Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Ketill Hafdal og pabbi hans lentu í sjávarháska á gúmmíbát: „Það var hálftvísýnt á köflum“

Ketill Hafdal og pabbi hans lentu í sjávarháska á gúmmíbát: „Það var hálftvísýnt á köflum“
Ketill Hafdal Hall­dórs­son

„Það er reimt á mörgum stöðum hérna upp frá. Það á að vera draugur við Álfta­vatn, Benni blauti heitir hann. Hann var bóndi sem kom hingað upp eftir í gamla daga með dóttur sinni að veiða og það fór ekki betur en svo að hann drukkn­aði í vatn­inu og sagan segir að hann gangi hér enn um og trufli fólk. Ég hef ekki orðið var við hann sjálfur. En ég hef nú orðið var við umgang í skálum þar sem eng­inn á að vera sem ég hef fundið fyrir en ég hef ekki orðið var við neina illa anda; það hefur eng­inn verið að trufla mig mikið,“ segir Ketill Hafdal Hall­dórs­son, nemi í iðn­að­ar­verk­fræði við Háskóla Íslands og í sumar skála­vörður í skála Ferða­fé­lags Íslands við Álfta­vatn.

Búið að stela bílnum?

Ketill seg­ist í raun­inn hafa verið alinn upp að hluta til á Fjalla­baki og „út um allt á fjöllum og í óbyggðum. Ég kom fyrst hingað á Fjalla­bak þegar ég var fjög­urra ára en for­eldrar mínir voru skála­verðir í Hvanna­gili á vegum Ferða­fé­lags Íslands og ég var þar í nokkur sumur í æsku. Eftir það fórum við á svo­lítið flakk á Kili og víðar. Svo hef ég lengi verið í Horn­bjargsvita á Vest­fjörðum með honum karli föður mínum, Halldóri Hafdal. Við byrj­uðum þar 2010 ef ég man rétt og ég hef verið þar öll sumur síðan fyrir utan tvö síð­ustu sumur sem ég hef verið hér á Fjalla­baki.“

„Pabbi; þú veist að þetta heita Þjófa­dalir.“

Ketill var um átta ára. „Ég var í Þjófa­dölum á Kjalvegi með pabba. Skálinn þar er niðri í dal og þarf að labba að honum. Það var komið rökkur þegar við gengum til baka til að fara í bíl­inn og fórum upp á hól en við töldum að bíll­inn væri þar hinum megin. Það er sagt vera reimt á Kili og Þjófa­dalir er svo­lítið hræði­legt nafn í huga ungs drengs. Þjófar; það er nú ekki gott. Við sáum hins vegar ekki bíl­inn þar sem við töldum hann vera. Ég varð svo­lítið skelk­aður og spurði pabba hvar bíll­inn væri. Hann sagði við hlytum að hafa gengið upp á rangan hól. Ég var þög­ull í smá­stund, horfði svo í augun á pabba og sagði: „Pabbi; þú veist að þetta heita Þjófa­dalir.“ Ég var hálf­skelk­aður af því að ég hélt það væri búið að stela bílnum og við værum fastir þarna í óbyggð­unum. En svo kom í ljós að við höfðum gengið upp á rangan hól og fundum við svo bíl­inn.“

Tvísýnt

Feðgarnir voru eitt sum­arið í Horn­bjargsvita og veiddu stundum í soðið fyrir ferða­menn sem gistu þar. „Við fórum út á lít­illi gúmmí­tuðru, svo­kall­aðri Zodiac. Það var hálf­gerð bræla; ekki gott í sjó­inn. En það vant­aði fisk. Það var nú ekki mikil veiði og við þurftum að leggja net til að ná í ein­hvern fisk en það gekk ekki neitt. Við vorum svo komnir með nokkra fiska í mat­inn fyrir hóp­inn og ákváðum að stíma í land nema hvað að þá fór mót­or­inn ekki í gang. Við vorum einir þarna úti á ball­ar­hafi á litlum gúmmí­báti. Það var reynt og reynt. Pabbi er gam­all vél­stjóri og hann kann á svona græjur og hann fór eitt­hvað að rífa þetta í sundur en mót­or­inn vildi ekki fara í gang. Þá voru góð ráð dýr. Nema hvað að við vorum með tvær árar og þá var bara að róa í land. Ég held við höfum verið í um kortér til 20 mín­útur að kom­ast út en það tók okkur fjóra til fimm tíma að róa í land. Það var hálf­tví­sýnt á köflum þegar við vorum að koma að inn­sigl­ing­unni þar sem er mikið grjót og brim og vanir menn margir hverjir neita að sigla þarna á gúmmí­báti. En fyrir eitt­hvert krafta­verk tókst okkur að kom­ast í land og það voru fiski­bollur í kvöld­mat­inn fyrir fólkið.“

Karlinn á bílþakinu

Ketill er spurður um eft­ir­minni­lega reynslu á fjöllum. Hálend­inu.

Þeir sögðu bara „emergency“.

„Það er svo margt. Það sem mér dettur í hug er þegar ég var skála­vörður í Hvann­gili hérna á Lauga­veg­inum fyrir tveimur eða þremur árum. Það var spáð svolitlum vindi og var mikið af tjald­búum hjá mér og fullur skáli. Svo vakn­aði ég um miðja nótt við það að tal­stöðin var alveg að fara að springa; það var alltaf verið að kalla á mig. Ég fór fram með stír­urnar í aug­unum og svar­aði og var spurður hvort ég gæti aðstoðað við að taka niður tjöldin. Ég hélt nú ekki; það væri bara fínt veður. En fyrst ég var kom­inn fram úr þá fór ég í regnjakk­ann og kíkti út og þegar ég kom á tjald­stæðið þá sá ég að öll tjöldin voru að hrynja og allir vak­andi þar og grát­andi fólk hér og þar. Ég fór aftur inn og bað um aðstoð og komu land­verðir frá Álfta­vatni og við fórum að rífa niður tjöld. Við vorum að því fram á morgun sem væri ekki í frá­sögur fær­andi nema það að morg­un­inn eftir var ég aftur vak­inn eldsnemma en þá var það ferða­fólk sem var kalt og blautt og vildi kom­ast heim. Svo komu tveir ferða­menn hlaup­andi og var mikið fát á þeim. Þeir sögðu bara „emergency“. Ég spurði hvað væri að og þá kom í ljós að óbreyttur Land Rover var fastur í koló­færri á og maður á toppnum. Það end­aði með því að það komu björg­un­ar­sveitir alls staðar að til að kippa honum upp úr eftir margra tíma bið með karl­inn á þak­inu.“

Í sumar er Ketill, sem er 21 árs, stað­ar­hald­ari á Álfta­vatni sem er á Lauga­veg­inum.

„Ég sé bara um stað­inn hér. Starfið er tví­þætt. Maður er ann­ars bara ræsti­tæknir – bara þrífa, þrífa og þrífa. Svo er það hins vegar að vera til staðar ef eitt­hvað kemur upp á. Það er ýmis­legt sem kemur upp á; í gær var veikur maður á svæð­inu sem þurfti að fara í bæinn og komu björg­un­ar­sveit­ar­bíll til að sækja hann.“

Öllu er bara reddað

Ketill seg­ist ekki hafa eytt sumri í bænum frá því hann man eftir sér.

„Þegar fer að vora og sól að hækka á lofti þá kemur alltaf smá­fjalla­spenna í mann og maður þarf að fara að kom­ast upp eftir. Svo enda öll sumur á því að ég seg­ist aldrei koma aftur; þetta sé búið. Þá er ég kom­inn með alveg upp í kok. En svo kemur maður alltaf aftur.“

Svo fylgir þessu góður félags­skapur og almenn stemmn­ing.

Hvers vegna?

„Þetta bara kallar á mann. Það er eitt­hvað. Fjöllin kalla. Óbyggð­irnar kalla og ég verð að gegna þeim. Ætli það sé ekki bara frelsið og nátt­úran; það er mikið frelsi hérna upp frá. Það er annar tími. Það er ekk­ert stress. Hlut­irnir bara ger­ast. Það virkar alltaf. Hvort sem það ger­ist núna eða eftir 10 mín­útur, hálf­tíma, klukku­tíma eða á morgun eða jafn­vel í næstu viku. Öllu er bara reddað. Og það redd­ast alltaf. Svo fylgir þessu góður félags­skapur og almenn stemmn­ing. “

Hann talar líka um frið­inn. Ferska loftið. „Það verður ekki mikið betra.

Ætli maður sé ekki með fal­leg­asta útsýni af skrif­stofu sem fyr­ir­finnst þegar maður horfir út á vatnið og sér fjalla­sýn­ina. Maður hugsar stundum með sér að það sé ótrú­legt að maður vinni við þetta; að fá greitt fyrir að vera hérna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð