Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Tveir fundust látnir í bíl við Slippinn

Mennirnir fundust látnir í bíl við Daníelsslipp.
Menn­irnir fund­ust látnir í bíl við Dan­í­els­slipp. Mynd: YouTube-skjáskot

Þann 1. mars árið 1985 fundust félagarnir Einar Agnarsson og Sturla Lambert Steinsson látnir í bifreið í Daníels­slipp í Reykjavík. Hafði segldúkur verið breiddur yfir bifreiðina en niður­staða rann­sóknarinnar var sú að þeir hefðu svipt sig lífi með því að tengja slöngu við púströr bifreiðarinnar og sett hana inn í bílinn í gegnum hliðar­rúðu. Þeir hafi sem sagt látist af koltvísýrings­eitrun.

Sturla Steins­son

Bróðir Einars, Ragnar Agnarsson hefur alla tíð frá andláti bróður síns verið afar skeptískur á opinberu dánar­orsökina og telur þá hafa verið myrta.

Einar Agn­ars­son

DV fjallaði um málið árið 2007 en þar er talað við Ragnar.

Einar Agnarsson og Sturla Lambert Steinsson fundust látnir í bifreið í Daníels­slipp í Reykjavík 1. mars 1985. Segldúkur hafði verið breiddur yfir bifreiðina. Niður­staða rann­sóknarinnar var sú að þeir hefðu svipt sig lífi og dánar­orsökin væri koltvísýrings­eitrun. Bróðir Einars Ragnar Agnarsson er ósáttur með málalokin og segir þá hafa verið myrta.

Einar Agnarsson og Sturla Lambert Steinsson fundust látnir í bifreið í Daníels­slipp árið 1985. Rannsóknar­lögregla ríkisins rann­sakaði málið og úrskurðaði að þeir hefðu framið sjálfsvíg. Ragnar Agnarsson, bróðir Einars, segir þá ekki hafa fallið fyrir eigin hendi.

Strax og Ragnar Agnarsson, bróðir Einars, skoðaði föt þeirra látnu fylltist hann grun um að ekki væri allt með felldu. Það var að morgni 1. mars 1985 sem þeir Einar og Sturla fundust látnir í bílnum í Daníels­slipp.

Búið var að breiða gráan segldúk yfir bílinn. Ragnar segir útilokað að þeir hafi gert það sjálfir. Ragnar er sann­færður um að einhver óþekktur maður hafi gert það og átt þátt í dauða tvímenninganna. Það er fleira sem Ragnar efast um í rannsókn lögreglunnar.

Einar átti erfiða æsku, ólst upp á Kumbara­vogi og síðar Breiðuvík. Þar sætti hann hrika­legum misþyrmingum. Elvar Jakobsson segir í viðtali, hér á opnunni, frá hluta þeirra misþyrminga sem Einar sætti. Einnig að hann hafi hugsanlega þurft að þola nauðgun af hálfu manns þegar hann var á Kumbara­vogi.

Undarlegur dánartími

„Ég hitti leigu­bílstjóra eftir að mér var sagt að Einar og Sturla hefðu tekið líf sitt. Hann var undrandi yfir þeirri full­yrðingu og sagðist hafa verið með fimm öðrum bílstjórum við Kaffi­vagninn seint hina afdrifa­ríku nótt, það er aðfara­nótt 1. mars 1985. Öllum bílstjórunum bar saman um að ekkert virtist ama að þeim Einari og Sturlu,“ segir Ragnar. Leigu­bílstjórinn er nú látinn. Samkvæmt rannsókn málsins létust Einar og Sturla um miðnætti, sem stangast algjör­lega á við framburð vitna, að sögn Ragnars.

Hann segir þá ekki hafa haft sjálfsvíg í huga þegar þeir hittu bílstjórana um nóttina.

Dular­fullt blóð

Að sögn Ragnars fékk hann föt þeirra eftir rann­sóknina. Hann segir að grunur hans hafi vaknað fyrir alvöru þegar hann skoðaði fötin.

„Ég sturtaði fötunum úr pokanum, föt Einars lyktuðu af bensíni en voru annars tandur­hrein. Aftur á móti voru föt Sturlu blóðug, rifin og moldug líkt og hann hefði lent í átökum. Af þeim var ekki bensín­lykt,“ segir Ragnar. Hann segir það greinilegt að þeir hafi ekki látið lífið saman eða á sama hátt.

Ragnar hitti almennan lögreglu­þjón sem hafði komið á vettvang daginn sem þeir látnu fundust. Hann sagði Ragnari að aðkoman í Daníels­slipp hefði verið undarleg. Helst vegna þess að búið var að breiða gráan segldúk yfir bílinn.

Krufningar­skýrslan

„Þá fór ég til rann­sóknar­lögregl­unnar í Kópavogi og var harðákveðinn í að fá skýr svör um dauða bróður míns,“ segir Ragnar alvarlegur í bragði. Hann segist hafa hitt lögreglu­mann og eftir nokkurt þóf á hann að hafa sagt við Ragnar að málið væri ekki jafn einfalt og það liti út fyrir að vera. Ragnar sagði honum það sem hann vissi um dúkinn og blóðið og spurði hvernig það hafi komist í föt Sturlu.

„Þá las hann upp úr krufningar­skýrslunni fyrir mig og þar stóð að blóðið væri þannig tilkomið að lungna­pípur hefðu sprungið og Sturla gubbað blóði,“ segir Ragnar og bætir við: „Sturla var myrtur.“

Róandi lyf

Þegar Ragnar vildi fá að vita um dánar­orsök bróður síns neitaði lögreglu­maðurinn að segja meira. Hann skýrði það með þeim rökum að Ragnar væri of nátengdur Einari. Aftur á móti sýndi hann Ragnari lyfjaglas með róandi lyfi. Ragnar fullyrðir að það efni hafi ekki geta orðið þeim að bana, enda báðir vanir ýmsum efnum sökum óreglu. Að sögn Ragnars lyktaði samræðunum þannig að málið væri til rann­sóknar og yrði áfram. „Endanleg dánar­orsök var sú að þeir hafi látist vegna koltvísýrings­eitrunar,“ segir Ragnar um lok rann­sóknarinnar. Hann efast enn um að niður­stöður lögreglu­rann­sóknarinnar séu þær réttu.

Engar upplýsingar

„Þetta var áfall fyrir mig,“ segir Ragnar um örlög bróður síns og Sturlu. Hann, ásamt systur sinni, hefur reynt að komast til botns í málinu. Í tuttugu ár hefur málið legið eins og mara á þeim og Ragnar vill fá svör.

Kompáss fjallaði einnig um málið í desember 2008 en má sjá umfjöllunina hér.

Mannlíf mun birta um helgina hlaðvarps­viðtal Hildar Maríu Sævars­dóttur við bróður Einars en þar munu koma fram nýjar upplýsingar um hin dular­fullu andlát, sem aldrei hafa áður komið fram á sjónar­sviðið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið