Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Lind Draumland Staða þeirra sem þjást af geðrænum veikindum að öllu leyti óásættanleg

Lind Draumland Staða þeirra sem þjást af geðrænum veikindum að öllu leyti óásættanleg
Lind Draum­land Völ­und­ar­dóttir

Lind Draum­land Völ­und­ar­dóttir er nýráð­inn skóla­meist­ari Fram­halds­skól­ans í Austur-Skafta­fells­sýslu. Hún hefur starfað við skól­ann í fjögur ár, seg­ist þekkja starf­sem­ina og fannst hún eiga fullt erindi til að sækja um.

Á hvað vill hún leggja áherslu í starf­inu svo sem varð­andi nýj­ungar og þróun skól­ans?

„Það hefur verið unnið frá­bært starf í FAS á und­an­förnum árum og ára­tugum. Forverar mínir í starfi hafa ekki verið neinir með­al­menn og mun ég halda því góða starfi áfram. Áherslur mínar tengj­ast því að efla list, verk- og tækni­nám og efla fjar­náms­mögu­leika, styrkja fjalla­mennsku­námið sem er ein­stakt nám á Íslandi og síð­ast en ekki síst taka lengra til­rauna­verk­efni sem hefur verið starf­rækt innan skól­ans síð­ast­liðnar þrjár annir. Verk­efnið heitir „Jákvæð heilsu­efl­ing“ en þar erum við að hlúa meðal ann­ars að vel­ferð með aðferðum núvit­undar, jóga og mark­þjálf­unar.“

Að gera gott betra

Grunn­menntun Lindar teng­ist iðn­námi en hún er kjóla­meist­ari. „Eftir það nám þá fór ég í mynd­list­ar­nám við Lista­há­skóla Íslands og í fram­halds­nám í Hollandi þar sem ég ílengd­ist, stund­aði mynd­list, gifti mig og gerði fleira skemmti­legt,“ segir Lind sem er með fjöl­breytta menntun en hún er með MA í menn­ing­ar­stjórnun frá Háskól­anum á Bifröst, M.Ed. í kennslu­fræði frá Háskóla Íslands og auk þess kennslu­rétt­indi frá Háskóla Íslands. Þá er hún með diplómu í jákvæðri sál­fræði frá End­ur­menntun Háskóla Íslands og svo hefur hún lokið mark­þjálfun, ACSTH, frá Profectus. Lind lýkur síðar á þessu ári  M.S.-námi í jákvæðri sál­fræði við Buckinghamshire New Uni­versity.

Lind var for­stöðu­maður bún­inga­deildar Íslensku óper­unnar á árunum 2011-2015. Hún hefur starfað sem verk­efna­stjóri félags­lífs hjá Fram­halds­skól­anum í Austur-Skafta­fells­sýslu frá árinu 2018 þar sem hún hefur meðal ann­ars unnið að mótun lista- og menn­ing­ar­sviðs skól­ans. Þá hefur hún sam­an­lagt níu ára kennslu­r­eynslu bæði á grunn­skóla- og fram­halds­skóla­stigi.

Heima­gangar á mínu heim­ili voru meðal ann­ars Alfreð Flóki, Dagur Sig­urð­ar­son, Pétur Pálsson og Jónas Svafár.

Hvers vegna þessar áherslur í náms­leiðum?

„Mitt bernsku- og upp­vaxt­ar­um­hverfi var list­um­hverfið og það lá ein­hvern veg­inn bein­ast við að fara í þá átt; skrifa ljóð, búa til mynd­list og fal­leg föt. En á leið­inni átt­aði ég mig á því að ham­ingja, vel­ferð og feg­urð voru aðal­við­fangs­efnin. Pabbi minn, Völundur Draum­land Björns­son, var mynd­list­ar­maður og heima­gangar á mínu heim­ili voru meðal ann­ars Alfreð Flóki, Dagur Sig­urð­ar­son, Pétur Pálsson og Jónas Svafár og allt hafði þetta fólk mikil áhrif  og tölu­verða við­veru á æsku­heim­il­inu þar sem pabbi var alltaf með vinnu­stofu heima.

Félags­legar aðstæður ráða miklu um vel­ferð fólks en þær aðstæður er hægt að bæta mikið með menntun. Við erum svo heppin í þessu landi að búa við opin­bert skóla­kerfi sem á að tryggja öllum ein­stak­lingum sömu menntun; það er grunn­stefið. Ég er þeirrar skoð­unar að í skóla­starfi leggjum við of mikla áherslu á mæli­kvarða sem hafa ekk­ert með menntun að gera. Kennslu­fræði, stjórnun, mark­þjálfun og jákvæð sál­fræði eiga mjög margt sam­eig­in­legt, til dæmis það að setja mann­eskj­una í miðj­una og kraft hennar til að hafa áhrif á eigin líf. Í öllum þessum greinum er lögð áhersla á afl breyt­inga, að gera gott betra og miklu betra. Við getum sagt að „besta“ allt.“

Pírati

Lind var í fram­boði fyrir Pírata til Alþingis í Suð­ur­kjör­dæmi í fyrra. Hvers vegna Píratar og hvers vegna gaf hún kost á sér?

„Ef við fylgj­umst með póli­tík þá er auð­velt að sjá kosti Pírata; mál­efnin ráða ferð­inni, gagn­sæi er bar­áttu­mál, heið­ar­leg stjórn­mál og vönduð vinnu­brögð. Það er helst þetta; fyrir utan það hversu frá­bærir Píratar eru. Eins og okkar ágæti heim­spek­ingur Páll Skúlason sagði svo fal­lega eitt­hvað á þessa leið: „Við tökum öll þátt í póli­tík alla daga, hvort sem við viljum það eða ekki.“ Þannig að gefa kost á sér, taka þátt, bjóða fram krafta sína til góðs og vera þátt­tak­andi en ekki áhorf­andi í lífi sínu og mótun umhverf­is­ins.“

Segir hún að „þátt­taka“ sé mottóið.

Lind hefur sinnt ýmsu í gegnum árin þegar kemur að félags­mála­starfi og segir hún að „þátt­taka“ sé mottóið.

Listir, sköpun og menning

Lind er úr Reykja­vík.

Ég ætl­aði að bjarga plánet­unni en á ung­lings­árum þá trúði ég á kraft ljóðs­ins til þess verks.

„Þorpið 101 Reykja­vík eru mínar æsku­slóðir en móðir mín, Steinunn Svein­bjarn­ar­dóttir, fædd­ist í Svefn­eyjum á Breiða­firði en bjó í Flatey til ferm­ing­ar­ald­urs. Faðir hennar var eyja­maður en móðir hennar var frá Mjó­a­firði á Aust­ur­landi. Faðir minn fædd­ist hins vegar og ólst upp í Reykja­vík, 101 Reykja­vík, en var frá Horn­ströndum í móð­ur­ætt og Langa­nesi í föð­ur­ætt. Í minni bernsku var kjarn­orku­váin það hræði­leg­asta og ég ætl­aði að bjarga plánet­unni en á ung­lings­árum þá trúði ég á kraft ljóðs­ins til þess verks.“

Draum­land. Hver er til­urð nafns­ins?

„Þetta var milli­nafnið hans pabba míns. Okkur í fjöl­skyld­unni finnst það fal­legt svo sum okkar höfum tekið það upp. Þetta nafn var hins vegar mála­miðlun því amma vildi að hann héti Völundur Brosandi land en prest­ur­inn þvertók fyrir það þannig að Draum­land var lend­ingin.“

Lind á fjögur upp­komin börn og býr með eig­in­manni sínum, Tim Junge, og íslenska hund­inum þeirra, Káti, á Höfn.

Hver eru áhuga­málin?

„Listir, sköpun og menn­ing eru aðal­á­huga­málin. Á Höfn rekum við hjónin heimagall­er­íið MUUR í sam­vinnu við Menn­ing­ar­mið­stöð Horna­fjarðar. Við höfum einnig, ásamt elstu dóttur minni, Perlu Torfa­dóttur, gefið nokkrum sinnum út lista­daga­talið List í 365 daga þar  sem 365 lista­verk eru til sýnis á jafn­mörgum síðum.“

Langt á eftir

Það er ýmis­legt sem mótar fólk á lífs­leið­inni og aðspurð um það segir Lind:

„Það er svo margt sem mótar mann á lífs­leið­inni; verk­efnin sem líta út fyrir að vera óyf­ir­stíg­an­leg eru oft þau sem móta mann mest. Það var í mínu ung­dæmi nær ómögu­leg til­hugsun að stíga fram vegna kyn­bund­ins órétt­lætis og áreitni. Þau áföll átti maður sjálfur og einn. Það voru ekki einu sinni til orð um þá reynslu. Það gefur svo mikla von að fylgj­ast með því hvernig hug­rakkt fólk um allan heim hefur verið að opna á órétt­læti og kúg­un­ar­mynstur. Ég legg þeirri bar­áttu alltaf lið.“

Við erum langt á eftir í mann­rétt­inda­málum.

Barna­barn Lindar greind­ist með geð­sjúk­dóm á sínum tíma.

„Staða þeirra sem þjást af geð­rænum veik­indum á Íslandi í dag er að öllu leyti óásætt­an­leg. Við erum langt á eftir í mann­rétt­inda­málum og lækn­inga­að­ferðum þegar litið er til þessa hóps. Veikindi eru alltaf áföll en við erum ekki áföllin sem við lendum í heldur miklu frekar veg­ur­inn til bata og að þessu sögðu þá er ég sann­færð um að við þurfum að hætta að ein­blína á sjúk­dóm­inn en ein­beita okkur að bata­ferl­inu. Allir eiga rétt á góðu lífi.“

Hverjir eru draumar nýráð­ins skóla­meist­ara?

„Að menntun geri okkur að því besta sem við getum orðið, að stríðin í heim­inum hætti og að okkur tak­ist að bjarga plánet­unni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð