Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Sölvi Tryggvason saklaus af því að misþyma vændiskonu – Sakaður um glæp sem annar maður framdi

Sölvi Tryggvason saklaus af því að misþyma vændiskonu – Sakaður um glæp sem annar maður framdi
Sölvi Tryggva­son

Það ætl­aði allt vit­laust að verða í byrjun maí­mán­aðar fyrir rúmu ári þegar einka­þjálf­ar­inn Ólöf Tara Harð­ar­dóttir, sem í dag er einn með­lima Öfga, fjall­aði á sam­fé­lags­miðlum um þjóð­þekktan ein­stak­ling sem átti að hafa keypt sér kyn­lífs­þjón­ustu og gengið síðan í skrokk á vænd­is­kon­unni. Fullyrt var að sá þjóð­þekkti hefði verið hand­tek­inn á staðnum og færður í varð­hald. Atvikið átti að hafa átt sér stað um miðjan mars­mánuð í fyrra. Fleiri áhrifa­valdar tjáðu sig um málið í kjöl­farið og hart var gengið á fjöl­miðla lands­ins fyrir að þagga málið niður.

Ástæða þess að Ólöf Tara birti færsl­una var sú að hún hafði fengið gjör­sam­lega nóg af þöggun sam­fé­lags­ins gagn­vart kyn­ferð­is­of­beldi gegn konum hér á landi. Hún nafn­greindi engan í færsl­unni en vís­aði til  þess að ofbeldi hins þjóð­þekkta væri á allra vörum. Ólöf vildi ekki nafn­greina hinn þjóð­þekkta ein­stak­ling en sam­kvæmt lýs­ingum hennar væri við­kom­andi afar við­kunn­an­legur og með stóran fylgj­enda­hóp á sam­fé­lags­miðlum. Hún hvatti fjöl­miðla til að birta fréttir af sögu­sögn­unum sem voru á sveimi í sam­fé­lag­inu um að þekktur ein­stak­lingur hefði keypt kyn­lífs­þjón­ustu af vænd­is­konu og gengið svo í skrokk á henni.

„Ég þurfti að slá stjörnu­rykið úr aug­unum á mér þegar ég heyrði af þessu fyrst. Það er mik­il­vægt að setja and­lit á ofbeldi. Þú getur nefni­lega verið alveg ótrú­lega fokk­ing næs en samt beitt ofbeldi,“ sagði Ólöf.

Síðar kom í ljós að ein­stak­ling­ur­inn í hinum þrá­látu sögu­sögnum var fjöl­miðla­mað­ur­inn Sölvi Tryggva­son. Þrátt fyrir að hafa ekki verið nafn­greindur í fréttum var nafn hans úti um allt í kommenta­kerfum og á sam­fé­lags­miðlum.  Sölvi steig síðan fram og tjáði sig í eigin hlað­varpi Þar neit­aði hann því að hafa verið hand­tek­inn eða að vera mað­ur­inn sem um ræddi.

Nú hefur Mannlíf fengið það stað­fest frá lög­regl­unni að hinn brot­legi hafi sann­ar­lega verið annar maður. Heim­ild­ar­menn innan lög­regl­unnar stað­festa að glæp­ur­inn hafi sann­ar­lega átt sér stað á þessum tíma, en hinn brot­legi hafi verið annar maður en Sölvi. Metoo-bylgjan sem hófst með sögu­sögn­unum um fjöl­miðla­mann­inn og sú bylgja stendur enn yfir, hófst því á röngum sak­ar­giftum

Maðurinn sem um ræðir var hand­tek­inn og settur í gæslu­varð­hald fyrir að ganga í skrokk á vænd­is­konu á sama tíma og sögur um Sölva fóru á kreik, vorið 2021. Eftir því sem Mannlif kemst næst ját­aði mað­ur­inn, sem er ekki þjóð­þekktur, sök og var í kjöl­farið færður í gæslu­varð­hald. Dómur í mál­inu er enn ekki fall­inn, en ekki ætti að vera langt í nið­ur­stöðu.

Mannlíf ræddi við lög­mann sem um tíma kom að máli hins brot­lega, sem sner­ist um ofbeldi gegn vænd­is­konu í leigu­í­búð í höf­uð­borg­inni. Starfs sína vegna getur lög­mað­ur­inn ekki komið fram undir nafni.

„Þessi árás átti sér vissu­lega stað. Sölvi kom henni bara engu nálægt. Tíma­setn­ingin passar og sjón­var­vottar hlúðu að kon­unni. Við­kom­andi var hand­tek­inn á vett­vangi og úrskurð­aður í gæslu­varð­hald í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur. Eftir því sem ég best veit hefur hann geng­ist við brotum sínum. Ég er bund­inn trún­aði, en mér fannst hrika­legt að fylgj­ast með atburð­ar­rásinni í fjöl­miðlum,” segir lög­mað­ur­inn.

Mannlíf hefur fengið það stað­fest frá öruggum heim­ildum innan lög­regl­unnar að hún hafi ekki þurft að hafa afskipti af Sölva vegna ofbeldis gegn vænd­is­konu og að hann hafi aldrei verið hand­tek­inn. Eins og áður sagði var full­yrt á sínum tíma að sá þjóð­þekkti hefði verið hand­tek­inn á staðnum og færður í varð­hald eftir að vænd­is­kona til­kynnti um ofbeldið. Heim­ildir Mannlífs innan lög­regl­unnar herma að í til­viki Sölva snéri dæmið á hinn veg­inn. Í kjöl­far erf­iðra sam­bands­slita við ást­konu, sem hann hafði verið að hitta í nokkra mán­uði, hafði Sölvi sjálfur sam­band við lög­regl­una að kvöldi 13. mars í fyrra.

Mannlíf hefur einnig rætt við nágranna hins meinta fórn­ar­lambs um umrætt kvöld sem Sölvi hringdi á lög­regl­una og sög­urnar fóru af stað um að hann hefði gengið í skrokk á vænd­is­konu. „Maðurinn minn bank­aði uppá hjá henni þegar Sölvi var í heim­sókn, útaf eggjum sem ein­hver kastaði í glugg­ann hjá henni fyrr um dag­inn. Daginn eftir hitti mað­ur­inn minn kon­una og hún fer strax að afsaka að lög­reglan hafi verið hérna og segir í óspurðum fréttum að hún hafi þurft að hringja á hjálp og lög­reglan hand­tekið Sölva. Ég mætti honum hins vegar kvöldið áður úti á bílaplani, sall­ar­ó­legum í sím­anum. Engin merki um að það hafi verið ein­hver hasar í gangi,“ segir nágrann­inn.

Dagana eftir að Sölvi hafn­aði ofbeldi gegn vænd­is­konu í hlað­varps­þætti sínum steig Catalina Ncogo meðal ann­ars fram og full­yrti að hún hefði sann­anir gegn Sölva um slíkt ofbeldi. Þær sann­anir litu aldrei dags­ins ljós. Sölvi gerði hins vegar þátt um Catalinu í Sönnum íslenskum saka­málum”, sem gæti útskýrt hvers vegna Catalina not­aði þetta tæki­færi til þess að saka Sölva um glæp­sam­legt athæfi.

Sölvi hefur hingað til ekk­ert tjáð sig eftir hlað­varps­þátt­inn umdeilda. Hlaðvarp hans hætti eftir að ásak­an­irnar fóru á kreik og hefur legið niðri síðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ