Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Einar veðurfræðingur hjólar í Moggann – Illugi segir Davíð hata starfsmenn sína

Einar veðurfræðingur hjólar í Moggann – Illugi segir Davíð hata starfsmenn sína

Einar Svein­björns­son veð­ur­fræð­ingur gagn­rýnir Morg­un­blaðið harð­lega á Facebook fyrir að end­ur­birta blogg Jóns Magn­ús­sonar, fyrr­ver­andi þing­manns. Jón efast um hlýnun jarðar á sama tíma og ein versta hita­bylgja sög­unnar stendur yfir.

Einar skrifar: „MOGGINN TEKUR NIÐUR.. að hefja upp og end­ur­birta bullið í Jóni Magn­ús­syni um lofts­lags­mál. Einn af mörg hund­ruð pistlum í svip­aða veru hjá Jóni og hann má vit­an­lega halda fram sinni sér­visku og lofts­lagsaf­neitun. En að Morg­un­blaðið skuli taki þetta upp og vekja sér­staka athygli vekur furðu svo ekki sé meira sagt. Ekki síst nú þegar áhrif lofts­lags­breyt­inga birt­ast Evr­ópu­búum með skýr­ari hætti en oft­ast áður.“

Einar vísar í Stak­steina Morg­un­blaðs­ins en þar birtir blaðið oft skoð­anir kyn­legra kvista. Nær und­an­tekn­inga­laust í jákvæðu ljósi. Í dag segir þar: „Jón Magn­ús­son lög­maður bendir á þá löngun „frétta­manna“ að ýta undir trú­ar­setn­ingu um mann­gert veður. Hefð­bundin háhita­tíð er hafin upp í heima­til­búin heims­met: — Veð­ur­fræð­ingur gær­dags­ins var greini­lega óvið­bú­inn tek­inn til að vitna um að þetta sýndi ótví­rætt hlýnun af manna­völdum. Hann varð­ist vel, en sagði í lokin að mars­mán­uður 2022 væri sá hlýjasti sem mælst hefur. Ekki urðum við, sem vorum á Spáni í mars, vör við það og skv. Alþjóða­veð­ur­fræði­stof­unni NOAA var fjarri því að hita­met hefði fallið á Spáni í mars sl.“

Máli sínu til stuðn­ings vísar Jón í erlenda frétt. „Í frétt á Al Jazeera um dag­inn var sagt að mik­ill flótta­manna­straumur frá Tigra­hér­uðum Eþíópíu væri vegna lofts­lags­breyt­inga og ófriðar í land­inu. — Þetta var rangt. Lofts­lags­breyt­ingar höfðu ekk­ert með þetta að gera, heldur inn­rás Eþíóp­íu­hers inn í Tigra­hér­uðin undir for­ustu frið­ar­verð­launa­hafa Nóbels, sem nú ræður ríkjum í land­inu. — Í Eþíópíu ríkti sár hung­ursneyð um og eftir 1970 vegna gríð­ar­legra hita og þurrka. — Þá var ástandið mjög alvar­legt. Nú er staðan allt önnur og mun betri. — Sumir segja að aukið koltví­sýr­ings­magn í and­rúms­loft­inu bæti vaxt­ar­skil­yrði jarð­ar­gróða.“

Einar veð­ur­fræð­ingur er ekki sá eini sem gagn­rýnir þessi skrif. Það gerir einnig Illugi Jök­uls­son. „Ég á vini sem vinna á Morg­un­blað­inu og ber virð­ingu fyrir fag­mennsku margra starfs­manna þar. Og það er langt síðan ég tók þann pól í hæð­ina að vera ekki að óþörfu að snúa hnífum í sárum þeirra yfir því heimsku­lega galli sem stöðugt virð­ist vella úr penna ann­ars rit­stjóra blaðs­ins, og starfs­menn­irnir hljóta flestir að blygð­ast sín fyrir. — En stundum blöskrar manni,“ segir Illugi.

Hann segir þessi skrif sína hug­ar­á­stand helstu yfir­manna á Morg­un­blað­inu. Þeir séu djúpt sokknir í sam­sær­is­kenn­ing­araus. „Látum vera að Morg­un­blaðið, sem fyrrum bar sig aðeins saman við helstu stór­blöð Vest­ur­landa, sé nú í rit­stjórn­ar­efni sínu orðið mál­gagn sam­sær­is­kenn­inga, Trump­isma og botn­lausrar lág­kúru í end­ur­rit­unum sínum á sög­unni. Látum vera þó blaðið hampi nú í Stak­steinum sínum rugli eins og Jón Magn­ús­son lög­maður býður hér upp á? — En að rit­stjóri blaðs, sem vill láta taka sig hátíð­lega, sé svo djúpt sokk­inn í fyr­ir­litn­ingu sína á raun­veru­legri blaða­mennsku að hann setji gæsalapp­irnar sínar hér utan um „frétta­menn“, það er ein­hvern veg­inn punkt­ur­inn yfir hið end­an­lega i. — Góðu vinir á Morg­un­blað­inu, finnst ykkur þetta í lagi? Finnst ykkur ekki að fyr­ir­litn­ing rit­stjór­ans hitti ykkur sjálfa fyrir?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð