Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Aðdáendur Jordan Peterson æfir yfir pistli Stefáns: „Hann á mikið ólært“

Nokkur ólga er í Facebook-hópnum „Jordan Peterson-klúbburinn“ vegna pistils sem birtist í Frétta­blaðinu í dag og fjallar um sálfræðinginn kanadíska, sem flutti fyrir­lestur fyrir fullu húsi í Háskóla­bíói á laugar­daginn var.

Fyrir­lesarinn og rithöfundurinn Jordan Peterson er sálfræðingur að mennt og starfaði sem prófessor í sálfræði við Háskólann í Toronto. Skoðanir hans og málflutningur hafa verið umdeild í gegnum tíðina. Hann á sér dyggan aðdáendahóp en sömuleiðis andstæðinga sem hafa gagnrýnt orðræðu hans harkalega.

Á sunnudag birtist viðtal í Íslandi í dag sem Snorri Másson tók við Jordan Peterson. Í viðtalinu átti Peterson frumkvæði að umræðu um málefni trans­fólks, en hann sagði meðal annars að heilbrigðis­starfsfólk limlesti börn með skurð­aðgerðum. Hann sagðist einnig vilja banna aðgerðir á trans­börnum undir 18 ára aldri og gera þeim lagalega kleift að lögsækja heilbrigðis­starfsfólk sem framkvæmi á þeim slíkar aðgerðir.

Eftir viðtalið við Peterson áréttaði Snorri að sára­sjaldgæft væri að þær kynleiðréttingar­aðgerðir sem hann vísaði til væru framkvæmdar á einstaklingum yngri en 18 ára í heiminum. Samkvæmt heimildum frétta­stofu Stöðvar 2 hefðu engar slíkar aðgerðir verið framkvæmdar á einstaklingi yngri en 18 ára á Íslandi. Stundum væru kynhormóna­bælandi meðferðir notaðar til þess að styðja við trans ungmenni en löng reynsla væri komin á slíkar meðferðir.

Ummæli Peterson hafa vakið hörð viðbrögð innan trans­samfélagsins á Íslandi.

„Trans fólk er til, trans börn eru til“

Í dag birtist skoðana­pistill í Frétta­blaðinu, svokallaðir bakþankar, þar sem Peterson og fyrir­lestur hans eru umfjöllunar­efnið.

Þar segir meðal annars:

„Þessi fyrir­lestur var sömu helgi og leghafar vestanhafs misstu sjálfræði yfir eigin líkama, sem aðstoðar­maður ráðherra sagði rétta ákvörðun, í ljósi hans takmarkaða skilnings á bandarísku laga­umhverfi. Þetta gerði hann í staðinn fyrir að taka siðferðis­lega afstöðu.“ Höfundur vísar þar til Brynjas Níels­sonar, aðstoðar­manns dómsmála­ráðherra og pistils sem hann skrifaði nýverið á Facebook-síðu sína.

„Leghafar eiga að eiga algjört og ótvírætt vald yfir eigin líkama. Trans fólk er til, trans börn eru til – til allrar hamingju. Til andskotans með þau sem básúna annað.“

Óánægja meðal aðdáenda Peterson

Ef marka má skjáskot sem blaða­manni bárust, hefur skapast heit umræða í kringum pistilinn í íslenskum Facebook-hópi sem nefnist Jordan Peterson-klúbburinn og virðast margir ósáttir. Í upphafs­færslunni er pistlinum deilt og því velt upp hvers vegna Peterson mæti svo miklu hatri í íslenskum fjöl­miðlum.

Davíð Sigurþórsson segist telja að hluti ástæðunnar fyrir hatri á Peterson, sem hann segir að mestu óígrundað, sé að hann standist ekki mátið að taka harkalega til orða „og fara einstaka sinnum yfir í að stuða bara til að stuða.“

Guðmundur Pálsson er ósammála. „Mér sýnist þó að hann taki sterkar til orða því hann sér vissa hluti skýrar nú en áður. Við sáum það margir áður en hann opnaði augun en hann hefur orðkynngi sem margir vilja hlusta á.“

Davíð svarar Guðmundi: „Ég er búinn að fylgjast með honum frá „upphafi“ og þessi ruddalega orða­notkun hefur bara aukist hjá honum og það er ekki séns að það sé óvart. Hann veit alveg hvað hann er að gera.“

Guðmundur vill tengja harkalega orðræðu Peterson við trú. „Hann er trúaður orðinn og því fylgir að sjá betur greinarmun góðs og ills. Það er greinar­munur sem var alls ekki til áður, en þegar hann þrýstir á er ekki lengur tilefni til diskusjóna um það sem augljós­lega er rangt.“

Jón Hannes svarar upphafs­innlegginu og segir: „Það er svo reitt. Reiðin er svo sterk og réttlát, því JP varpar ljósi á botnlausa hræsni og vitleysu vinstrisins. Blaðamanna­stéttin og kennara­stéttin er stútfull af þessum nýmarxísku rugludöllum.“

„Fjöl­miðlar eru orðnir að óvinum fólksins. Svosem eðlilegt að þeir hegði sér svona miðað við það,“ segir Baldur Ingi.

Guðmundur Pálsson segir pistilinn sýna að fjölmiðla­menn séu í ólæknandi ástandi. „Það eina sem hrífur er að sniðganga fjöl­miðlana með öllu, bæði fólk og fyrirtæki. Láta þá fara á hausinn.“

Blaða­maðurinn Jakob Bjarnar Grétarsson tjáir sig við færsluna og segir fólk verða að kunna að gera greinarmun á viðhorfs­pistlum og frétta­flutningi. „Nú kann það svo að vera að ritstjórnir þessa lands, og sumar þá meira en aðrar, ættu að fara í nafla­skoðun hvað það varðar að viðvarandi rétt­trúnaður sé farinn að brengla objectíva frásögn. Ég ætla ekki að skjóta loku fyrir það. En að taka pistil þessa labbakúts, sem þráir að vera Twitterhetja, þráir að teljast fyndinn en er það auðvitað ekki því það er ekkert til sem heitir pc-grín eðli máls samkvæmt, henda á loft og segja: Fjöl­miðlar eru óvinir fólksins … ég er hræddur um að Jordan Peterson gæfi ekki mikið fyrir slíka röksemda­færslu.“

Í kjölfar ummæla Jakobs Bjarnars ákveða fleiri að hjóla í pistla­höfundinn, Stefán Ingvar Vigfússon, en hann er sviðs­höfundur, pistla­höfundur og grínisti. Magnús Þór grípur orð Jakobs Bjarnars þar sem hann kallar pistla­höfundinn „labbakút“ á lofti. „Þessi labba­kútur var einmitt að skammast í fólki á brandara síðu um daginn. Hann tók það nefnilega að sér blessuð sálin að upplýsa heimskan almúgann hvað væri fyndið, hann er nefnilega „atvinnu grínisti“ og veit hvað hann syngur.“

Jakob Bjarnar svarar þá Magnúsi og heldur áfram að beina sjónum að persónu pistla­höfundar og starfi hans: „Ég hef varla vitað ófyndnari mann og það liggur við að maður finni til með woke-hjörðinni sem telur sér auðvitað skylt að kreista uppúr sér hlátur þegar hann tekur til máls. Átakanlegt.“

Fjölmiðla­maðurinn Frosti Logason leggur líka orð í belg í athugasemd við færsluna: „Þessi hefur mikið verið að taka að sér hlutverk hins grjót­harða netníðings á Twitter undan­farið. Hans sérgrein þar eru útúr­snúningar rétt eins og í þessum pistli. Hann á mikið ólært.“

Þess má geta að Stefán Ingvar er hluti af uppistands­hópnum VHS, en sýningar þeirra hafa vakið lukku og verið vel sóttar, þótt erfitt sé að finna tengingu pistils hans við þann feril.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá