Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Hundasveitin leitaði að Balto í þrjá og hálfan sólarhring: „Þetta var þvílíkur eltingaleikur“

Hundasveitin leitaði að Balto í þrjá og hálfan sólarhring: „Þetta var þvílíkur eltingaleikur“
Hunda­sveitin Mynd: Aðsend

Husky-hund­ur­inn Balto slapp af nýja heim­ili sínu í Hafn­ar­firði á föstu­dag­inn eftir að hann hopp­aði yfir pall­vegg heima hjá sér. Eftir þriggja daga þrot­lausa leit sjálf­boða­liða fannst hann loks.

Sjálf­boða­lið­arnir í Hunda­sveit­inni leit­uðu ásamt eig­and­anum í þrjá sól­ar­hringa að Balto sem var ekki á þeim bux­unum að láta ná sér. Mannlíf heyrði í einum með­limi Hunda­sveit­ar­innar, henni Söndru Ósk Jóhanns­dóttur og spurði hana fyrst út í Hunda­sveit­ina. Hvernig varð hún til?

Sandra Ósk Jóhann­es­dóttir

„Við stofn­uðum Hunda­sveit­ina form­lega á nýársnótt 2020-21. Þá vorum við úti í skógi í Hafn­ar­firði að grilla pylsur, til að reyna að lokka sex mán­aða gamlan hvolp sem fæld­ist af heim­ili sínu vegna flug­elda. Í raun vorum við búnar að vera nokkrar að hitt­ast í leitum af dýrum en það var alltaf sama fólkið sem bauðst til að leita. Við kynnt­umst þannig og hugs­uðum „Af hverju gerum við ekki eitt­hvað úr þessu?“ og þannig var Hunda­sveitin form­lega stofnuð,“ sagði Sandra Ósk sem var í óða­önn við að koma sér í vinn­una.

En aftur að björgun Balto, hvernig gekk hún fyrir sig?

„Við fengum til­kynn­ingu um níu leitið síð­asta fimmtu­dag, þann 16. júní, að það væri týndur hundur sem að stökk yfir vegg á pall­inum heima hjá sér í miðbæ Hafn­ar­fjarðar. Hann var bara nýkom­inn til nýs eig­anda, hafði bara verið hjá honum í fjóra daga. Hann kom af sveitabæ nálægt Egils­stöðum þannig að hann þekkti ekki umhverfi sitt og þekkti í raun ekki umferð heldur,“ sagði Sandra Ósk en Hunda­sveitin fer strax af stað þá um kvöldið en eftir að hafa leitað í dágóða stund gerði sveitin hlé á leit­inni því Balto átti það víst til, að sögn fyrri eig­and­ans, að fela sig í runnum og gróðri þannig að ómögu­legt væri að finna hann þar sem hann gæti verið hvar sem er í raun. Þannig að Hunda­sveitin tók stöð­una og ákvað að halda heim á leið og halda áfram leit dag­inn eftir.

„En þegar ég er kom­inn heim fengum við til­kynn­ingu um að Balto væri í fjör­unni við hunda­svæðið Bala. Þannig að við fórum þangað og hann sást en hann vildi ekki láta ná sér. Hann var samt ekki í þeim gír að flýja strax heldur horfði hann á mann lengi, sér­stak­lega á hana Önnu sem er í Hunda­sveit­inni en ákvað svo að hann vildi ekki koma til hennar. Þannig að þetta var meira þannig að hann vildi ekki láta ná sér en að hann væri eitt­hvað hræddur,“ sagði Sandra Ósk og sagði að partur af Hunda­sveit­inni hafi verið á svæð­inu til klukkan fjögur um nótt­ina en ekk­ert gekk upp og að lokum lét Balto sig hverfa á nýjan leik.

Sandra Ósk dauð­þreytt við leit­ina.

Daginn eftir fékk Hunda­sveitin fullt af til­kynn­ingum um að Balto hafi sést á Reykja­nes­braut­inni og þar í kring. Að sögn Söndur Óskar var hund­ur­inn afar fljótur yfir og sást á mörgum stöðum. Hunda­sveitin fór því aftur á vett­vang í von um að finna Balto. „En svo hætta bara til­kynn­ing­arnar og hann byrjar aftur að leggj­ast í felur. Og þá er ekki hægt að gera neitt nema bíða og sjá því hann gæti í raun verið hvar sem er. En fólk var alveg að rúnta um og hafa augun hjá sér og svona. Og svo á föstu­dags­kvöldið fer hann aftur á stjá og hann sést af mjög mörgum leitar­að­ilum, bara úti um allt. Við vorum örugg­lega um 20 til 30 alls að rúnta þarna um og sumir á fótum eins og ég. En svo hægist aftur á þessu því hann fer enn einu sinni í felur. En svo sér ein mann­eskja Balto í runna rétt hjá Lækj­ar­skóla en þegar hún nálg­ast hann hleypur hann í burtu.“ Fólk hélt áfram að rúnta um og leita að hvutta en Sandra Ósk, ásamt Eygló og Önnu úr Hunda­sveit­inni leit­uðu í runna með vasa­ljósi til klukkan fjögur um nótt­ina án árang­urs.

Ekkert spurð­ist til Balta þar til sól­ar­hring síðar er Hundaasveitin fékk ábend­ingu frá stúlku sem sagð­ist hafa séð hann í Heiðmörk. „Þannig að hann var kom­inn langt frá þeim stað sem hann sást síð­ast á og það meik­aði alveg sens að hann skyldi vera kom­inn í gróður, fjær manna­byggðum.“

Á þessum tíma­punkti var ákveðið að Hunda­sveitin og aðrir sem leit­uðu hunds­ins myndu umkringja svæðið sem Balto var á í Heiðmörk en ekki kalla á hann og mögu­lega þannig fæla hann í burtu af svæð­inu. „Þannig að við ráð­leggjum öllum að umkringja svæðið, ekki koma nálægt honum en umkringja svæðið en hann var í ein­hvers­konar fjalls­hlíð. Við báðum fólk að fara hinum megin við fjallið en við spott­uðum hann mjög oft í fjall­inu. Þannig að við byrj­uðum okkar svona protocol og byrj­uðum að grilla pylsur,“ sagði Sandra Ósk og útskýrði fyrir blaða­manni Mannlífs að með því að grilla pylsur sé hægt að halda hund­inum á svæð­inu því hann finnur lykt­ina og vill þá síður yfir­gefa svæðið. Hunda­sveitin setti svo dróna á loft sem sam­starfs­að­ili þeirra á því neyðin var slík því sveitin hafði misst sjónar af honum eitt augna­blik en vissu að hann væri samt á svæð­inu.

Þegar þarna var komið við sögu var fólk beðið að yfir­gefa svæðið svo hund­ur­inn myndi ekki fæl­ast í burtu. „Þannig að þetta voru bara við og nýji eig­and­inn. Svo segir Anna einni úr hópnum að fara hinum megin við fjallið, hjá golf­vell­inum og sú segir okkur að hann sé þar.“ Hópurinn fer því allur þangað og ná að nálg­ast hann loks­ins með grill­aða pylsu að vopni en þær voru í um þrjár klukku­stundir liggj­andi á jörð­inni með blaut­matnum fra Dýra­fóður í hendi en að sögn Söndru Óskar er þetta gert því að þá stafar minni ógn af þér og þú leyfir hund­inum að nálg­ast sig á sínum for­sendum. „Þetta tók í raun fjóra tíma að nálg­ast hann svona. Hann fór það nálægt okkur að það var næstum því hægt að klappa honum. Hann borð­aði úr lóf­anum okkar. En við vissum að það sem við þurftum nú var fyrri eig­and­inn en hún hafði keyrt alla leið frá Egils­stöðum en hún kom þarna um morg­un­inn. Okkur hafði þá tek­ist að róa hann og hann var far­inn að venj­ast okkur. Hann til dæmis elskaði lit­inn á vest­unum okkar, hann lað­að­ist gríð­ar­lega að þeim litum. Gamli eig­and­inn hafði byrjað að leita með okkur um klukkan 10 þennan morgun en klukkan eitt kall­aði hún á hann og hann kom hlaup­andi og stökk í fangið á henni,“ sagði Sandra Ósk upp­numin og bætti við: „Þannig að þetta var alveg þriggja og hálfs sól­ar­hrings leit. Þetta var því­líkur elt­inga­leikur og ef við hefðum ekki fengið þessa vís­bend­ingu úr Heiðmörk hefði hann senni­lega ekki fund­ist.“

Balto hopp­aði í fang fyrri eig­anda síns.

Balto er nú kom­inn aftur til nýrra eig­enda sinna sem passa vel upp á að hann sé ekki laus á pall­inum þar sem hann reynd­ist hinn mesti hástökkvari.

Balto loks­ins kom­inn heim.

Ef fólk vill styrkja Hunda­sveit­ina sem er sjálf­boða­liða­hópur eru upp­lýs­ingar hér fyrir neðan. Allir styrkir fara beint í tækja­kaup fyrir leitir eins og hita­sjónauka en þess ber að geta að veg­legt hunda­búr sem hóp­ur­inn átti, var stolið á dög­unum.

Kennitala: 550920-0850
Reikn­ingur: 0301-13-000075 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð