Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Haraldur vill þrepaskipt leikskólakerfi: „Það eru engar töfra- eða skyndilausnir til“

Haraldur vill þrepaskipt leikskólakerfi: „Það eru engar töfra- eða skyndilausnir til“
Haraldur Freyr Gíslason, forð­maður Félags leik­skóla­kenn­ara. Samsett mynd.

Haraldur Freyr Gíslason, for­maður Félags leik­skóla­kenn­ara, segir í aðsendri grein á Vísi að;

„þeirri spurn­ingu sé yfir­leitt ósvarað hvernig far­sæld mjög ungra barna sé best tryggð í þeirri brú­ar­smíði milli fæð­ing­ar­or­lofs og leik­skóla sem sam­fé­lagið og stjórn­mála­menn eru ákaf­lega áhuga­samir um.

Í hversu margar klukku­stundir á dag er gott fyrir eins árs gömul börn að dvelja í leik­skóla? Er það endi­lega betri fjár­fest­ing fyrir sam­fé­lagið að auka dval­ar­tíma ungra barna í leik­skólum en að lengja fæð­ing­ar­or­lof upp í tvö ár? Hvernig væri til dæmis að brúa bilið milli fæð­ing­ar­or­lofs og leik­skóla með þrepa­skiptu leik­skóla­starfi þar sem dval­ar­tími barna leng­ist í áföngum eftir því sem þau eld­ast? Um slíkar hug­myndir er sára­lítið rætt og hlýtur það að vekja furðu í ljósi þess hve mik­ill áhugi er á leik­skóla­málum, sér­stak­lega rétt fyrir kosn­ingar. Það skyldi þó ekki vera að umræða brú­arsmið­anna um þessi mál snú­ist í of miklum mæli um annað en hags­muni barna?“

Telur að taka inn yngri börn dragi úr gæðum starfsins

Eins og kunn­ugt er og Haraldur benti á, þá voru leik­skóla­mál eitt af aðal­kosn­inga­málum síð­ast­liðið vor. Haraldur útskýrir að þar hafi komið fram að flestir flokkar ætl­uðu sér að brúa bilið milli leik­skóla og fæð­ing­ar­or­lofs.

„Fáir höfðu raun­veru­legar hug­myndir um það hvernig fara mætti að því og enn færri lögðu fram til­lögur sem myndu ráð­ast að rót vand­ans, sem er að fjölga leik­skóla­kenn­urum. Ef sá vandi er ekki leystur munu allar til­raunir til að stækka leik­skóla­kerfið, til dæmis með því að taka inn yngri börn, draga úr gæðum leik­skóla­starfs og hafa alvar­leg áhrif á starfs­um­hverfi leik­skóla­kenn­ara.“

Kerfið þarfnast 1500 fleiri leikskólakennara

Haraldur vill helst sjá að ríki og sveit­ar­fé­lög stefni að því að fjölga leik­skóla­kenn­urum um 1500.

„Íslend­ingar eru stoltir af leik­skól­unum sínum. Lög­gjöfin um leik­skóla­starf er merki­leg og rammar inn mann­rétt­indi barna með hætti sem er öfunds­verður. Víða um heim er horft til Íslands sem fyr­ir­mynd í þessum efnum bæði er varðar stefnu­mörkun og lög­gjöf.

Eins og á mörgum sviðum öðrum hefur fram­kvæmd stefn­unnar ekki endi­lega verið okkur til sama sóma og stefnu­mörk­unin sjálf. Þannig eiga tveir þriðju hlutar starfs­fólks, sem sinnir menntun og upp­eldi leik­skóla­barna, að vera leik­skóla­kenn­arar (um þetta má lesa í lögum um menntun, hæfni og ráðn­ingu kenn­ara nr. 95/2019). Árið 1998 störf­uðu 926 leik­skóla­kenn­arar á Íslandi og voru þeir þá 29% af starfs­mönnum leik­skóla. Síðan þá hefur verið gert stór­á­tak í að fjölga leik­skóla­kenn­urum sem leiddi af sér að árið 2019 störf­uðu 1.585 leik­skóla­kenn­arar hér­lendis.

Í tvo ára­tugi hefur því ekki aðeins tek­ist að tryggja nýliðun í leik­skóla­kenn­ara­stétt­inni heldur hefur stéttin vaxið hraðar en flestar aðrar stéttir. Það segir þó ekki alla sög­una því árið 2019 höfðu íslenskir leik­skólar fjar­lægst hina laga­legu kröfu um lág­marks­hlut­fall leik­skóla­kenn­ara í stað þess að nálg­ast hana. Hlut­fallið var þá 28% í leik­skólum sem reknir eru af sveit­ar­fé­lögum og aðeins 19% í einka­reknum leik­skólum. Það er okkur ekki til sóma.

Vöxtur leik­skóla­stigs­ins hefur verið langt umfram efni og gæði.

Of hraður vöxtur leik­skóla­stigs­ins er meg­in­or­sök þess að ekki hefur tek­ist að fjölga leik­skóla­kenn­urum hlut­falls­lega síð­ustu ára­tugi.

Það er ábyrgð­ar­hlutur að láta grunn­kerfi sam­fé­lags vaxa umfram efni og gæði. Sú ábyrgð liggur á herðum allra sveit­ar­fé­laga lands­ins. Það verður að finna jafn­vægi á milli fjölg­unar leik­skóla­barna og –kenn­ara. Það eru engar töfra- eða skyndi­lausnir til.“

Markmiðið að bjóða upp á gæðamenntun í leikskólum

Að lokum nefnir Haraldur að það séu þó jákvæð teikn á lofti.

„Það eru mjög jákvæð teikn á lofti varð­andi fjölgun leik­skóla­kenn­ara. Samkvæmt tölum frá HÍ hefur verið umtals­verð fjölgun í leik­skóla­kenn­ara­nám­inu und­an­farin ár og mjög stór hópur útskrif­að­ist nú í vor. Slíkur árangur næst ekki í tóma­rúmi heldur er afrakstur mark­vissrar vinnu og margra sam­hang­andi þátta. Sem dæmi hafa samn­ings­að­ilar unnið mark­visst að því að bæta laun og starfs­að­stæður. Styrkir til náms hafa verið efldir sem og tæki­færi til að stunda nám með­fram starfi og fleira. Það eru síðan stór verk­efni framundan í vinnu við betri vinnu­tíma í leik­skólum sem og jöfnun launa á milli mark­aða. Öll þessi skref mið­ast að því að fjölga leik­skóla­kenn­urum sem er for­senda fyrir því að geta boðið börnum upp á gæða­menntun í leik­skólum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð