti sig nokkru sinnu við það að missa yfir 20% af sínu landi. Ég fæ ekki séð með hvaða hætti Pútín getur sætt sig við annað heldur en það sem hann lýsti yfir að væru mark­miðin frá upp­hafi, það er að segja að „frelsa“ Donbass-svæðið. Það er samt sem áður skásta nið­ur­staðan að átök­unum linni og það verði hægt að semja um frið. En ég er mjög svart­sýnn á að það verði hægt, því miður.

Ef það er eitt­hvað sem hefur eflt þjóð­ern­is­vit­und Úkra­ínu­manna þá er það þessi inn­rás Rússa.

Eitt af því sem þessi átök hafa leitt í ljós er það að þessi sögu­skoðun Pútíns um það að Úkraína sé í raun og veru ekki til, hún sé bara partur af Rúss­landi, og Úkra­ínu­menn, sér­stak­lega þeir sem hafa rúss­nesku að móð­ur­máli, séu í raun og veru Rússar: Það er bull. Yfir­gnæf­andi meiri­hluti Úkra­ínu­manna, hvort sem þeir hafa rúss­nesku að móð­ur­máli eða ekki, hafa snú­ist til varnar. Ef það er eitt­hvað sem hefur eflt þjóð­ern­is­vit­und Úkra­ínu­manna þá er það þessi inn­rás Rússa.

Ég hélt að borg­ara­styrj­öldlin í fyrr­ver­andi Jógóslavíu væri und­an­tekn­ing vegna þess að þar var leyst úr læð­ingi ástand sem hafði verið fryst ára­tugum saman. Ég hélt að það væri und­an­tek­in­ingin sú skelf­ing sem gerð­ist þar. En að það yrði styrj­öld í Evrópu á 21. öld­inni hélt ég að væri ekki mögu­legt. Maður batt vonir við það eftir fall Sov­éríkj­anna að Rússland yrði lýð­ræð­is­ríki og myndi taka þátt í alþjóð­legri sam­vinnu en það var og er engin lýð­ræð­is­hefð í Rúss­landi. Það er greini­lega þrá eftir ein­hverjum sterkum manni. Stalín er ennþá hafður í hávegum þar. Fyrir mér er Stalín ekki minni glæpa­maður heldur en Adolf Hitler. Og ef eitt­hvað þá var hann verri.“

Ekkert tjón á hjartavöðvanum

Bogi hefur marga hitt á ferl­inum og þar á meðal þjóð­höfð­ingja. Kónga og drottn­ingar. Hann segir að stundum gangi þetta genetíska lott­erí vel. „Það má segja að bæði Bretar og Danir hafi verið mjög heppnir með sína þjóð­höfð­ingja, sér­stak­lega Danir. Ég ber mikla virð­ingu fyrir Margréti Dana­drottn­ingu. Hún er mjög vel menntuð, mjög upp­lýst og hún er með res­er­veruð, sér­stak­lega fyrst þegar maður er að tala við hana. Þegar við vorum búin að tala saman í tals­verðan tíma var hún orðin miklu afslapp­aðri.“

Og Margrét Dana­drottn­ing bauð Boga Ágústs­syni sígar­ettu. Tyrk­neska sígar­ettu.

„Ég reykti á þessum tíma þegar ég hitti hana fyrst. Þannig að ég fékk tyrk­neska sígar­ettu. Það var býsna sterkt. Ég veit ekki hvort hún hafi verið að reykja það almennt eða ekki.“

Ég var hins vegar svo hepp­inn að ég fékk þetta heima hjá mér á föstu­dags­kvöldi.

Bogi var hættur að reykja þegar hann fékk hjarta­á­fall á sínum tíma.

„Þetta er ætt­ar­sjúk­dómur. Faðir minn var innan við fimm­tugt þegar hann fékk kransæða­stíflu. Hann var illu heili staddur fjarri allri lækn­is­hjálp. Hann var skip­stjóri á Fjall­fossi og staddur í Rúmeníu. Þetta var eftir ógn­væn­lega jarð­skjálfta sem nán­ast lögðu Búkarest í rúst. Það höfðu allir læknar í hafn­ar­borg­inni verið kall­aðir til höf­uð­borg­ar­innar þannig að það var eig­in­lega enga lækn­is­hjálp að fá. Þannig að hann varð fyrir miklum skaða á hjarta­vöðv­anum. Ég var hins vegar svo hepp­inn að ég fékk þetta heima hjá mér á föstu­dags­kvöldi og þó þetta væru ekki þessi típísku ein­kenni kransæða­stíflu þá þótt­umst við konan mín nokkurn veg­inn vita hvað væri í gangi þannig að við hringdum á sjúkra­bíl sem var kom­inn á innna við 10 mín­útum og ég fékk með­ferð einn, tveir og þrír. Ég var svo hepp­inn að það varð ekk­ert tjón á hjarta­vöðv­anum í mér.“

Viðtalið má sjá hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð