Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Sá mann á svölunum með langa byssu: „Hann ætlaði augljóslega að drepa okkur“

Sá mann á svölunum með langa byssu: „Hann ætlaði augljóslega að drepa okkur“
Matheuz Dariusz, bif­véla­virki og faðir. Hann varð ásamt syni sínum fyrir skotárás í gær. Mynd/skjá­skot. Rúv

„Hann ætl­aði aug­ljós­lega að drepa okkur,“ segir maður sem ásamt syni sínum varð fyrir skotárás fyrir utan leik­skóla í Hafn­ar­firði í gær í kvöld­fréttum RÚV. Hann þakkar guði fyrir að þeir séu á lífi.

Samn­inga­maður lög­regl­unnar sem ræddi við skot­mannin, segir að: „útkallið hefði auð­veld­lega getað farið illa.“ Vopnuð útköll vegna notk­unar skot­vopna voru rúm­lega þrefalt fleiri í fyrra en árið 2016.

Á erfitt með að finna réttu orðin til að lýsa atburðarásinni

Gær­morg­un­inn hófst venju­lega, þegar Mateuz Dariusz fór með son sinn á leik­skól­ann Víði­velli í gær. Feðgarnir mættu snemma og voru að bíða eftir að leik­skól­inn opn­aði, þegar skotið var á bíl þeirra.

Matheus er búinn að búa á Íslandi í 11 ár, en hann er lærður bíl­véla­virki og vinnur á verk­stæði í Reykja­vík. Hann og kona hans eiga tvö börn, dóttur sem er 1 árs og sex ára son. Hann talar bæði íslensku og ensku, en eftir árás­ina í gær er honum mjög brugðið og á erfitt með að finna réttu orðin til að lýsa atburða­rásinni. Jafnvel á sínu eigin móð­ur­máli. Hann segir að hann og sonur hans mæti alltaf 5 mín­útum áður en að leik­skól­inn opnar og bíði fyrir utan og ræði saman.

Sá mann á svölunum með langa byssu

„Svo heyrði ég ein­hvers konar smell. Fyrst hélt ég að þetta væri hljóð í bílnum, eitt­hvað væri bilað. Smell­ur­inn var ekki mjög hár, en hann heyrð­ist vel. Nokkrum sek­úndum síðar heyrði ég annan smell en hærri og fann svo gleri rigna yfir bakið og höf­uðið á mér. Ég steig út úr bílnum til að sjá hvað hefði gerst – hvort ein­hver hefði kastað steini í bíl­inn eða hvað. Þá sá ég mann á svölum með langa byssu. Hann mið­aði á okkur og byrj­aði að hrópa: Hvað etu að gera? Hættu þessu! Ég sagð­ist ætla að hringja á lög­regl­una sem ég gerði strax. Það var eng­inn annar á bíla­stæð­inu nema við feðgarnir. Þegar ég hróp­aði hátt á hann hrökk hann við. Ég spurði hann af hverju hann væri að þessu? Hann svar­aði að hann héldi að hann væri ein­hver glæpa­maður.“

Aðpurður hvort að skot­mað­ur­inn hefði spurt hann að þessu, svarar hann því ját­andi.

Fengið mjög á 6 ára son hans

Mateuz Dariusz segir að atburð­ur­inn hafi fengið mjög á son hans. Hann meðal ann­ars þurft að hrópa á hann til þess að fela sig á gólf­inu í bílnum. Mateuz ákvað í kjöl­farið að fara með dreng­inn á leik­skól­ann til að koma honum á öruggan stað. Og ræðir svo ekk­ert meira við hann þangað til að hann var kom­inn aftur heim úr leik­skól­anum.

„Við komum heim og dreng­ur­inn sagði mömmu sinni hvað hefði gerst. Hann sagði að vondur maður hefði brotið rúð­una í bílnum og pabbi hefði hrópað á hann mjög hátt. Hann veit hvað kom fyrir, að mað­ur­inn skaut á bíl­inn okkar og braut rúð­una. Þannig skilur hann atburð­inn. Hann skilur ekki enn að mað­ur­inn reyndi aug­ljós­lega að drepa okkur. “

Þau hafa fengið mikið af hug­hreystandi skila­boðum í kjöl­farið, en Mateuz segir að hann sé ennþá í sjokki og geti ekki trúað því að svona nokkuð gæti gerst hér.

Árás­armað­ur­inn var vistaður á stofnun í dag. Samn­inga­menn töl­uðu við mann­inn í 5 tíma í gær og var hann í kjöl­farið vistaður á við­eig­andi stofnun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð