Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Kolbrún hefur áhyggjur af börnum við gosstöðvarnar: „Hafa börnin orðið örmagna“

Kolbrún Baldurs­dóttir, borgar­fulltrúi Flokks fólksins vill að tilmæli verði gefin út um göngu barna að gosinu.

Borgar­fulltrúi Flokks fólksins, Kolbrún Baldurs­dóttir, sendi frá sér tilkynningu þar sem hún segist vilja sjá að tilmæli verði gefin út um göngu barna í gosinu en í gær var sagt frá því í fréttum að pari með tvö örmagna börn var hjálpað við gosstöðvarnar í gær en litlu mátti muna að illa færi.

„Ég er sálfræðingur og er umhugað um velferð barna eins og okkur öllum er. Ég vil þess vegna að að yfirvöld og umboðs­maður barna gefi út sérstök tilmæli til foreldra að þeir taki alvarlega þegar þeir eru beðnir um að fara EKKI með ung börn sín að gosstöðvunum og að þau fari heldur ekki með stálpuð börn sem vegna ungs aldur geta lent í vandræðum á þessari erfiðu leið,“ segir Kolbrún í tilkynningunni.

Þá minnir hún á tilkynninga­skyldu 16. gr. barna­verndar­laga:

„Minnt er á tilkynningar­skyldu 16. gr. barna­verndar­laga sem kveða á um að:
 „Öllum er skylt að tilkynna til barna­verndar­nefndar ef þeir hafa ástæðu til að ætla að barni sé stefnt í hættu“.“

Að lokum minnist hún á fréttina frá því gær:

„Dæmi eru um að foreldrar hafi farið með börn sín í ferð að gosstöðvunum og hafa börnin orðið örmagna. Þetta hafa sumir foreldrar gert þrátt fyrir ráðleggingar um að gera þetta EKKI. Í fréttum nú í hádeginu var haft eftir björgunar­sveitar­manni að hann hafi fengið „illt í hjartað þegar hann sá fólk koma niður og börnin hálf­partinn dregin áfram vegna þess að þau voru alveg uppgefin“.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið