Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Ragnheiður Þóra Ólafsdóttir í Grindavík: „Er ekki örugglega að fara að gjósa fyrir kvöldmat?“

Ragnheiður Þóra Ólafsdóttir í Grindavík: „Er ekki örugglega að fara að gjósa fyrir kvöldmat?“
Ragn­heiður Þóra Ólafs­dóttir

„Ég náði klukku­tíma svefni aðfara­nótt mánu­dags; sú nótt var afleit. Hún var sú versta,“ segir Ragn­heiður Þóra Ólafs­dóttir, íbúi í Grinda­vík, um áhrif jarð­skjálft­anna. „Þetta er óþægi­leg upp­lifun; þetta var stöð­ugur hrist­ingur og við finnum nátt­úr­lega fyrir öllum skjálftum sem eru yfir tveir á Richter af því að upp­tökin eru svo nálægt okkur. Þetta kvöld og þessa nótt voru enda­lausir skjálftar og flestir á milli þrír og rúm­lega fjórir á Richter að stærð.

Mér finnst óhuggu­legt að vakna við harðan skjálfta. Mér finnst best að vera á vapp­inu; vera bara á hreyf­ingu sjálf af því að þá finn ég ekki eins mikið fyrir þessu. Eina nótt­ina í fyrra held ég að ég hafði náð um 9000 skrefum; þá var ég bara á ferð­inni á meðan allir strák­arnir mínir og mað­ur­inn minn sváfu. Þeir veltu sér bara á hlið­ina þegar skalf og náðu að sofna aftur.“

Ragn­heiður, eig­in­maður hennar og yngsti sonur þeirra voru í heita og kalda pott­inum í sund­laug­inni í Grinda­vík þegar stóri skjálft­inn reið yfir á sunnu­dag­inn. „Við vissum bara ekki hvaðan á okkur stóð veðrið; við héldum að kaldi pott­ur­inn myndi fara á hlið­ina og sund­laugin breytt­ist í öldu­laug. Svo tæmd­ust báðir heitu pott­arnir á auga­bragði. Svo kom í ljós að vatns­lagnir og teng­ingar höfðu gefið sig í skjálft­anum og pott­arnir tæmdu sig beint í kjall­ar­ann og kom slökkvi­liðið til að tæma hann.“

Versta til­finn­ingin teng­ist því hvað getur gerst.

Jú, jörð hefur skolfið mikið und­an­farin miss­eri á svæð­inu. „Við erum nátt­úr­lega orðin þokka­lega vön hérna í Grinda­vík. En versta til­finn­ingin teng­ist því hvað getur gerst. Það er alltaf verið að segja manni að húsin séu vel byggð og maður veit það alveg en versta til­finn­ingin er þegar hug­ur­inn ber mann aðeins lengra heldur en maður á að fara með hann. Það er kannski erf­ið­ast í þessu.“

Ragn­heiður segir að mesta óvissan hvað sig varðar teng­ist yngsta syni hennar sem er 14 ára. „Hann er ekki með bíl­próf og mér finnst það vera óþægi­legt en þegar ég fór í vinn­una í morgun hugs­aði ég með mér hvað myndi ger­ast ef það kæmi stór skjálfti og fara að gjósa og það þyrfti að rýma og hann væri einn heima.“

Einhvern krúttlegan stað

Ragn­heiður segir að þegar byrj­aði að gjósa við Fagra­dals­fjall í fyrra eftir langt skjálfta­tíma­bil þá hafi þau verið svo fegin að vera laus við þessa jarð­skjálfta og hún við­ur­kennir að hún hafi verið svo­lítið smeyk við þá. „Ég horfið á gosið út um eld­hús­glugg­ann hjá mér; ég horfði á gosið þegar ég var að vaska upp og mér fannst það vera pínu óþægi­lega nálægt en núna þegar jarð­skjálft­arnir eru byrj­aðir aftur þá hugsar maður að nú megi fara að gjósa. Það er lausnin fyrir okkur. Þetta voru hjá mér þrjár svefn­lausar vikur í fyrra áður en byrj­aði að gjósa; ég var orðin rang­eygð af svefn­leysi. Ég var orðin lang­þreytt og núna hugsar maður „fínt, er ekki örugg­lega að fara að gjósa fyrir kvöld­mat?“ Við viljum ein­hvern krútt­legan stað eins og hitt gosið var á. En við megun ekki fara með hug­ann of langt af því að ef það myndi gjósa á bak við Þorbjörn þá værum við nátt­úr­lega ekki í góðum málum.“

Ragn­heiður segir að þrátt fyrir allt séu Grind­vík­ingar til­tölu­lega rólegir. „Hér hafa allar eignir selst. Það er ótrú­legt; við héldum nefni­lega þegar byrj­aði að gjósa í fyrra að við yrðum í verð­lausum eignum og að eng­inn myndi vilja vera hér en raunin varð önnur. Það selj­ast öll hús og það virð­ist ekki vera neinn bil­bugur í fólki að koma hingað og vera hérna.“

Þá fer maður kannski að spá í að það væri kannski betra að vera ein­hvers staðar ann­ars staðar.

Ragn­heiður fædd­ist og ólst upp í Grinda­vík. „Það hefur aldrei hvarflað að mér að flytja héðan en þegar maður les það sem haft er eftir vís­inda­mönnum að við séum að fara inn í eitt­hvað svaka­legt tíma­bil, jafn­vel tugi ára, þar sem þetta verður svona þá fer maður kannski að spá í að það væri kannski betra að vera ein­hvers staðar ann­ars staðar.“

Síminn, fötin og bensínið

Ragn­heiður er spurð hvað hún hafi lært af því að upp­lifa þessa skjálfta und­an­farin miss­eri og svo gosið við Fagra­dals­fjall.

„Maður þarf að taka svo­lítið til í hausnum. Þegar maður var orð­inn svona svefn­laus í fyrra og úrvinda af þreytu þá fór maður að hugsa kol­vit­laust og mikla allt fyrir sér og maður hafði sig ekki í neitt. Maður þorði ekki að fara út úr bænum ef eitt­hvað myndi ger­ast og syn­irnir væru heima. Þetta voru alls konar hugs­anir. Maður þarf samt að reyna að hafa þetta sem eðli­leg­ast þó þetta sé á bak við eyrað en það sækja að manni hugs­anir sem maður er pínu smeykur við. En aðal­at­riðið er að halda haus og reyna að hafa þetta sem eðli­leg­ast. Í fyrra svaf ég alltaf með sím­ann inni hjá mér sem ég gerði ann­ars aldrei, var með föt við rúmið mitt og pass­aði alltaf upp á að það væri nóg bensín á bílnum. Ég er ekki farin að gera þetta aftur en ég mun alltaf passa upp á að það sé nóg bensín á bílnum þannig að ég geti kom­ist í burtu en öðru er ég til­tölu­lega róleg yfir; ef ég kæm­ist með fjöl­skyld­una mína þá væri mér nokkuð sama um rest­ina.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ