Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Hannes Oddsson skipstjóri stóð andspænis dauðanum: „Óli bjargaði lífi okkar í raun og veru“

Hannes Oddsson skipstjóri stóð andspænis dauðanum: „Óli bjargaði lífi okkar í raun og veru“

Hannes Oddssson var skip­stjóri á vél­bátnum Mumma sem fórst á Vest­fjarða­miðum Tveir komust af. Fjórir drukkn­uðu. Hann og hinn sem komst af biðu lengi í björg­un­ar­báti í brjál­uðu veðr­inu. „Hann var alltaf slön­gu­fullur af sjó; fengum alltaf þakið yfir okkur í hvert skipti. Ég sagði við Óla „nú bíðum við og heyrum þegar brotið kemur“. Um leið og við heyrðum það skella á bátnum þá hentum við okkur út í síð­una og veltum honum svo­leiðis.“ Hannes segir að slysið komi enda­laust upp í hug­ann. Hann hélt þó áfram á sjónum en hafið tog­aði snemma í hann. Átta ára gam­all byrj­aði hann á sjónum og tæp­lega sex­tugur hætti hann.

„Við vorum ekk­ert lengi á kilnum því það kom brot og sóp­aði okkur af honum,“ segir Hannes Oddsson, fyrr­ver­andi skip­stjóri, í við­tali við Reyni Trausta­son þegar hann lýsir því þegar vél­bát­ur­inn Mummi ÍS 366 frá Flateyri sökk undan Vest­fjörðum í októ­ber árið 1964. Fjórir menn fór­ust og tveir komust af, Hannes og Olav Öyahals vél­stjóri. „Ég var á sundi og sá skipið langt í burtu á hvolfi og vissi ekk­ert um Óla þá. Ég synti og þá sá ég Óla dálítið langt frá mér. Svo kom bjarg­hringur fljót­andi og ég kall­aði á Óla og benti honum á hring­inn af því að hring­ur­inn var það langt frá mér og stefndi beint á Óla. Og rétt á eftir sáum við kistu koma; það höfðu tvær kistur verið uppi á þaki.“ Það var ann­ars vegar kista með björg­un­ar­báti í og hins vegar mat­ar­kista. „Þær voru nákvæm­lega eins. Maður vissi ekki hvort það væri brauð­kistan eða hin. Óli bjarg­aði lífi okkar í raun og veru. Hann var með vasa­hníf; hníf­ur­inn sem hafði verið í kist­unni hafði dottið úr og það þurfti að skera upp bandið sem var utan um lokið.“

Það var mik­ill léttir hjá félög­unum þegar í ljós kom að um var að ræða kist­una með björg­un­ar­bátnum í.

„Að draga lín­una út 24 metra; maður dró hana út í kafi bara. Maður var allur orð­inn flæktur í þessu. Svo var hama­gangur að reyna að opna bát­inn.“ Þeir þurftu að taka á. Spyrna í bát­inn. Þarna höfðu þeir verið á sundi í um 15 mín­útur.

Sjórinn ískaldur.

„Maður verður ekki beint var við það þegar maður er í þessum aðstæðum. Sjáv­ar­hit­inn hefur verið bara nokkrar gráður. Fjórar fimm gráður.“

Þið hafið verið ungir og sterkir.

„Já, það er það sem bjarg­aði okkur.“

Það gekk vel að kom­ast í björg­un­ar­bát­inn í kol­vit­lausu veðr­inu. Þeir ákváðu að nota kist­una sem rek­ankeri.

„Við hnýttum kist­una í gúmmí­bát­inn. Svo var þetta orð­inn svo mik­ill sjór að við ákváðum að skera hana frá því hún hefði getað sprengt bát­inn. Það voru naglar alls staðar út úr þessu.“

Hannes er spurður hvort hann hafi verið sann­færður um að þeim yrði bjargað eftir að hann komst í björg­un­ar­bát­inn.

„Nei, við höfðum ekki tíma til að hugsa um það. Það var svo brjálað veðrið að við þurftum að sitja uppi alla nótt­ina.“ Og þeir þurftu að ríg­halda í þakið svo vind­ur­inn tæki það ekki af.

Svo valt bát­ur­inn sex sinnum þessa dimmu nótt og félag­arnir komu sér upp tækni til að koma honum á réttan kjöl.

Ég sagði við Óla „nú bíðum við og heyrum þegar brotið kemur“.

„Hann var alltaf slön­gu­fullur af sjó; fengum alltaf þakið yfir okkur í hvert skipti. Ég sagði við Óla: „Nú bíðum við og heyrum þegar brotið kemur“. Um leið og við heyrðum það skella á bátnum þá hentum við okkur út í síð­una og veltum honum svo­leiðis. Ég var í peysu og hún var komin „hingað“ af því að hún var búin að hlaupa svo mikið.“

Hvað töl­uðu þið um?

„Við? Það var svo brjálað veður að nóttin fór í það að halda öllu og bjarga sér í bátnum. Velt­ingnum.“

Bara halda lífi.

„Já.“

Hannes segir að þeir hafi farið 60 mílur; þá rak 60 mílur. Það sam­svarar um 100 kíló­metrum.

Óli var með sjóstakk og við skárum hann í sundur til að breiða ofan á okkur.

„Svo þegar fór að líða að morgni fór hann að hægja. Það var ennþá ansi mik­ill sjór. Við sáum til lands. Við sátum í bátnum og okkur var svo kalt. Óli var með sjóstakk og við skárum hann í sundur til að breiða ofan á okkur. Svo dimmdi allt í einu í bátnum; það varð bara svarta­myrkur. Þá vorum við inni í hvelf­ingu í röstinni“

Straum­hnútur. Röstin er versta svæðið sem til er upp á þessa hnúta að gera.

„Já.“

Þið hafið ekk­ert verið smeykir við að lenda uppi í Látra­bjargi?

„Jú. Ég var búinn að hugsa það um nótt­ina þegar byrj­aði að velta að við værum að fara upp í Blakkinn eða eitt­hvað. Við hefðum ekki lifað það af.“

Honum til léttis hafa þeir farið suður með bjarg­inu.

„Já, við vorum tölu­vert langt frá landi þegar við fórum yfir röstina.“

Hannes er spurður hvað hann haldi að þeir hafi verið langt undan þar.

„Ekki langt. Við vorum þarna í straum­hnút­unum. Það er ann­að­hvort að fara nógu grunnt eða nógu djúpt.“

Hann segir að þeir hafi þá farið um fimm til sex mílur. „Við vorum komnir langt út á Breiða­fjörð. Þá var ég orð­inn pott­þéttur á að okkur yrði bjargað því að þetta var neta­ver­tíðin og við hefðum lent innan um bát­ana fyrir rest.

Óli var búinn að skjóta upp tveimur rak­ettum og við heyrðum í flug­vél og hann var alltaf aðeins of seinn; hún var komin fram hjá. Svo var flug­mann­inum litið aðeins aftur með vél­inni og þá sá hann seinni flaug­ina.

Maður var hálf­rænu­laus og hafði ekk­ert sofið í þennan tíma síðan maður fór í róð­ur­inn.

Fljót­lega eftir að flug­vélin var búin að sjá okkur kom breskur tog­ari á svæðið.“
Þeim var bjargað. Þetta hafði verið leit­ar­vél.

„Maður var hálf­rænu­laus og hafði ekk­ert sofið í þennan tíma síðan maður fór í róð­ur­inn,“ segir Hannes sem hafði verið vak­andi í um tvo sól­ar­hringa.

„Svo tók varð­skipið við okkur.“

Og það var haldið til Flat­eyrar.

Hannes var skip­stjór­inn, karl­inn í brúnni, sem missti skipið og menn. Hvernig fór þetta með hann?

„Alveg rosa­lega illa.“

Þetta hefur alltaf búið með honum síðan en hann fór þó fljót­lega á sjó­inn aftur.

Þetta kemur enda­laust upp í hug­ann.

Hann hugsar um menn­ina sem hlutu vota gröf.

„Þetta kemur enda­laust upp í hug­ann.“

Það var engin áfalla­hjálp í boði.

„Það var ekk­ert svo­leiðis. Það var ekki búið að finna það upp einu sinni.“

Á for­síðu Morg­un­blaðs­ins 13 . októ­ber 1964 segir meðal ann­ars:

„Þessir menn fór­ust með vb. Mumma:

Pálmi Guð­munds­son, 57 ára, lætur eftir sig sex börn og eitt fóst­ur­barn á aldr­inum 10 ára til tví­tugs. Hann lætur einnig eftir sig aldr­aða móður. Hann var búsettur á Flateyri.

Martin Tausen, 59 ára, fær­eyskur, lætur eftir sig börn í Færeyjum og einn son á Flateyri, þar sem Martin hafði verið búsettur í tíu ár.

Þórir Jónsson, 41 árs, lætur eftir sig unn­ustu og upp­kom­inn son. Hann átti heima á Flateyri.

Hreinn Sig­ur­vins­son, Sæbóli, Ingj­alds­sandi í Önund­ar­firði, 17-18 ára, ógiftur. Á for­eldra á lífi á Ingj­alds­sandi.

Þessir komust af:

Hannes Oddsson, skip­stjóri, 25 ára, kvæntur, barn­laus.

Olav Öyahals, 26 ára, kvæntur og á fjögur börn. Olav er Norð­maður, en hefur átt heima hér sl. 10 ár, þar af átta ár á Flateyri.“

Stórhættulegt skip

Veiði­ferðin sem end­aði svona hófst á hádegi á laug­ar­degi. „Það spáði ágæt­lega. Það var svo­lítið þungur sjór þegar við fórum þarna út. Svo byrj­aði veðrið að versna. Þá var maður hálfn­aður að draga og það var komin hel­vítis bræla þegar við fengum á okkur brot sem henti honum á hlið­ina.“

Hannes var í brúnni og vissi að það var ekki hægt að gera neitt. Sjór var far­inn að flæða inn í brúna og hann komst út um glugga. „Það fyrsta sem ég gerði var að ég fór fram á síð­una á bátnum og dró inn þá sem voru í sjónum. Ég var allur flæktur í línu sem hafði flotið út. Maður var ekk­ert að hugsa um það. Maður bara sleit þetta úr hönd­unum á sér; öngl­arnir voru kræktir í.“

Það komust fimm á kjöl. Einn var niðri í lúkar. Komst aldrei upp.

Tveir bátar úr sama þorpi.

Annars báts frá Flateyri, Sæfells SH 210, var saknað aðfara­nótt þessa sama laug­ar­dags.

„Þeir sögðu á varð­skip­inu að þeir væru að leita að öðru skipi en vildu ekki segja okkur hvaða skip það var.“

Tveir bátar úr sama þorpi. Fánar blöktu víða í hálfa stöng.

„Sæfellið var stór­hættu­legt skip. Þegar ég var stýri­maður á því hafði ég ekki við að smíða til dæmis fiski­kass­ana á dekk­inu. Þegar var bræla þá brotn­uðu þeir. Hann missti alltaf skrúf­una þegar hann valt. Hún bara fór úr sam­bandi og svo kom hún inn aftur þegar hann rétti sig.“

Hvorki Sæfellið né þeir sem voru um borð fund­ust.

Það ólgaði blóðið

Hann sem hélt áfram á sjónum eftir að hafa staðið and­spænis dauð­anum á haf­inu fædd­ist á Akureyri en var árs­gam­all þegar flutt var til Siglu­fjarðar. Og hann seg­ist hafa byrjað í sjó­mennsku átta ára gam­all. „Þetta var þannig að ég hafði verið í sveit inni í Fljótum. Það var nátt­úr­lega mold­ar­gólf í bænum.“

Hannes talar um hafra­graut­inn sem hann fékk í sveit­inni. „Það var eldað upp á vik­una. Graut­ur­inn var orð­inn þannig að þú gast bara skorið hann niður með hnífi. Maður sat yfir þessu í einn og hálfan til tvo tíma þar til maður var rek­inn frá borð­inu. Síðan hef ég ekki getað litið á þetta.

Mér hund­leidd­ist þarna og strauk og fannst niðri við Ketilás. Það var farið með mig á Siglu­fjörð. Svo var bróðir pabba í heim­sókn; hann var vél­stjóri á báti frá Reykja­vík. Á síld. 30 tonna bátur ef hann náði því. Með tvo nóta­báta. Og ég fékk að vera með; ég var allt sum­arið á síld­inni.“

Og kunni vel við það?

„Alveg rosa­lega, maður.“

Þannig að sjó­mennskan var í blóð­inu.

„Bara átta ára polli.

Ég kom ekki heim fyrr en að hausti.

Sumarið eftir var ég alveg óður að reyna að fá pláss á ein­hverju síld­ar­skipi. Það ólg­aði blóðið. Og Stebbi, bróðir mömmu, fékk pláss fyrir mig á Skaft­fell­ingi frá Vest­manna­eyjum með topp­skip­stjóra. Helgi Bergvins hét hann. Frægur afla­maður í Vest­manna­eyjum. Og síldin var fyrir utan Siglu­fjörð. Þannig að það þurfti að taka út og kasta og taka síld­ina inn aftur. Ég var svo hepp­inn að hún var horfin, síldin fyrir utan Siglu­fjörð. Ég kom ekki heim fyrr en að hausti.“

Níu ára gam­all. Polli.

Þegar ég kom niður á bryggju þá var bát­ur­inn far­inn.

Hvernig var hægt að not­ast við strákling­inn um borð?

„Ég var ekk­ert að vinna að öðru leyti nema að þvo galla niðri í stíu. Þeir létu mig hafa skrubb og smíð­uðu borð fyrir mig og svo skrubb­aði ég og fékk ein­hvern tíkall fyrir eða eitt­hvað. Svo var það einu sinni á Húsavík að við fórum að landa. Þetta var á laug­ar­degi og ég fór upp í búð að kaupa nammi. Það var þvaga og opið til klukkan 12. Svo loks­ins komst ég að að kaupa brjóst­syk­ur­s­poka. Svo kom ég niður á bryggju og ég bauð nátt­úr­lega skip­stjór­anum mola. Honum fannst hann svo góður brjóst­syk­ur­inn að hann sendi mig upp í búð til að kaupa fyrir sig. Svo gerði ég það og ég komst loks­ins að eftir dúk og disk og þegar ég kom niður á bryggju þá var bát­ur­inn far­inn.“

Hannes litli var eitt­hvað að væfl­ast á bryggj­unni með brjóst­syk­ur­s­pok­ann þegar sjó­maður á öðrum báti sem lá við bryggju kall­aði í hann og spurði hvort hann hafi ekki verið á Skaft­fell­ingi. „Jú,“ sagði níu ára poll­inn sem var svo spurður hvort hann vildi ekki fara með þeim báti. Og það gerði hann. „Við vorum rétt komnir út í miðjan fló­ann þegar við sáum reykj­ar­mökk. Þá var það Skaft­fell­ingur á fullri leið til baka að ná í gutt­ann. Ég var svo hífður á milli.“

Hannes var á Dagnýju sum­arið eftir. Aðstoð­ar­kokkur. „Það var þriggja hæða lúkar á þessu skipi. Þetta var tré­skip stórt og mikið. Og ég var þarna aðstoð­ar­kokkur 10 ára.“ Hann hlær. „Alltaf þegar átti að fara að vaska upp þá faldi ég mig. „Hvar er hel­vítis gutt­inn,“ sagði karl­inn alltaf.“

Svo var það Frigg í tvö sumur. „Þá var ég full­gildur háseti 13 ára gam­all. Þá kunni ég öll hand­tök og allt.“

Sjó­mennskan var hafin.

Hannes nefnir nokkra báta sem hann hefur verið á. Skip.

„Ég var á tog­ara frá Akureyri, Jörundi, í sex mán­uði. Svo var ég mikið á Elliða. Ég hætti á honum þetta haust sem hann fórst til að fara á nám­skeið á Ísafirði.“

Hvað gerð­ist þegar hann fór niður?

„Suðu­nagli. Þetta var boltað saman eða hnoðað saman, skipið, eins og var gert í þá daga. Og það var farið að gefa sig.“

Elliði fór niður úti á Önd­verð­ar­nesi. Allir um borð björg­uð­ust nema tveir. „Það var talað um að þeir hafi getað kom­ist í björg­un­ar­bát en að leit­ar­skipið hafi keyrt á þá. Þeir voru eitt­hvað illa farnir.“

Hannes hafði verið 23 ára gam­all þegar hann var á Elliða. Svo var hann stýri­maður á Freyj­unni. „Þetta var litla Freyja, þrjá­tíu og eitt­hvað tonn.“

Einhvern tím­ann fór hann á ver­tíð í Vest­manna­eyjum.

Það var ann­ars vegar kista með björg­un­ar­báti í og hins vegar mat­ar­kista. „Þær voru nákvæm­lega eins. Maður vissi ekki hvort það væri brauð­kistan eða hin.“

Eins og túristi

Hannes var stýri­maður á Krist­jáni þegar hann hitti þann sem hafði verið skóla­stjóri þegar hann tók 120 tonnin og spurði Hannes hann hvort hann gæti fengið pláss hjá honum sem stýri­maður. Tveimur mán­uðum síðar hringdi mað­ur­inn í Hannes og spurði hvort hann vildi koma sem stýri­maður á Hval­vík­ina. „4.500 tonna dall. Ég sagði að ég þyrfti að hugsa mig um í einn sól­ar­hring. Svo vorum við Erna vak­andi alla nótt­ina,“ segir hann en þau, hann og konan, voru að velta því fyrir sér hvort hann ætti að taka starf­inu. Og hann sló til. Þetta var 1975.

Hann þurfti að fljúga frá Ísafirði til að fara svo um borð í Hval­vík­ina.

„Það var allt á kafi í snjó og heiðin var lokuð. Ég man ekki hver fór með mig á snjó­sleða. Við vorum búnir að keyra tölu­vert langt upp í heiði þegar við fött­uðum að tösk­urnar hefðu dottið af og þurftum að snúa við. Það var búið að hringja á Ísafjörð og segja að ég væri vænt­an­legur í flugið og hvort þeir gætu ekki beðið og þeir þurftu að bíða í á annan tíma. Svo þegar ég var kom­inn inn í vél­ina og búið var að ganga frá far­angrinum þá sagði ég að ég ætti víst að vera aðstoð­ar­flug­stjór­inn. Ég hélt að það myndu allir yfir­gefa vél­ina,“ segir Hannes sem seg­ist hafa verið svo­lít­ill prakk­ari.

Svo hófst fer­ill­inn í frakt­inni. Og sá fer­ill stóð yfir í 10 ár.

Ég smyglaði sígar­ettum en ekk­ert til að selja af því að maður reykti.

Smyglaði hann ein­hverju?

„Ég er bara svo sak­laus í mér. Ég smyglaði sígar­ettum en ekk­ert til að selja af því að maður reykti. Og þá kost­aði kartonið 300 krónur. Og vod­kafla­skan eitt­hvað svipað. Þegar ég var fyrsti stýri­maður þá var ég með möppur; ég þurfti að halda bók­hald yfir ýmis­legt og þar inni í möpp­unum var ekk­ert nema sígar­ettukarton.“

Hann segir smygl­ara­sögu.

„Það var tog­ari á Siglu­firði sem var að koma í land og einn kall­inn hafði verið að tala við kon­una. Hún sagði að svarta María, það var löggu­bíll­inn, væri á ferð­inni. Og þeir héldu að þetta væru toll­ar­arnir og grýttu öllu draslinu í sjó­inn úti á firði.“ Hann hlær. „Þá var þetta bara löggan á rúnt­inum.“

Hvernig var lífið á frakt­inni? Engin áföll?

Þetta var bara heill mán­uður í Mið­jarð­ar­haf­inu.

„Þetta var æði, maður. Þetta var svo flott að það var eins og maður væri túristi. Þegar ég byrj­aði voru það 50 kílóa pakk­arnir, salt­fisk­pakkar, sem var bara staflað í lest­ina. 3.500 tonn eða eitt­hvað. Og það tekur bara 17 daga að losa. Þú ert kannski úti í Grikk­landi, Aþenu, að losa og svo áttu frí annan hvorn dag sem stýri­maður; þá fór maður til Capri að dúlla sér allan dag­inn. Með ferju. Svona var þetta í Portúgal og á Spáni. Stundum var búið að vera í 17 daga að losa salt­fisk. Svo fór maður í aðra höfn á Spáni að taka salt og þá var 11 daga bið þar til hægt var að lesta. Þetta var bara heill mán­uður í Mið­jarð­ar­haf­inu.“

Hannes seg­ist hafa verið á Hval­vík­inni í á annað ár. „Þá komum við aldrei heim. Við vorum alltaf að sigla erlendis.“

Frúin hefur ekki verið ánægð með það.

„Hún kom og var kokkur. Stóð sig rosa­lega vel í því.“

Hvað tók svo við eftir Hval­vík­ina?

„Eftir Hval­vík­ina fór ég yfir á Eldvík. Þetta er hörku fleyta.“

Þetta er engin sjó­mennska í sjálfu sér að vera á frökt­urum.

„Jú, við vorum að tala við þessa gæja sem voru á varð­skip­unum og köll­uðum þá tusku­kall­ana. Þeir voru alltaf að gera hreint.

Hannes hætti á sjónum tæp­lega sex­tugur.

„Þetta voru orðnir svo langir túrar hjá mér og Erna ein og svona.“ Hann vildi verja tím­anum með kon­unni.

Myndi hann end­ur­taka þetta allt; sjó­mennsk­una?

„Ég myndi örugg­lega gera það. Maður myndi kannski lifa öðru­vísi lífi.“

„Þetta var æði, maður. Þetta var svo flott að það var eins og maður væri túristi.“

Hægt er að sjá allt við­talið hér.

Viðtalið er end­ur­birt. Það var tekið í maí s.l.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ