Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Umsátur í kjölfar skotárásar – Byssumaðurinn skotinn

Umsátur í kjölfar skotárásar – Byssumaðurinn skotinn
Mynd// skjá­skot af frétta­mynd MBL

Tæplega sex­tugur maður var skot­inn í aðgerðum sér­sveitar lög­reglu, eftir að hann skaut úr hagla­byssu úr íbúð sinni í Árbænum. Maðurinn var síðar úrskurð­aður lát­inn. Skrifuð var ítar­leg yfir­ferð atburða­rás­ar­innar í Morg­un­blað­inu, þann 3. des­em­ber 2011, vegna skotárásar manns í Hraunbæ 20, í Reykja­vík.

Skaut út um glugga með haglabyssu

Í frétt Morg­un­blaðs­ins stóð: „Tæplega sex­tugur maður bjó einn í íbúð við Hraunbæ. Nágrannar urðu varir við að mað­ur­inn kom heim með látum í fyrra­kvöld. Ein­hverjir þeirra heyrðu hljóð um klukkan hálf­eitt um nótt­ina sem þeir tengja við að fyrsta skot­inu hafi verið hleypt af í íbúð manns­ins. Þá vakti hundur eins nágrann­ans eig­anda sinn og fleiri vökn­uðu um svipað leyti. Lög­reglan seg­ist hafa fengið til­kynn­ingu um háværa hvelli um klukkan þrjú um nótt­ina. Almennir lög­reglu­menn voru sendir á stað­inn til að kanna málið og þeir biðu eftir aðstoð sér­sveit­ar­manna. Ekki tókst að ná sam­bandi við mann­inn og opn­uðu lög­reglu­menn íbúð­ina sem er á annarri hæð í fjöl­býl­is­húsi. Til­gang­ur­inn var að sögn lög­reglu að kalla til hans.

Maðurinn skaut á lögreglu

„Skotið lenti á skildi sér­sveit­ar­manns sem kastað­ist við það aftur á bak og niður stig­ann. Mun hann hafa rot­ast. Tveir almennir lög­reglu­menn leit­uðu skjóls uppi á þriðju hæð. Lög­reglan dró sig til baka og öll sér­sveitin var kölluð út. Almennu lög­reglu­mönn­unum var komið út og stiga­gang­ur­inn rýmdur. Lög­reglan náði ekki sam­bandi við mann­inn en taldi að fólk sem væri á ferli í nágrenni íbúðar hans væri í hættu. Ákveðið var að reyna að yfir­buga hann með beit­ingu gasvopna. Um klukkan sex var reyk­hylkjum skotið inn um glugga á svefn­her­bergi og eld­húsi í íbúð manns­ins. Ekki tókst að svæla hann út því hann hóf þess í stað að skjóta út um glugga íbúð­ar­innar, að því er fram kom hjá Stefáni Eiríks­syni, lög­reglu­stjóra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, á blaða­manna­fundi í gær. Skotin dundu yfir bíla­stæðið og í gær voru lög­reglu­menn að leita að ummerkjum á öllu svæð­inu. Þegar sér­sveit­ar­menn rudd­ust inn í íbúð­ina til að yfir­buga mann­inn skaut hann nokkrum skotum að þeim. Hann hitti hjálm­k­lætt höfuð lög­reglu­manns sem féll við og skot fóru fram hjá höfðum ann­arra, sam­kvæmt upp­lýs­ingum lög­regl­unnar. Sér­sveitin skaut þá á móti og særði mann­inn. Hann var úrskurð­aður lát­inn þegar komið var með hann á sjúkra­hús. Ekki feng­ust í gær nán­ari upp­lýs­ingar um aðstæður í íbúð­inni eða hvernig byssu­mað­ur­inn féll. Í frétta­til­kynn­ingu rík­is­lög­reglu­stjóra og lög­reglu­stjór­ans á höf­uð­borg­ar­svæð­inu segir að við fyrstu sýn verði ekki betur séð en sér­sveit­ar­menn­irnir hafi farið eftir verk­lags­reglum.“

Mynd/skjá­skot

Lögreglan harmaði atburðinn

Farið var ítar­lega yfir málið og aðstæður lög­reglu á vett­vangi. Haraldur Johann­es­sen, þáver­andi rík­is­lög­reglu­stjóri tók fram í frétta­til­kynn­ingu að: „Lög­reglan harmar þennan atburð og vill koma á fram­færi inni­legum sam­úð­ar­kveðjum til fjöl­skyldu manns­ins“

Meiðsli lögreglumannanna

Meiðsli vegna skota manns­ins á lög­regl­una reynd­ust minni­háttar og taldi Stefán Eiríks­son þá ver­andi lög­reglu­stjóra að hlífð­ar­bún­aður lög­reglu og þjálfun hafi bjargað. Enn­fremur kemur fram í frétt­innni: „Þá telur lög­reglan að almennir lög­reglu­menn sem fyrstir fóru á stað­inn hafi verið í mik­illi hættu. 15 til 20 lög­reglu­menn, auk sér­sveit­ar­manna, tóku þátt í aðgerð­inni sem lauk um klukkan sjö í gær­morgun. Lög­reglan til­kynnti atburð­inn til inn­an­rík­is­ráð­herra og rík­is­sak­sókn­ara en emb­ætti rík­is­sak­sókn­ara fer með rann­sókn máls­ins.“

„Eins og atriði úr bíómynd“

Í sam­tali við MBL sjón­varp lýsti Einar Sím­on­ar­son, íbúi í Hraunbæ aðstæðum „Þetta leit út eins og atriði í bíó­mynd.“

Nágrannar, búsettir í Hraunbæ vökn­uðu á mis­mun­andi tímum við skot­hvell­ina og svefn­leysi ein­kenndi nótt­ina afdrifa­ríku. „ Margir tengdu hljóðin við það að verið væri að sprengja kín­verja eða skjóta flug­eldum úti á bíla­stæði,“ segir í grein Morg­un­blað­ins, 3. des­em­ber 2011.

„Sigurður Stef­áns­son segir að sér hafi brugðið þegar hann sá sér­sveit­ina ryðj­ast inn í íbúð manns­ins og áttað sig á því að hann hefði verið að skjóta út úr íbúð­inni. „Ég var ekki mikið við glugg­ann eftir að ég fatt­aði að verið væri að skjóta út af svöl­unum,“ sagði Sigurður við mbl sjón­varp.“

„ Einn nágranni sem vildi ekki láta nafns síns getið sagði við mbl.is í gær­morgun að mað­ur­inn hefði komið heim með miklum látum um klukkan ell­efu á sunnu­dags­kvöldið, greini­lega ölv­aður. „Hund­ur­inn vakti mig klukkan hálf­eitt þegar ég var alveg að sofna, hann gelti við fyrsta skot­hvell­inn. Ég hélt fyrst að þetta hefði verið árekstur,“ sagði nágrann­inn en honum kom ekki dúr á auga alla nótt­ina. Hann sagði að skotið hefði verið út á bílaplan. Lög­reglan hefði haft mik­inn við­búnað. Nágrann­inn seg­ist hafa verið afar hræddur. „Ég við­ur­kenni alveg að ég grét þegar ég heyrði fyrstu hvell­ina.“

Kirkjan veitti áfallahjálp

„Þór Hauksson, sókn­ar­prestur í Árbæ, sagði í gær­morgun að margir íbúar í næsta nágrenni við atburði næt­ur­innar væru í áfalli. Hann kom því á fram­færi að íbúar hverf­is­ins gætu komið til kirkj­unnar og fengið áfalla­hjálp. Ein­hverjir hefðu kosið að hringja og aðrir lagt leið sína í kirkj­una.“

Hér er hlekkur á frétt Morg­un­blaðs­ins á tíma­rit.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ