Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fyrsta vopnaða rán Íslandssögunnar – Ógnaði starfsmönnum ÁTVR með afsagaðri haglabyssu

Fyrsta vopnaða rán Íslandssögunnar – Ógnaði starfsmönnum ÁTVR með afsagaðri haglabyssu
Leigu­bíll­inn sem not­aður var við ránið Mynd: Trausti Hafsteinsson

Á nöpru febr­ú­ar­kvöldi árið 1984 var framið tvö­falt vopnað rán í Reykja­vík. Fyrst otaði mað­ur­inn afsag­aðri hagla­byssu að leigu­bíl­stjóra og tók bíl hans og keyrði að Áfeng­is­verslun rík­is­ins þar sem hann rændi tvo starfs­menn sem voru að fara með sölu dags­ins í banka­hólf. Komst ræn­ing­inn undan með tæpar 2 millj­ónir króna. Ekki náði hann þó að flýja rétt­vís­ina lengi.

Tíminn sagði frá rán­inu dag­inn eftir:

Tvöfalt vopnað rán í Reykja­vík í gærkveldi:

RÆNINGINN KOMST UNDAN MEÐ TÆPAR 2 MILLJÓNIR — Ógnaði starfs­mönnum ÁTVR og leigu­bif­reida­stjóra með hlaupsaga­dri hagla­byssu — Leitin að honum hafði ekki borið árangur um miðja nótt.

Vopnað rán var framið fyrir utan Lands­bank­ann að Lauga­vegi 77 upp úr kl. 20 í gærkveldi, og tókst ræn­ingj­anum að kom­ast á brott í stol­inni bif­reið með 1.8 milljón krónur. Maður, vopn­aður hagla­byssu, sem hlaupið hafði verið stytt ógn­aði fyrst leigu­bíl­stjóra af Hreyfli suður í Naut­hóls­vík og neyddi hann út úr bíl hans, um kl. 19.30. Maðurinn er síðan tal­inn hafa ekið að úti­búi Lands­bank­ans að Lauga­vegi 77, þar sem hann náði að ræna 1.8 milljón króna af tveimur starfs­mönnum áfeng­is­út­söl­unnar við Lind­ar­götu, sem voru við bank­ann í þeim erinda­gjörðum að setja verslun dags­ins í næt­ur­hólf bank­ans.

Maðurinn ógn­aði starfs­mönn­unum með hagla­byss­unni, sem hann er tal­inn hafa stolið í inn­broti í versl­un­ina Vest­ur­röst í fyrr­inótt. Skaut hann að bif­reið þeirra og komst síðan á brott í stolnu leigu­bif­reið­inni.

Tíminn hefur aflað sér frétta um að leigu­bíl­stjór­inn, Örn Reynir Pét­urs­son, bíl­stjóri á Hreyfli hafi ekið mann­inum frá Hótel Sögu og suður í Naut­hóls­vík, á afvik­inn stað. Þar hafi hann rekið byssu­hlaup í hnakka Arnar Reynis, neytt hann út úr bif­reið­inni og ekið á brott. Örn Reynir hafi hlaupið að Loft­leiða­hót­el­inu, og látið lög­regl­una vita þaðan um atburð­inn. Skömmu síðar, eða laust upp úr kl. 20 var til­kynnt um ránið að

Lauga­vegi 77, af tveimur starfs: mönnum ÁTVR við Lind­ar­götu. Starfs­menn­irnir, þeir Pálmi Ein­ars­son og Konráð Kon­ráðs­son höfðu að vanda lagt bif­reið sínni á gang­stétt­ina fyrir framan bank­ann, og var það Konráð sem steig út úr bif­reið­inni með pen­ing­ana, 1.8 milljón krónur. Í þann mund sem Konráð steig út var skotið af hagla­byssu í bretti og dekk bíls­ins, og sprakk dekkið. Konráð hugð­ist verj­ast skot­mann­inum, sem þá sló til hans með byss­unni og annað skot reið af við það. Konráð gafst upp við svo búið og ræn­ing­inn náði pen­inga­pok­anum og komst á brott í stolnu leigu­bif­reið­inni. Ræn­ing­inn reyndi m.a. að gera sig tor­kenni­legan með því að mála á sig skegg.

Allt lög­reglu­lið borg­ar­innar var kallað út til leitar að ræn­ingj­anum, um leið og til­kynnt hafði verið um ránið, og var Vík­inga­sveit lög­regl­unnar í við­bragðs­stöðu í gærkveldi. Klukku­stund eftir að ránið hafði verið til­kynnt, fannst bif­reiðin yfir­gefin í porti bak við Braut­ar­holt 2, og voru fjár­munir og hagla­byssa einnig á brott. Lög­reglan fékk mann með spor­hund til liðs við sig, og leit­aði hann ásamt lög­reglu­sveitum á svæð­inu í gærkveldi, en án árang­urs.

Menn­irnir þrír sem ráð­ist var á gáfu skýrslu hjá Rann­sókn­ar­lög­regl­unni í gærkveldi, og reyndu þeir einnig að bera kennsl á árás­armann­inum í mynda­safni lög­regl­unnar, en sú leit mun ekki hafa borið árangur. Þegar blaðið fór í prentun í nótt, hafði enn ekk­ert spurst til ræn­ingj­ans. –

Lög­reglan yfir­heyrir Konráð Kon­ráðs­son við upp­haf rann­sóknar

Þann 28. febr­úar sama ár, greindi DV frá því að fyrr­ver­andi starfs­maður ÁTVR hafi komið lög­reglu á sporið. Var hann mál­kunn­ugur ræn­ingj­anum sem hafði sýnt mik­inn áhuga á pen­inga­flutn­ingum ÁTVR og spurt mikið út í þá. Þegar mað­ur­inn sá frétt um ránið í blöð­unum hafði hann und­ir­eins sam­band við lög­reglu og greindi þeim frá sam­skiptum sínum við ræn­ingj­ann. Húsleit var gerð heima hjá mann­inum, William James Scobie sem var íslenskur rík­is­borg­ari en þar fannst helm­ingur þýf­is­ins. Kom einnig í ljós að faðir Williams hafi reynt að koma honum úr landi. Þá átti William sér vit­orðs­mann innan Lands­bank­ans, hinn 19 ára Ingvar Heiðar Þórð­ar­son.

Dæmt var í máli þre­menn­ing­anna seinna sama ár en blaðið NT sagði svo frá dóm­inum:

Saka­dómur í ATVR-rán­inu: Scobie dæmdur í 5 ár -Ingvar í 18 mán­uði

■ Dómur í fyrsta vopn­aða ráni á Íslandi er fall­inn. Einn sak­born­inga var dæmdur til 5 ára fang­els­is­vistar, annar til 18 mán­aða og sá þriðji til 6 mán­aða skil­orðs­bundið. Búast má við að mál­inu verði áfrýjað til Hæsta­réttar.

■ William James Scobie, aðal­sak­born­ingur í Lands­banka­mál­inu svo­kall­aða, var í gær dæmdur í Sakadómi Reykja­víkur til 5 ára fang­els­is­vistar. Hjálp­ar­maður hans við ránið, Ingvar Heiðar Þórð­ar­son, var dæmdur til 18 mán­aða fang­els­is­vistar og faðir William, Griffith Scobie, til 6 mán­aða skil­orðs­bund­innar fang­els­is­vist­unar.

Þá voru þeir félagar dæmdir til að greiða allan sak­ar­kostnað og til að end­ur­greiða það sem á vant­aði á ráns­féð þegar lög­reglan fann það. Eins og kunn­ugt er rændi William tvo starfs­menn ÁTVR við Lands­bank­ann í vetur. Notaði hann hagla­byssu við ránið og naut aðstoðar Ingvars. Griffith Scobie, faðir William, var ekki við­rið­inn ránið sjálft en reyndi að aðstoða William við að kom­ast úr landi.

Dóminn kváðu upp saka­dóm­ar­arnir Ármann Krist­ins­son, Jón Erlends­son og Jón Ólafsson. William var úrskurð­aður í gæslu­varð­hald til 1. októ­ber. Samkvæmt lögum er skylt að áfrýja máli Williams til Hæsta­réttar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð