Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Skotinn til bana á rúntinum: „Núna get­um við tekið fyrstu skref­in í að græða sár­in“

Skotinn til bana á rúntinum: „Núna get­um við tekið fyrstu skref­in í að græða sár­in“

Íslend­ingur var stadd­ur með fjöl­skyldu­vini er skotið var á þá báða fyr­ir fram­an versl­un í Tulsa í Okla­homa 8. sept­em­ber 2012 með þeim af­leið­ing­um að Íslend­ing­ur­inn lést sam­stundis.

Dave Wal­ker, rann­sókn­ar­lög­reglu­maður hjá lög­regl­unni í Tulsa. Mynd/skjá­skot

Morg­un­blaðið fjall­aði um málið á sínum tíma. Dave Wal­ker, rann­sókn­ar­lög­reglu­maður hjá lög­regl­unni í Tulsa, sagði að maður­inn, sem var í bílnum með Íslend­ingnum hafi heitið John White og verið ná­granni og vin­ur fjöl­skyldu hins látna. Hann hafi verið í heim­sókn á heim­ili þeirra kvöldið sem árás­in átti sér stað.

Að sögn Wal­kers bauðst White til að sækja drykki í nær­liggj­andi versl­un, QuikTrip. Hann bauð Íslend­ingnum með sér og móðir hans gaf leyfi fyrir því.

Walker lýsti því í frétt á News on 6 að: „Versl­un­in væri stað­sett inn­an við mílu (um 1,61 km) frá húsi þeirra. White fór inn í búð­ina og versl­aði. Hann sett­ist inn í bíl­inn og ætl­aði að aka á brott þegar maður, sem tal­inn er hafa skotið á þá, hóf orða­skipti við White, sem að sögn vitna sner­ist um að White hefði ekið á mann­inn. Þau stóðu yfir í stutta stund áður en hinn grun­aði hóf skot­hríð,“ seg­ir Wal­ker.

Ekkert fannst í öryggismyndavélum

Walker rann­sókn­ar­lög­reglu­maður seg­ir að ekki liggi fyr­ir hvar White á að hafa ekið á hinn grun­aða. Ekk­ert í ör­ygg­is­mynda­vél­un­um bendi til þess að það hafi gerst á bíla­stæð­inu þar sem skotárás­in átti sér stað.

„Ég er sann­færður um að ég finn eitt­hvað á ör­ygg­is­mynda­vél­un­um. Það er ein­göngu tíma­spurs­mál.“

Wal­ker seg­ir að næstu skref séu að skoða mynd­efni sem nær yfir lengri tíma og von­ast til að ein­hverj­um bregði fyr­ir sem pass­ar við lýs­ing­una á hinum grun­aða. „Við telj­um að hann búi á svæð­inu,“ seg­ir Wal­ker.

Næstu skref að kanna fortíð þeirra

760 lög­reglu­menn vinna í höf­uð­stöðvum lög­regl­unn­ar í Tulsa. Í morð­deild lög­regl­unn­ar starfa níu rann­sókn­ar­lög­reglu­menn.

„Á milli 3 og 4 lög­reglu­menn vinna að rann­sókn máls­ins frá morð­deild­inni. Að auki eru um 20 lög­reglu­menn á vakt á ná­grenni svæðis­ins þar sem morðið átti sér stað. Þeirra hlut­verk er að kanna nán­ar minni­hátt­ar vís­bend­ing­ar sem ber­ast,“ sagði Wal­ker um rann­sókn máls­ins á sínum tíma.

Að sögn Wal­kers á þessum tíma var eru næstu skref í rann­sókn­inni þau að kanna for­tíð Íslend­ings­ins og Johns White. „Það er ekk­ert sem bend­ir til þess að hr. Þórs­son hafi tengst upp­tök­um þess sem gerð­ist.“

Það sem af er þessu ári (2012) hafa 33 morð verið fram­in í Tulsa.  Að sögn Wal­kers finn­ur lög­regl­an söku­dólga í um 80% til­fella. „Um 10-15% morða eru til­efn­is­laus og án þess að nein tengsl séu á milli árás­ar­manna og fórn­ar­lamba. Þegar við náum skot­mann­in­um get­um við von­andi skýrt bet­ur hvers vegna skotárás­in átti sér stað,“ seg­ir Wal­ker

Morðinginn reyndi að breyta útliti sínu

Jermaine Jackson, hinn ákærði. Mynd/skjá­skot

Jackson var hand­tek­inn í bæn­um Mari­anna í Ark­ans­as-ríki, aust­an við Okla­homa. Rann­sókn­ar­lög­reglu­maður­inn Dave Wal­ker, sem stýr­ir rann­sókn máls­ins, seg­ir að Jackson hafi klippt á sér hárið til að reyna að breyta út­liti sínu og hafi fengið hjálp til að flýja heima­borg sína Tulsa eft­ir morðið. Að sögn Wal­ker má þakka það upp­lýs­ing­um frá al­menn­ingi auk rann­sókn lög­reglu að hann fannst. M.a. hafi grun­sam­leg hegðun Jackson komið upp um hann, án þess að hægt sé að út­skýra það nán­ar á þessu stigi, þegar rann­sóknin fór fram.

Þeir Jackson og Íslend­ing­ur­inn voru á svip­uðum aldri, 19 og 18 ára gaml­ir, og þekkt­ust, voru jafn­vel vin­ir að sögn Wal­kers. Ekki er ljóst hvort Jackson gerði sér grein fyr­ir því að Íslend­ing­ur­inn hafi setið í bíln­um þegar hann hóf skot­hríð.

„Þetta er skráð hjá okk­ur sem af­leið­ing deilna, en við höf­um ekki getað yf­ir­heyrt Jermaine Jackson ennþá. Hann er í 6 klukku­stunda öku­fjar­lægð frá okk­ur, en við erum á leið þangað núna og von­umst til þess að kom­ast til botn í mál­inu. Enn er mörg­um spurn­ing­um ósvarað, en að minnsta kosti er morð­ing­inn kom­inn af göt­un­um og það er alltaf já­kvætt.“

Dauðarefs­ing ólík­leg

Ungi maður­inn er á saka­skrá, en að sögn Wal­kers aðeins fyr­ir smá­vægi­lega glæpi. „Það er ein­hver minni­hátt­ar þjófn­aður, ekk­ert sem lík­ist þessu, ekk­ert sem benti til þess að hann væri lík­leg­ur til að drepa tvo menn.“ Hann seg­ir við­búið að Jackson verði í varð­haldi þar til rétt­ar­höld yfir hon­um hefj­ist, hvenær svo sem það verði. Ólík­legt sé að hon­um verði sleppt laus­um gegn trygg­ingu.

„Ég held að hann hafi ekki tök á því að greiða neins kon­ar trygg­ingu, enda má bú­ast við því að hún hlypi á millj­ón­um. En mér finnst ólík­legt að það verði yfir höfuð inni í mynd­inni. Hann hef­ur nú þegar reynt einu sinni að flýja, svo af hverju ætt­um við að vilja sleppa hon­um aft­ur.“

Dauða­refs­ing er við lýði í Okla­homa og raun­ar er Okla­homa það ríki Banda­ríkj­anna þar sem flest­ar af­tök­ur fara fram miðað við höfða­tölu. Aðspurður seg­ist Wal­ker þó telja ólík­legt að Jackson verði dæmd­ur til dauða. „Mitt per­sónu­lega mat er að þetta mál sé þess eðlis að það upp­fylli ekki skil­yrðin fyr­ir dauða­refs­ingu.“

Iðraðist aldrei

Jermaine Jackson gafst tæki­færi til að ávarpa fjöl­skyld­ur fórn­ar­lamba sinna eft­ir að dóm­ur yfir hon­um var fall­inn en hann kaus að gera það ekki. Í rétt­ar­höld­un­um bar hann við sjálfs­vörn og eins við skýrslu­tök­ur hjá sak­sókn­ara.

Á það féllst rétt­ur­inn ekki og seg­ir Helena Jackson ekki hafa sýnt neina iðrun verka sinna. „Hann kaus að ávarpa ekki fjöl­skyld­ur fórn­ar­lamba sinna en núna er þetta búið. Rétt­lát­ur dóm­ur er fall­inn og við get­um farið að taka fyrstu skref­in fram á við.“

Dav­id Wal­ker, varð­stjóri hjá morð­deild lög­regl­unn­ar í Tulsa í Okla­homa, seg­ir að lög­regl­an hafi yf­ir­heyrt Jermaine Jackson, mann­inn sem grun­aður er um morðin á Íslend­ingnum og John White. Jackson er enn í haldi í Ark­ans­as og verður hann lík­lega flutt­ur til Okla­homa í næstu viku.

Þar bíður Jacksons tvö­föld ákæra fyr­ir morð af fyrstu gráðu, sem er hæsta stig morðs sam­kvæmt banda­rísk­um lög­um, og tákn­ar að morðið hafi verið framið af ráðnum hug. Sam­kvæmt Wal­ker get­ur dauða­refs­ing legið við morði af fyrstu gráðu í Okla­homa, en hann seg­ir að sér þyki ólík­legt að það verði raun­in. Lík­lega eigi Jackson þó yfir höfði sér mjög langa fang­elsis­vist verði hann fund­inn sek­ur.

Wal­ker seg­ir að ekk­ert í rann­sókn­inni bendi til þess að Íslend­ing­ur­inn og Jackson hafi átt í ein­hverj­um ill­deil­um sem gætu legið að baki skotárás­inni, þó að í ljós hafi komið að þeir hafi þekkst fyr­ir. Or­saka glæps­ins sé lík­lega ekki að leita í kunn­ings­skap þeirra.

Tvöfaldur lífstíðardómur

Jermaine Jackson, var fund­inn sekur og hlaut tvö­fald­an lífs­tíð­ar­dóm í banda­rísku borg­inni Tulsa í Okla­homa­ríki fyr­ir að skjóta tvo menn til bana.

Amma Íslend­ings­ins, seg­ir að fjöl­skyld­unni hafi létt mjög við það að rétt­ar­höld­un­um sé lokið og að morð­ingi barna­barns henn­ar hafi fengið rétt­lát­an dóm. „Núna get­um við tekið fyrstu skref­in í að græða sár­in og byrjað að horfa fram á veg­inn,“ seg­ir amman en rétt­ar­höld­in tóku mjög á alla fjöl­skyld­una. „Við sát­um öll rétt­ar­höld­in og það var mjög erfitt fyr­ir okk­ur. Kviðdóm­ur­inn var ein­róma um sekt sak­born­ings og dóm­ur­inn rétt­lát­ur, hann á ekki mögu­leika á náðun fyrr en eft­ir 76 ár.“

Engan grunaði að nokkuð þessu líkt gæti gerst

Ís­lenski pilt­ur­inn sem var myrt­ur í Banda­ríkj­un­um, flutti til Okla­homa þegar hann var 10 ára gam­all ásamt móður sinni, eldri bróður og yngri syst­ur.  Hann hefði átt að út­skrif­ast úr gagn­fræða­skóla árið sem hann var skot­inn, en hann var 18 ára gam­all.

Í sam­tali við Morg­un­blaðið sagði Amma hans að hann hafi verið svo­lítið marg­brot­inn per­sónu­leiki. „Hann var mjög list­rænn, góður í að teikna og var mikið fyr­ir að yrkja ljóð, en hann var mjög óör­ugg­ur með sig vegna þess að hann stam­aði,“ seg­ir amma hans í sam­tali við frétt­asíð­una New­sOn6 í Okla­homa.

Hún seg­ir að hann hafi ort mikið af laga­textum og dreymt um að fara í Okla­homa­há­skóla eft­ir út­skrift úr gagn­fræða­skóla, til að leggja stund á tón­list. Hann var mjög málglaður að sögn ömmu hans. Hann var óhrædd­ur við að tjá skoð­anir sín­ar á hvaða mál­efni sem er, jafnt stjórn­mál­um sem frétt­um líð­andi stund­ar, og hann var með mjög smit­andi hlát­ur.

„Þegar hann hló þá fóru all­ir að hlæja. Það hlógu all­ir með hon­um,“ er haft eft­ir ömmu hans. Hún seg­ir fjöl­skyld­una alla í áfalli. Eng­an hafi grunað að nokkuð þessu líkt gæti gerst þegar hann skrapp út í búð ásamt fjöl­skyldu­vini til að kaupa gos. „Þetta er svo til­vilj­ana­kennt, svo mik­ill óþarfi, maður skil­ur ekki hvers vegna.“

Amma hans seg­ir jafn­framt að þau séu afar þakk­lát fyr­ir þann mikla stuðn­ing sem vin­ir og skóla­fé­lag­ar hans hafi sýnt þeim. Það hefði komið hon­um sjálf­um á óvart að vita hversu vel hann var lið­inn. Fjöl­skyld­an er nú að und­ir­búa jarð­ar­för­ina, sem fer fram á föstu­dag svo að ætt­ingj­ar frá Íslandi hafi tíma til að kom­ast á stað­inn.

Heim­ildir:

Innlent. 10. sept­em­ber 2012. Fóru í stutta bíl­ferð til að kaupa drykki. MBL.

Innlent. 12. sept­em­ber 2012. XXXX og morð­ing­inn voru félagar. Vísir.

Innlent. 12. sept­em­ber 2012. XXX þekkti morð­ingj­ann. MBL.

News On 6. 15. mars 2016. Conviction Upheld In 2012 Murder Of Jenks Senior, Friend. Oklahoma Lake Levels.

New­sOn6.com – Tulsa, OK – News, We­ather, Vi­deo and Sports – KOTV.com

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð