Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Regína Ásvaldsdóttir, nýráðinn bæjarstjóri í Mosfellsbæ: Vil frekar horfa fram á veginn en til baka

Regína Ásvaldsdóttir, nýráðinn bæjarstjóri í Mosfellsbæ: Vil frekar horfa fram á veginn en til baka
REgína Ásvalds­dóttir bæj­ar­stjóri Mos­fells­bæjar Mynd: Birgir Ísleifur Gunnarsson

„Ég mun leggja áherslu á að vinna vel með nýkjörnum bæj­ar­full­trúum og því góða starfs­fólki sem vinnur í Mos­fellsbæ. Þjónusta við bæj­ar­búa er mik­il­væg­asta verk­efnið að mínu mati, sam­skipti og ekki síst sam­ráð við hags­muna­að­ila í ein­staka mála­flokkum. Mos­fells­bær hefur orð á sér fyrir að vera mjög fjöl­skyldu­vænn bær og það er mik­il­vægt að þær áherslur haldi sér. Það geta komið miklir vaxt­ar­verkir sam­fara stækkun bæj­ar­ins og er að mörgu að huga í því sam­bandi,“ segir Regína Ásvalds­dóttir sem hefur verið ráðin bæj­ar­stjóri Mos­fells­bæjar og er áætlað að hún taki við í byrjun sept­em­ber.

Regína var um ára­bil bæj­ar­stjóri Akra­nes­kaup­staðar en hefur und­an­farin ár verið sviðs­stjóri vel­ferð­ar­sviðs Reykja­vík­ur­borgar.

Mynd frá bæj­ar­stjóra­tím­anum á Akranesi. Með Höllu Bergþóru Björns­dóttur, þáver­andi sýslu­manni og núver­andi lög­reglu­stjóra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, við vígslu á Akra­torgi 17. júní 2014.

„Eitt af stærri verk­efn­unum mínum á Akranesi tengd­ist sem­ents­reitnum en það þurfti að semja um eign­ar­hald á reitnum við bæði banka og fyr­ir­tæki til að hefja skipu­lags­vinnu og nið­ur­rif á mann­virkjum. Önnur verk­efni tengd­ust stefnu­mótun í atvinnu­málum, upp­bygg­ingu gamla mið­bæj­ar­ins, skipu­lag á Breið­inni, sem er vita­svæði á Akranesi, og einnig Guðlaugu sem er heit laug á Langa­sandi og mjög vin­sæl. Ég var svo heppin að starfa með flottum ein­stak­lingum í bæj­ar­stjórn og það var yfir­leitt gott sam­starf á milli meiri- og minni­hluta sem skiptir miklu máli.

Covid hafði mikil áhrif á vel­ferð­ar­svið.

Á vel­ferð­ar­sviði hefur verið mikil upp­bygg­ing á síð­ustu árum, meðal ann­ars í búsetu fyrir fatlað fólk og einnig fyrir heim­il­is­laust fólk. Ég tók þátt í mjög öfl­ugri stefnu­mótun á sviði þjón­ustu­mála en sviðið er á fleygi­ferð inn í nútím­ann með staf­rænni umbreyt­ingu og hefur verið í for­ystu þar um hjá borg­inni. Covid hafði mikil áhrif á vel­ferð­ar­svið en við erum að reka um 116 starfsein­ingar og þar af eru um 70 sól­ar­hrings­stofn­anir sem þurftu að vera starf­andi allan tím­ann þrátt fyrir veik­indi starfs­manna. Það tókst að sinna íbúum og verja þá að miklu leyti fyrir smitum vegna útsjón­ar­semi og metn­aði hjá stjórn­endum og starfs­mönnum sviðs­ins sem lögðu ómælda vinnu á sig til að allt gengi upp. Mér finnst ég aldrei geta full­þakkað þessum hvunn­dags­hetjum nóg­sam­lega fyrir þrek­virkið. Ég þrífst í krefj­andi og skemmti­legum verk­efnum og ég vil frekar horfa fram á veg­inn en til baka.“

Frá und­ir­ritun samn­ings um geð­heilsuteymi í Reykja­vík með Degi B. Egg­erts­syni borg­ar­stjóra, Svandísi Svav­ars­dóttur, þáver­andi heil­brigð­is­ráð­herra, og Óskari Reyk­dals­syni.

Mikilvægt að grípa strax inn í

Regína er gift Birgi Pálssyni, tölv­un­ar­fræð­ingi og deild­ar­stjóra hjá Íslenskri erfða­grein­ingu. „Ég á tvær dætur af fyrra hjóna­bandi, Ernu Maríu og Ýr, og Birgir á eina dóttur, Auði Kolbrá. Við höfum verið gift í 20 ár og elskum að ferð­ast og spila golf og gera alls konar skemmti­lega hluti. Ég fæ líka mikla nær­ingu úr því að ganga á fjöll og var að koma úr frá­bærri ferð til Cornwall á Suð­vestur Englandi með systrum mínum, eldri dóttur minni og syst­ur­dætrum í dásam­legu umhverfi og góðu veðri.“

Hjónin Regína og Birgir Pálsson.
Því miður hefur þró­unin verið í þessa átt hér á landi.

Regína er spurð um lífs­reynslu sem hefur mótað hana. „Það er mjög margt sem mótar mann í gegnum lífs­leið­ina en ekk­ert eitt sem stendur upp úr. Ég lærði snemma að vinna og bjarga mér sjálf og er af þess­ari kyn­slóð sem setur vinn­una svo­lítið í for­gang í líf­inu. Í vel­ferð­ar­mál­unum þarftu oft að horfast í augu við ein­stak­linga sem eru á sínum versta stað í líf­inu og þurfa að reiða sig á kerfið. Mér finnst mjög mik­il­vægt að bregð­ast ekki því trausti sem og að vera til staðar og aðstoða við að finna lausnir. Ég hef verið í mörgum krefj­andi störfum í gegnum tíð­ina en það er ennþá ekk­ert sem jafn­ast á við fyrsta árið mitt sem félags­ráð­gjafi á barna­vernd­ar­skrif­stofu Osló­ar­borgar. Það var mikil neysla á hörðum efnum í gangi á þessum árum og hrika­lega erf­iðar aðstæður sem sum börn komu úr. Því miður hefur þró­unin verið í þessa átt hér á landi og gríð­ar­lega mik­il­vægt að grípa strax inn í þessi mál og reyna að aðstoða börnin og fjöl­skyld­urnar. Ég hugsa oft um hvað það eru mikil for­rétt­indi að vera heil­brigður og hafa tæki­færi til náms og starfa og við sem sam­fé­lag megum aldrei gleyma þeim sem þurfa stuðn­ing í sínu dag­lega lífi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð