Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Ráða fólki frá hundum með „klesst“ andlit: „Allir hundar eiga skilið að fæðast við góða heilsu“

Dýra­læknar í Bretlandi hvetja fólk til þess að „staldra við og hugsa sig um“ áður en það kaupir sér hrein­ræktaða enska bolabíta. Þetta er vegna umtals­verðra heilsufars­kvilla sem hrjá tegundina í miklum mæli. Fólki sem þegar á slíka hunda er ráðlagt að fylgjast vel með heilsu­fari dýranna og leita sér ráðlegginga sérfræðinga ef þeir verða varir við einkenni.

Samkvæmt niður­stöðum rann­sóknar sem gerð var á tegundinni af Royal Veterinary College er tegundin við verri heilsu en aðrar hunda­tegundir almennt. Er þetta sagt vera vegna öfga­kenndrar líkams­byggingar þeirra. Þetta kemur fram hjá Sky News.

Skaðleg einkenni vinsælust

Það vekur athygli að þau einkenni tegundarinnar sem hafa hvað verst heilsufarsleg áhrif á dýrin, eru sömu einkenni og gerir tegundina eftirsóknar­verða enn þann dag í dag. Þar má nefna flatt eða klesst andlit, djúpar húðfellingar í andliti og háværa öndun. RVC segir nauðsynlegt að líta á einkennin sem alvarleg heilsufarsleg einkenni, en ekki eðlileg eða jafnvel eftirsóknar­verð.

Allir hundar eigi skilið að fæðast við góða heilsu

Einkennandi og ýkt trýni tegundarinnar, útstæður neðri kjálki og þétt líkams­bygging tengist ýmsum alvarlegum heilsufars­vandamálum.

„Allir hundar eiga skilið að fæðast við góða heilsu og hafa náttúru­lega getu til að anda frjálst, blikka augum eðlilega, hreyfa sig auðveldlega, hafa heilbrigða og slétta húð, makast og fæða afkvæmi,“ segir Dr. Dan O’Neill, aðal­höfundur skýrslunnar og dósent í faralds­fræði gæludýra við RVC.

„Í tilfelli tegunda eins og enskra bolabíta, þar sem  margir hundar eru enn með öfgakennt sköpulag og við slæma meðfædda heilsu, hefur almenningur ríku hlutverki að gegna. Almenningur ætti að krefjast hunda með sköpulag sem í það minnsta er í meðallagi gott.

Þangað til ættu væntanlegir eigendur að staldra við og hugsa sig um, áður en þeir kaupa hund með flatt andlit.“

Dr. Alison Skipper, meðhöfundur rann­sóknarinnar, segir niður­stöðurnar staðfesta það að leita þurfi til ábyrgra ræktenda, sem forgangs­raði heilsu­fari í ákvörðunum sínum varðandi ræktun á hundum, svo bæta megi velferð þessarar vinsælu og merku tegundar í fram­tíðinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt