Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Sólveig tilbúin að láta sverfa til stáls – Elítan geti „ekki látið eins og börnin passi sig sjálf“

Sólveig tilbúin að láta sverfa til stáls – Elítan geti „ekki látið eins og börnin passi sig sjálf“
Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar. Mynd/skjá­skot RÚV

Óhætt er að segja að það sé bar­áttu­hugur í Sólveigu Önnu Jóns­dóttur, for­mann Eflingar, ef marka má pistil sem hún birtir á Facebook. Þar seg­ist hún ekki ótt­ast kom­andi kjara­bar­áttu, því öllum sé ljóst að hennar fólk skapi verð­mæti sam­fé­lags­ins. Hún segir ekki kvíða kjara­samn­ingum, því þeir séu „póli­tískt tæki­færi til að ná efna­hags­legum árangri“.

„Ég hef ekki áhyggjur af kom­andi kjara­bar­áttu. Ég myndi kannski hafa áhyggjur ef að verka og lág­launa­fólk væri enn fast í því ástandi sem ríkti fyrir ekki svo löngu, þegar búið var að ákveða að „stöð­ug­leiki“ næð­ist fyrst og fremst með því að „þjóð­ar­sátt“ ríkti um að vinnu­aflið fengi úthlutað nákvæm­lega þeim brauð­molum sem að reikni­meist­arar valds­ins náðu nið­ur­stöðu um að væru nægi­lega margir. En við Eflingar-fólk höfum náð raun­veru­legum árangri í að kom­ast undan þessu ástandi, ástandi sem skap­að­ist vegna og var við­haldið af getu­leysi og áhuga­leysi for­ystu vinn­andi fólks gagn­vart því að sýna metnað, dirfsku, vinna vinn­una sína. Sem er hver? Jú, að gera allt sem hægt er til að tryggja að máttur verka og lág­launa­fólks, og geta, séu sem allra mest þegar að því kemur að semja um það sem mestu máli skiptir; hvað fólk fær fyrir að selja aðgang að vinnu­afl­inu sínu, hvaða lífs­kjör boðið er upp á í sam­fé­lag­inu,“ segir Sólveig.

Hún segir fyrri for­ystu ekki hafa haft áhuga á öðru en að við­halda óbreyttu ástandi. „Forysta verka og lág­launa­fólks hér á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafði ekki áhuga á þessu verk­efni. Hún hafði áhuga á því að við­halda óbreyttu ástandi, fölskum stöð­ug­leika og því að taka „sam­talið“ við valda­stétt­ina, fram­hjá vinnu­afl­inu. Hún hafði áhuga á að til­heyra stétt stjór­anna, ekki því að vera í fylk­ing­ar­brjósti raun­veru­legrar og árang­urs­ríkrar stétta­bar­áttu. Hún hafði áhuga á stétta­sam­vinnu, ekki stétta­bar­áttu,“ segir Sólveig.

Hún segir elítu lands­ins ekki geta látið eins og gólfin skúri sig sjálf eða börnin passi sig sjálf. „Raun­veru­leg stétta­bar­átta byggir upp póli­tískan mátt vinnu­aflsins svo að hann sé í sam­ræmi við grund­vallar-mik­il­vægi verka­fólks í þjóð­hags­legri verð­mæta­fram­leiðslu. Það gerir hún með því að kenna okkur sam­stöðu og dirfsku, og með því að sýna okkur hvað ber árangur. Hún gerir okkur ljóst að ef við erum óvirk og ósýni­leg upp­skerum við ekk­ert nema meiri jað­ar­setn­ingu, meiri ósýni­leika, sífellt minni völd, þangað til að við endum á þeim stað að þau eru engin. Hún kennir okkur að ef við erum virk og sýni­leg getum við raun­veru­lega skapað ástand þar sem að valda­stéttin getur ein­fald­lega ekki lengur látið eins og við séum ekki til. Getur ekki látið eins og börnin passi sig sjálf, veg­irnir leggi sig sjálfir, húsin byggi sig sjálf, mat­varan fram­leiði sig sjálf, kaffi­húsin og hót­elin reki sig sjálf. Gólfin skúri sig sjálf. Getur ekki látið eins og hinn efn­is­legi veru­leiki þjóð­fé­lags okkar sé ekk­ert annað en sjálf­sögð nið­ur­staða afburða hæfi­leika þeirra til að vera ein­hvers­konar meritókrat­ísk yfir­stétt (!).“

Sólveig segir raun­veru­lega sigra innan seil­ingar. „Raun­veru­leg stétta­bar­átta getur skapað ástand þar sem að öllum verður það algjör­lega aug­ljóst hver vinna vinn­una sem skapar verð­mætin og hver vinna vinn­una sem gerir verð­mæta­sköp­un­ina mögu­lega. Það er til­gangur raun­veru­legrar stétta­bar­áttu. Hún skapar ástand þar sem að grund­vall­ar­mik­il­vægi vinnu verka­fólks í þjóð­fé­lag­inu getur engum dulist og þau sem við­ur­kenna ekki grund­vall­ar­mik­il­vægið verða sjálfum sér til skammar með því að opin­bera heimsku sína og/eða óheið­ar­leika. Hún skapar ástand þar sem að raun­veru­legir sigrar eru mögu­legir.“

Hún seg­ist nú þegar hafa náð árangri, sem aðrir innan verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar vildu gefa eftir. „Við, félags­fólk Eflingar, höfum háð raun­veru­lega stétta­bar­áttu. Og við höfum náð raun­veru­legum árangri. Eitt dæmi um þann árangur er sú stað­reynd að það var stað­festa Eflingar sem stöðv­aði áhlaup valda­stétt­ar­innar á kjara­samn­ings­bundnar hækk­anir vinnu­aflsins í Covid-far­aldr­inum. Valda­stéttin taldi víst að hægt væri að fá verka­lýðs­hreyf­ing­una til að gefa eftir hækk­an­irnar, enda sýndi reynslan úr Hruninu að fátt var auð­veld­ara en að fá verka­lýðs-stjór­ana til að gefa eftir hags­muni vinnu­aflsins (allt í nafni stöð­ug­leik­ans). Innan hreyf­ing­ar­innar var sann­ar­lega vilji til þess að kippa hækk­un­unum úr sam­bandi.“

Hún segir mun­inn á sér og öðrum að hún er til­búin til að láta sverfa til stáls. „En Efling sagði Nei, kemur ekki til greina. Hvers­vegna virk­aði Nei-ið okkar? Vegna þess að við höfðum sýnt að við stóðum saman, að við sjálf skildum grund­vallar-mik­il­vægi okkar og að við vorum til­búin til að láta sverfa til stáls, ef að þess var kraf­ist. Vegna þess að við vorum búin að byggja upp nægi­lega mik­inn mátt og getu; vorum ekki óvirk og ósýni­leg heldur fær um að senda skýr póli­tísk skila­boð. Vorum fær um að senda skila­boð um að dagar stétta­sam­vinnu á kostnað verka­fólks væru liðnir, að þau sem réð­ust að okkur þyrftu þá að vera til­búin í raun­veru­leg og hatrömm átök.“

Hún seg­ist því ekki kvíða kjara­samn­ingum. „Ég kvíði ekki kom­andi kjara­bar­áttu. Hún verður raun­veru­leg stétta­bar­átta. Og félags­fólks Eflingar mun mæta til leiks með allra mik­il­væg­ustu vit­neskju vinnu­aflsins í fartesk­inu: Vinna okkar skapar verð­mæti sam­fé­lags­ins og gerir sköpun þeirra mögu­leg með því að halda uppi umönn­un­ar­kerf­unum. Fólk sem veit þetta, fólk sem skilur að það er ómissandi að öllu leiti þarf ekki að kvíða. Það mætir stjórum þessa lands hnar­reist og segir: Við sættum okkur ekki við að vellyst­ingar ykkar séu á kostnað okkar. Við krefj­umst rétt­lætis og við krefj­umst þess að okkar hags­munir séu settir í fyrsta sæti.

Sá tími er lið­inn að Eflingar-fólk kvíði kjara­samn­ingum. Fyrir okkur eru þeir póli­tískt tæki­færi til að ná efna­hags­legum árangri. Og er það ekki frekar aug­ljóst um leið og þið hugsið um það?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Atvikið varð við lögreglubifreið eftir að dyraverðir höfðu óskað aðstoðar
Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Innlent

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

„Þegar ég sat á Alþingi fékk ég yfir mig gríðarlega reiði vegna útlendingamála. Haturspósta, persónulegar árásir og líflátshótanir.“
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ