Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Sigursteinn Másson er með Covid og varar við nýjum afbrigðum: „Mikil hætta á ferðum“

Sigursteinn Másson er með Covid og varar við nýjum afbrigðum: „Mikil hætta á ferðum“
Sig­ur­steinn Másson

Sig­ur­steinn Másson, kvik­mynda­gerð­ar­maður, fram­leið­andi og hand­rits­höf­undur með meiru, er með Covid-19 í fyrsta sinn og vill vara fólk við hinum nýju afbrigðum kór­ónu­veirunnar sem nú grein­ast í síauknum mæli víða um heim. Þau virð­ast bæði bráðsmit­andi og ónæm­ari gegn bólu­setn­ingum og fyrri sýk­ingum en önnur afbrigði sem á undan komu.

Sig­ur­steinn er nú á sjötta degi veik­inda sinna og seg­ist hafa farið í gegnum „allt hlað­borðið af ein­kennum“, fyrir utan þó að missa bragð- og lykt­ar­skyn.

„Þetta er ævin­týra­ferð,“ segir hann þegar blaða­maður spyr hvernig heilsan sé. Hann seg­ist hafa haldið og vonað að hann hafi verið kom­inn í var hjarð­ó­næmis, þar sem hann hafi ekki smit­ast af veirunni áður. Það hafi því miður ekki verið raunin. „Þessi veira hefur þró­ast þannig núna að hún er að sjá svona ræki­lega við sjálfri sér.“

Sig­ur­steinn segir að talað hafi verið um Omicron sem vægt afbrigði, enda hafi fyrstu afbrigðin sem komu frá Suður-Afríku verið það. „En það sem hefur verið að ger­ast núna í vor, sér­stak­lega svo núna í júní og byrjun júlí, er að þessi B4 og B5 afbrigði eru bara alveg búin að taka yfir. Einkenni þeirra eru meira eins og Alfa- og Delta-afbrigðin, sem var upp­hafið að þessu öllu saman á Íslandi og í heim­inum. Það versta við þetta, sem maður les núna, er að þetta myndar ekki ónæmi gegn sjálfu sér eins og öll fyrri afbrigði hafa gert. Sumar grein­arnar sem ég hef verið að lesa núna í morgun segja að allt bendi til þess að fólk geti þess vegna verið að smit­ast af þessum teg­undum af Omicron á mán­að­ar­fresti. Þá erum við í veru­lega vondum málum.“

Und­an­farið hafa fréttir borist af fjölg­andi smitum Covid-19, til að mynda í Bret­landi og Banda­ríkj­unum. Smitum hefur einnig fjölgað tals­vert hér á landi. Hin nýju afbrigði Omicron, BA.4 og BA.5, virð­ast keyra und­an­farna aukn­ingu áfram, en afbrigðin bera nú ábyrgð á yfir helm­ingi nýrra smita í Englandi. Á vef CNN í júní birt­ist frétt sem sagði nýju afbrigðin tvö virð­ist sleppa fram hjá vörnum bæði fyrri smita og bólu­setn­inga. Samkvæmt frétt NBC frá 7. júlí eru afbrigðin þau langal­geng­ustu í nýjum smitum Covid-19 í Banda­ríkj­unum og virð­ast meira smit­andi en fyrri afbrigði. Samtals bera afbrigðin ábyrgð á um 70 pró­sentum nýrra til­fella í Banda­ríkj­unum.

Ýmist í ökkla eða eyra

„Í ljósi þessa, af því að þetta er alveg ný staða, finnst mér skorta umræðu um þetta – ég furða mig í raun­inni á því að hafa hvergi séð þetta í fjöl­miðlum öðru­vísi en að virki­lega leita að þessu. Það er ýmist í ökkla eða eyra í þessu. Þetta var alveg full­mikið á sínum tíma; það var ekki hægt að opna fjöl­miðla öðru­vísi en að allt væri vað­andi í þessu. En núna, þegar við erum í þess­ari stöðu, þá finnst mér mjög merki­legt að það skuli ekki vera miklu meiri umfjöllun. Maður sér auð­vitað að rann­sókn­irnar eru frekar svona á byrj­un­ar­stigi. Þau hafa verið að rann­saka hamstra og eitt­hvað, til þess að reyna að skoða sam­an­burð­inn á þessu og öðrum afbrigðum. En það sem kemur í ljós er að ein­kennin af þessu eru alvar­legri en af fyrri afbrigðum Omicron, það góða við það var að það fór ekki í lungun. Þess vegna hefur það ekki drepið fólk eins mikið og fyrri afbrigðin. En þetta getur farið í lungun. Þetta er búið að taka yfir öll hin afbrigðin og það hefur bara gerst á nokkrum dögum. Þannig að ég er bara hissa á því að það skuli þá ekki alla­vega vera umræða um það, að fólk sé þá ekki að láta eins og eng­inn sé morg­un­dag­ur­inn.“

Honum þykir það and­rúms­loft alltum­lykj­andi, að allt sé í lagi og ekk­ert hafi í skorist. „Við þurfum að fara var­lega og þetta er ný staða. Ég skil ekki hvers vegna sótt­varna­læknir er ekki að koma opin­ber­lega fram með þetta.“

Sig­ur­steinn seg­ist ekki í nokkrum vafa um að hann sé með annað þess­ara nýju afbrigða, lík­lega BA.5, miðað við þau ein­kenni sem hann hefur haft. Honum finnst mik­il­vægt að fólk sé með­vitað um þessa nýju stöðu, þar sem smitum hafi fjölgað gríð­ar­lega síð­ustu daga vegna afbrigð­anna.

„Ég myndi aldrei fara að mæla með ein­hverjum ströngum aðgerðum af því að ég var heldur aldrei hrif­inn af slíkri aðferða­fræði. En þess þá heldur, held ég þá að fólk þurfi að gæta sín áður en komið er í algjört óefni með þetta. Það gæti gerst mjög hratt. Miðað við það að þeir eru að tala um að þetta smit­ist 30 til 40 pró­sent meira en önnur Omicron-afbrigði og þau hafa smit­ast miklu meira en öll fyrri afbrigðin. Þegar við erum komin með afbrigði sem hegða sér á margan hátt og valda ein­kennum eins og Alfa og Delta, en miklu meira smit­andi en þau, og mynda ekki ónæmi gegn sjálfum sér, þá geta bara orðið rað­veik­indi út úr þessu.“

Hefur áhyggjur af samkomum á næstunni

Hann seg­ist telja mik­il­vægt að farið verði yfir stöð­una og það hvernig best sé að hegða sér. „Áður en við förum inn í versl­un­ar­manna­helg­ina og þetta sem er fram undan.“

„Ég er bara leik­maður að fara í gegnum þetta núna og upp­lifa þetta, en ég sit nátt­úr­lega hérna í kóf­inu og hef ekk­ert annað að gera en að lesa bæði fræði­greinar og umfjöllun erlendra fjöl­miðla um þetta. Ég sé bara á síð­ustu dögum að það eru að koma fram upp­lýs­ingar sem hljóta að kalla á, ekki ein­hverjar strangar aðgerðir, en að almenn­ingur sé hvattur til þess að fara gæti­lega. Ég heyri af partíum heima og svo eru veik­indi í kjöl­farið og fólk bara ein­hvern veg­inn lætur sig hafa það. En það er bara tím­spurs­mál hvenær þetta springur í and­litið á okkur ef við ætlum ekki að gæta okkar.“

Grímurnar minnst íþyngjandi

Sig­ur­steinn er staddur á Spáni í fríi. Hann segir reglur þar ekki miklar, en það sé þó grímu­skylda á vissum stöðum.

„Hér þarf maður að vera með and­lits­grímu í lest­unum og auð­vitað í flug­vélum. Í apó­tekum þarf maður að vera með grímu og á sjúkra­húsum er grímu­skylda. Þannig að þetta er bara eins og heima, nema að þessi grímu­skylda er til staðar.

Ég held að það væri alveg hægt að íhuga það heima, því það er auð­vitað væg­asta formið á þess­ari frels­is­skerð­ingu sem við höfum þurft að fara í gegnum að mínu mati, það er þessi grímu­skylda. Og ein sú áhrifa­mesta. Þá er maður ekki að frussa framan í fólk. Þannig á þetta að geta verið, ef hver og einn er var­kár.

Það sem er nátt­úr­lega verst í þessu eru fyll­er­íssam­komurnar, þar sem hverfa nátt­úru­lega öll mörk. Núna vona ég að ég sé ekki að mála skratt­ann á vegg­inn, en ef ég skil þessar frétta- og vís­inda­greinar rétt, þá er hér bara mikil hætta á ferðum.“

Hann nefnir sömu­leiðis við­kvæma hópa sam­fé­lags­ins. „Ég á eftir að klára þetta, en móðir mín… Ef ein­kennin sem ég er að fara í gegnum er það sem fólk má almennt eiga von á með þessi nýju afbrigði, og ef þetta verður jafn útbreitt smit og hætta er á, þá býð ég ekki í það.“

Hann segir okkur virki­lega verða að fara að læra að lifa með ástand­inu eins og það er.

„Þetta kallar á breyttan lífsmáta. Á að við gerum hlut­ina öðru­vísi og gæti­legar. Að við sýnum hvert öðru meiri nær­gætni.“

Horfum fram á nýja tíma

Sig­ur­steinn segir okkur horfa fram á nýja tíma. „Veiran virð­ist vera búin að sjá leið. Öfugt við það sem maður hélt, að Omicron-afbrigðið myndi verða til þess að við myndum loks­ins ná hjarð­ó­næmi og losna við þetta – þetta myndi bara hverfa inn í sum­arið – þá er hún bara búin að finna enn eina leið­ina. Kannski vissu Kín­verjarnir eitt­hvað sem við erum að kom­ast að núna, og voru þess vegna með sínar dragonísku og hörðu aðgerðir, og eru með enn þá fram á þennan dag. Það er alla­vega ljóst að hún er að leika á okkur enn í dag. Þetta er lúmskur skratti, en við verðum að bera virð­ingu fyrir henni af því að þetta er ein­hver vera sem er ansi mikið að kenna okkur lexíu,“ segir Sig­ur­steinn.

„En það er undir okkur hverjum og einum komið hvort við látum þetta setja okkur á ein­hvern svona stað eins og við vorum á, með til­heyr­andi ömurð, leið­indum og erf­ið­leikum, eða hvort við lærum ein­hvern veg­inn í alvör­unni að lifa með þessu. Skilja hvað þetta er.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð