Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Hjólastólaaðgengi nýbygginga víða í ólagi: „Klárlega verið að brjóta réttindi fólks“

Hjólastólaaðgengi nýbygginga víða í ólagi: „Klárlega verið að brjóta réttindi fólks“

Aðgengi fyrir fatl­aða er víða í ólestri, jafn­vel í nýbygg­ingum. Þótt skýr ákvæði um aðgengi séu í gildi virð­ist þeim oft ekki vera fylgt og eft­ir­lits­að­ilar aðhaf­ast ekk­ert. Fólk sem jafn­vel hefur keypt íbúðir sem eiga að vera með fullu aðgengi kemst að raun um annað þegar flutt er inn. Erf­ið­lega gengur að sækja málin og flestir hrökkl­ast á end­anum burt og selja íbúðir sínar.

Aðgeng­isá­tak Öryrkja­banda­lags Íslands vakti á dög­unum athygli á skertu aðgengi fyrir hjóla­stóla við nýbygg­ingu í Voga­hverf­inu í Reykja­vík. Þrátt fyrir að rampur sé til staðar eru van­kantar á hönn­un­inni með þeim hætti að hann er ónot­hæfur. Verk­efna­stjóri hjá Öryrkja­banda­lag­inu segir alltof algengt að ekki sé farið eftir lögum og reglum um aðgengi í nýbygg­ingum.

Mynd af inn­gangi nýbygg­ing­ar­innar var birt inni á Facebooksíðu Aðgeng­isátaks Öryrkja­banda­lags Íslands. Á henni má sjá ótal mis­tök í hönn­un­inni sem skerða aðgengið. Ramp­ur­inn er of mjór, ekk­ert hand­rið er með­fram honum, rými til þess að snúa hjóla­stól er ekki til staðar og í ofaná­lag virð­ist hurðin opn­ast út. Hún myndi því lenda á ein­stak­lingi í hjóla­stól sem væri þar fyrir framan og ýta við­kom­andi út af pall­inum. Auk alls þessa er dyra­bjalla of há.

Mynd tekin við fjöl­býl­is­húsið í Voga­hverf­inu.

Gangar og inngangar eigi að vera aðgengilegir öllum

Við færslu sem sýnir mynd­ina á síðu Aðgeng­isátaks ÖBÍ bendir einn aðili á það í athuga­semd að ekki sé um að ræða aðal­inn­gang. Tröppur séu fyrir innan inn­gang­inn og því sé þetta ekki ætlað hjóla­stólum. Við aðal­inn­gang húss­ins megi finna allt annað aðgengi. Slíkt skiptir þó ekki máli, þar sem bygg­ingin fellur undir ákvæði algildrar hönn­unar, sem þýðir að gangar og inn­gangar eigi að vera aðgengi­legir öllum, óháð því hvort um sé að ræða aðal­inn­ganga eða ekki.

Stefán Vil­bergs­son, verk­efna­stjóri hjá Öryrkja­banda­lagi Íslands útskýrir í sam­tali við Mannlíf að fjöl­býl­is­hús í dag eigi að vera byggð sam­kvæmt ákvæðum um algilda hönnun. „Það eiga allir að geta farið eftir almenn­ingi; þú átt sem­sagt að geta farið hindr­un­ar­laust í gegnum húsið og í gegnum alla inn­ganga. Þú átt að geta kom­ist inn í geymsl­una þína og inn á öll svæði sem eru ætluð fyrir íbúa. Ef fólk er að tala um að það sé ætl­ast til þess að fatlað fólk komi inn um einn inn­gang, en allir aðrir geti farið út bak­dyra­megin eða hvernig sem það er, þá er klár­lega verið að brjóta rétt­indi fólks.“

Stefán Vil­bergs­son, verk­efna­stjóri hjá Öryrkja­banda­lagi Íslands.

Alvarlegir vankantar á flóttaleiðum

Stefán hefur fengið það stað­fest frá Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun að ákvæðið sé rétt túlkað með þessum hætti. Hann bendir einnig á að lík­lega sé um flótta­leið að ræða, sem bein­línis nauð­syn­legt sé að allir hafi aðgang að.

„Þú þarft að geta kom­ist í gegnum allar hurðir og annað slíkt, í flótta­leið, þótt þú hafir ekki afl til þess að opna þungar hurðir.“ Stefán bendir á að oft sé látið hjá líða að gera ákveðna hluti varð­andi flótta­leiðir með full­nægj­andi hætti. Gjarnan séu ekki settir upp sjálf­virkir opn­arar á hurðir í umferð­ar­leið, eða ekki tryggt að tog sé ekki þyngra en svo að allir ráði við það. Aðspurður segir hann ástandið enn slæmt hvað þetta varðar og að ekki sé farið eftir ákvæð­inu í mörgum nýbygg­ingum.

„Í nýbygg­ingum á allt aðgengi að vera í lagi; í þessum bygg­ingum sem falla undir kröfur um algilda hönnun. Þannig að allir; fatlað fólk og allur almenn­ingur, börn, gam­al­menni og hver sem er, eiga að geta farið um hindr­un­ar­laust og með sama hætti og aðrir. Það er ennþá verið að klúðra þessu og oft með sama hætti. Þá eru bæði eld­varn­ar­hurðir og úti­hurðir alltof þungar, og eng­inn sjálf­virkur opn­ari. Það eru oft háir þrösk­uldar og síðan er íbúum beint í gegnum bíla­stæða­kjall­ara, en þar er oft ekki sjálf­virkur opn­ari á eld­varn­ar­hurðum. Eld­varn­ar­hurðir eiga að lok­ast þétt; þeirra hlut­verk er fyrst og fremst að vera lok­aðar. Þannig að fólk þarf oft að bisa við að reyna að opna þær. Ef þú hefur ekki hand­styrk eða ert í hjóla­stól, þá ræð­urðu ekk­ert við það.“

Kærði aðgengismál í íbúðarhúsi sínu

Þrátt fyrir að ákvæðið sé til staðar, og eig­endum og verk­tökum skylt að fara eftir því, virð­ist eft­ir­fylgni ábóta­vant. Í vor féll þó úrskurður eftir að íbúi kærði aðgeng­is­mál til úrskurða­nefndar umhverfis- og auð­linda­mála. Íbúðin sem um ræðir er stað­sett í Tanga­bryggju. Íbúinn kærði atriði á borð við þau sem Stefán nefnir, auk ann­arra. Í fyrsta úrskurði dæmdi nefndin verk­tak­anum ekki í óhag. Ýmsir van­kantar voru við­ur­kenndir en þrátt fyrir það ákvað nefndin að aðhaf­ast ekk­ert í mál­inu. Í fram­hald­inu lagði íbú­inn málið fyrir umboðs­mann Alþingis, sem skyld­aði nefnd­ina til þess að taka málið upp aftur. Auk þess lagði Öryrkja­banda­lag Íslands fram álit í mál­inu. Í fram­hald­inu var úrskurð­inum snúið við að miklu leyti.

„En brota­lömin er bæði sú að verk­takar leggja fram teikn­ingar, sem síðan verða oft breyt­ingar á í ferl­inu,“ segir Stefán. „Þannig að þú ert oft ekki að kaupa það sem þú heldur að þú sért að kaupa. Síðan eru leyf­is­veit­endur og eft­ir­lits­að­ilar, sem eru mikið til þeir sömu, að hleypa þessu í gegn. Það hefur dugað lítið að kvarta og kæra hingað til. Fólk hefur frekar hrak­ist út og orðið að selja íbúðir, sem það keypti sem aðgengi­legar.“

Stefán segir ástandið í þessum málum því langt frá því að vera í lagi. „Við sjáum tals­vert af þessu. Allt í einu eru kannski komnar tröppur upp að inn­gangi þar sem átti að vera beint flæði inn.“

Íbúð­ar­húsið í Voga­hverf­inu sem um ræðir er í Kugga­vogi. Nýbygg­ingar hafa und­an­farin miss­eri risið þar á ógn­ar­hraða.

„Því miður eru menn oft ekki að vanda sig í þessu ferli; þeir sem bera ábyrgð passa ekki nægi­lega vel upp á þetta,“ segir Stefán.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð