Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Sigmundur Ernir talar hreint út: „Okkur var hent út á sama tíma og elsta dóttir okkar var að deyja“

Sigmundur Ernir talar hreint út: „Okkur var hent út á sama tíma og elsta dóttir okkar var að deyja“
Sig­mundur Ernir Rún­ars­son

Rúss­neski fán­inn, fótum troð­inn, á mynd sem Frétta­blaðið birti og í kjöl­farið heim­sóttu tveir starfs­menn rúss­neska sendi­ráðs­ins hér á landi rit­stjórn­ar­skrif­stofu Frétta­blaðs­ins. Sendi­ráðið vildi afsök­un­ar­beiðni. Sem það fékk ekki. Rit­stjór­inn, Sig­mundur Ernir Rún­ars­son, segir að sér finn­ist þetta vera aðför að íslenskum fjöl­miðlum. Sama dag var gerð netárás á vef fjöl­mið­ils­ins. Sig­mundur Ernir hefur staðið í eld­línu fjöl­miðl­anna í um fjóra ára­tugi og talar við Reyni Trausta­son um fer­il­inn svo sem þegar hann var rek­inn úr starfi frétta­stjóra Stöðvar 2. „Það á og má reka frétta­stjóra Stöðvar 2.“ Þá voru góð ráð dýr. Og Sig­mundur Ernir gaf kost á sér og komst á þing. Hann hélt síðan áfram í fjöl­miðlum eftir fjögur ár við Aust­ur­völl og stýrir í dag fjöl­miðla­veldi. Og hann skrifar bækur og gengur á fjöll. Fram undan eru tvö fjöll í Afríku. Hann talar um and­ar­drætt­ina þrjá í hverju skrefi.

„Ég hef verið í blaða­mennsku í yfir 40 ár og hef aldrei fengið til­skip­anir frá sendi­ráði á Íslandi sem vill hlut­ast til um það hvaða myndir við birtum og hvaða myndir við birtum ekki,“ segir Sig­mundur Ernir Rún­ars­son, rit­stjóri Frétta­blaðs­ins, í við­tali við Reyni Trausta­son þegar þeir ræða um afskipti rúss­neska sendi­ráðs­ins hér á landi í kjöl­far þess að Frétta­blaðið birti mynd af rúss­neska fán­anum sem var Rússunum ekki að skapi. „Sér­stak­lega er þetta skrýtið í ljósi þess að eitt algeng­asta and­lag stríðs­á­taka eru mót­mæli þar sem fánar við­kom­andi árás­ar­ríkja eru brenndir, skornir, skitnir út eða traðk­aðir niður. Þetta eru einar algeng­ustu átaka­myndir allra stríða sem hafa verið háð á síð­ustu árum og ára­tugum. Það er verið að brenna ísra­elska fán­ann, banda­ríska fán­ann, rúss­neska fán­ann; fána þess­ara þjóða sem eru að ráð­ast á aðrar þjóðir. Og svo koma Rússar allt í einu og krefj­ast þess að við biðj­umst opin­ber­lega afsök­unar á því að hafa birt mynd af rúss­neska fán­anum nið­ur­troðnum, fótum troðnum, og krefj­ast þess að við gerum það í ljósi íslenskra reglna eða laga sem er í raun­inni löngu úrelt. Stundum er sagt að það fyrsta sem falli í stríði sé sann­leik­ur­inn og reglur, sem sé frelsið til að mót­mæla; tján­ing­ar­frelsið verður oft og tíðum laga­bók­stafnum yfir­sterkara. Vegna þess að fólk á heimt­ingu á að mót­mæla blóðsút­hell­ingum, aðförum að börnum, gam­al­mennum, menn­ingu, húsum, sögu lands­ins. Eins og er bara að ger­ast í Úkraínu. Og Rússar eiga að líta sér nær heldur en þetta og hugsa sinn gang.

Mér finnst þetta aðför að íslenskum fjöl­miðlum.

Sendiráð Rússa birti okkur bréf sem tveir sendi­ráðs­menn komu með til okkar inn á rit­stjórn og við svöruðum um hæl um að þeir stjórn­uðu ekki íslenskum fjöl­miðlum. Mér finnst þetta ekki aðför að Frétta­blað­inu í sjálfu sér. Mér finnst þetta aðför að íslenskum fjöl­miðlum. Ég tók sér­stak­lega eftir því að íslenskir fjöl­miðlar stóðu saman allir sem einn gegn þess­ari aðför og það er vel og ég tek hatt minn ofan fyrir íslensku fjöl­miðla­fólki fyrir að sýna sam­stöðu á svona stundum þegar sótt er að með ein­ræð­is­legum til­burðum að frjálsri fjöl­miðlun. Og frjáls fjöl­miðlun er einn af horn­steinum lýð­ræðis og mann­rétt­inda.“

Sama dag og bréfið frá rúss­neska sendi­ráð­inu barst var vef­ur­inn, fretta­bla­did.is, tek­inn niður og segir Sig­mundur Ernir að hann hafi hökt fram eftir morgni. „Það kom jafn­framt hót­un­ar­bréf í okkar rit­stjórn­ar­póst vænt­an­lega frá rúss­neskum þjóð­ern­issinnum sem sögð­ust ætla að taka vef­inn alger­lega niður klukkan 12 sam­dæg­urs að Moskvu­tíma; klukkan níu um kvöldið að okkar tíma. Og það gekk ekki eftir. Það varð engin árás á vef­inn á þeim tíma þannig að þetta var í orði kveðnu til þess að skapa ótta.“

Sig­mundir Ernir segir að fundað hafi verið með utan­rík­is­ráðu­neyt­inu, net­ör­ygg­is­þjón­ustu rík­is­ins og rík­is­lög­reglu­stjóra. „Þau tóku þetta mjög alvar­lega og mér þótti mjög virð­ing­ar­vert að sjá hvað bæði utan­ríksi­ráð­herra og önnur stjórn­völd tóku þetta óstinnt upp og svör­uðu þess­ari árás. En almennt séð virð­ist þetta hafa verið gert til þess að hræða og hræða aðra í kringum okkur á hinum Norð­ur­lönd­unum og víðar í frjálsri Evrópu upp á að gæta sín; fara ekki að birta svona myndir – það gæti haft eft­ir­mál. En við eigum bara að standa í lapp­irnar.“

Okkur er oft hótað.

Þetta hlýtur að vera svo­lítið álag; það er ekk­ert grín að fá á sig heilt heims­veldi.

„Það komu margir að máli við mig og spurðu hvort ég væri ekki per­sónu­lega með böggum hildar; svo­lítið hræddur. Og ég fór að hugsa til þess. Jú, kannski á maður að vera pínu­lítið hræddur. Ég hef oft og tíðum sem fjöl­miðla­maður og stjórn­andi fjöl­miðla fengið alls konar hót­anir til dæmis frá fíkni­efna­smygl­urum sem segja að þeir viti í hvaða leik­skóla eða skóla börnin mín eru. Ég hef af og til til­kynnt við­kom­andi hótun til lög­regl­unnar en þetta er bara partur af því að stjórna íslenskum fjöl­miðlum. Okkur er oft hótað.“

Hent út

Sig­mundur Ernir Rún­ars­son er að norðan.

„Ég byrj­aði í blaða­mennsku 1981; kom hingað suður nýstúd­ent frá Akureyri. Búinn að gefa út eina ljóða­bók en hafði skrifað býsnin öll af alls konar efni í mennta­skóla­blaðið Gambra sem var stjórn­ar­and­stöðu­blað í mennta­skól­anum á móti Muninum sem var hið virðu­lega skóla­blað. Við vorum pönk­ar­arnir í skóla­blað­inu Gambra; ég og Hjör­leifur Hjart­ar­son, síðar skemmti­kraftur með Hund í óskilum, og Þor­valdur heit­inn Þor­steins­son, mynd­list­ar­maður og rit­höf­undur; blessuð sé minn­ing hans. Kristinn Eiríkur Hrafns­son, vinur minn og mynd­list­ar­maður. Og fleira gott fólk. En ég kom hingað suður harð­á­kveð­inn í að fara í blaða­mennsku og gekk alla röð­ina í Síðu­múl­anum. Fór fyrst á Þjóð­vilj­ann; fékk neitun. Svo á Dag­blaðið; fékk neitun. Svo sá ég að ég gæti valið á milli Tímans hinum megin við göt­una eða Vísis; mér var frekar illa við að fara á Vísi en ákvað að taka rétta röð. Og þar inni tók á móti mér Ellert B. Schram og þegar hann komst að því að ég hafði þegar gefið út eina ljóða­bók, tví­tugur strák­ur­inn, þá réð hann mig á stund­inni og ég gekk inn í bás hjá Árna Sig­fús­syni, Gunn­laugi Sævari Gunn­laugs­syni og Óskari Magn­ús­syni. Þannig að blárra gat það ekki verið. Þetta var eins borg­ara­legt blað og hugs­ast gat en frá­bært fólk og miklir vinir mínir enn þann dag í dag.“

Ég er reiður þessu fólki.

Jú, Sig­mundur Ernir vissi hvað hann vildi og það fékk hann. Og árin liðu í fjöl­miðla­heim­inum. Stöð 2 er einn af vinnu­stöð­unum. Þar var hann frétta­stjóri og segir hann að allir frétta­stjórar séu reknir fyrir rest.

Sig­mundur Ernir á fjalli ásamt Elínu Sveins­dóttur, eig­in­konu sinni.

„Ég var rek­inn og reyndar konan mín sam­dæg­urs í ein­hverju hefnd­ar­skyni. Ari Edwald og Ólafía Rafns­dóttir mannauð­stjóri ákváðu að reka mig sem var alveg sjálf­sagt mál. Það á og má reka frétta­stjóra Stöðvar 2. Það er bara hið eðli­lega. En þeir ákváðu að henda kon­unni minni út sam­dæg­urs og þetta var gert með þeim hætti að okkur var hent út. Eftir allt okkar upp­bygg­ing­ar­starf, ekki síst konu minnar, Elínar Sveins­dóttur útsend­ing­ar­stjóra, sem var óþreyt­andi og vann hjá frétta­stofu Stöðvar 2 nán­ast frá upp­hafi. Okkur var hent út á sama tíma og elsta dóttir okkar var að deyja; þetta var svo fag­ur­lega gert hjá þeim. Við vitum allt um það hvað hefur orðið um þetta fólk síðan. Og ég er reiður. Ég er reiður þessu fólki. Ég skal bara við­ur­kenna það. Ekki út af mér heldur út af kon­unni minni.“

Og fjöl­miðlar fjöll­uðu svo­lítið um alþing­is­mann­inn sem hafði verið fjöl­miðla­maður.

„Ég leið svo­lítið fyrir það að vera frægi karl­inn.“

Maður er mót­aður af mót­vindi.

Þú lentir í smá­krísu. Mynd­skeiði var deilt þar sem þú varst undir áhrifum. Slomp­aður í ræðu­stól.

„Ég hafði tekið þátt í boðs­móti bank­ans míns þvert um geð; fór á golf­mót. Og þar var eins og stundum á þessum boðs­mótum hellt svo­lítið upp á liðið. Ég hins vegar var svo sam­visku­samur að ég vissi að ég ætti ræðu klukkan 11 eða 12 um kvöldið og kom svo niður eftir og taldi mig vera færan í flestan sjó. En svo þegar hit­inn inn­an­dyra sveif á mann þá fór maður kannski aðeins að slomp­ast. Ég átt­aði mig ekki þá á því að ég hefði getað frestað ræð­unni. En ég var svo sam­visku­samur að mæta bara til leiks og það mátti heyra á mæli mínu að ég hafði fengið mér tvö þrjú rauð­víns­glös. Þó það nú væri. En ég segi nú alltaf að lífið væri nú lít­ils virði ef maður lenti ekki í mót­læti. Og maður er búinn til úr mót­vindi. Maður er mót­aður af mót­vindi. Og ég hef lent í alls konar erf­ið­leikum í mínu lífi og gert fullt af mis­tökum. Öðruvísi lifir maður ekki. Og maður er að mörgu leyti miklu mót­aðri af mót­vindi heldur en með­vindi.“

Sig­mundur Ernir baðst afsök­unar.

„Það sem mér finnst einna leið­in­leg­ast við íslenskt sam­fé­lag sem er að mörgu leyti mjög heill­andi og krútt­legt er að virð­ingin fyrir afsök­un­inni hefur minnkað. Sam­fé­lags­miðl­arnir eru orðnir ákaf­ari. Gamla Gróa á Leiti er svo­lítið komin út á opin­beran vett­vang.“

Við eigum að virða afsök­un­ina.

Hún er á Twitter.

„Hún er á Twitter, Facebook og öllum þessum sam­fé­lags­miðlum þar sem fólk er vegið hægri vinstri og örugg­lega gera allir eitt­hvað af sér um dag­ana og þar á meðal ég. En við eigum að virða afsök­un­ina. Ef menn við­ur­kenna mis­tök sín, biðj­ast afsök­unar á þeim, biðj­ast vægðar og telja sig geta lært af mis­tök­unum þá eigum við að virða afsök­un­ina. Okkur verður öllum á. Og mér á eftir að verða aftur á. Þannig er lífið.

Við eigum að virða afsök­un­ina og mér líst illa á þessa úti­lok­un­ar­menn­ingu sem er að halda inn­reið sína inn í sam­fé­lagið þar sem er verið að dæma menn úr leik án dóms og laga. Og það finnst mér vera óheilla­þróun.“

Vinnan fram yfir vinskapinn

Sig­mundur Ernir er spurður hvert erf­ið­asta málið sé sem hann hefur unnið að á ferl­inum.

„Þau eru mörg. Auðvitað var óstjórn­lega erfitt að lesa upp í tveimur frétta­tímum – og ég var frétta­þulur báða dag­ana árið 1995 – nöfn fólks­ins sem fórst í snjó­flóð­unum á Flateyri og í Súðavík. Þetta var að mínu viti á meðal aum­ustu kafla Íslands­sög­unnar þegar þjóðin laut höfði; stóð saman sem ein fjöl­skylda. En ég fann hins vegar á okkur frétta­fólk­inu – Eggerti Skúla­syni sem fór vestur og kvik­mynda­töku­mönn­unum okkar og í raun­inni bara öllum okkar hópi sem var að segja fréttir af þessu – hvað við tókum þetta inn á okkur. Þetta er einn af þeim atburðum sem maður er ennþá hvað sárastur gagn­vart. Þetta er svo fámennt land. Stundum þarf maður að taka ákvörðun; á ég að segja frétt af óförum kunn­ingja manns og vina? Jafnvel mjög náinna vina? Jú, maður kemst að þeirri nið­ur­stöðu að maður verði að segja þessa frétt. Annars væri ég ósam­kvæmur sjálfum mér. Og það hafa orðið vin­slit fyrir vikið. Það er nátt­úr­lega mjög erfitt og nán­ast óbæri­legt að taka vinn­una fram yfir vin­skap­inn. Það er ekki létt­vægt.“

Heimur ofboðslega margra hugmynda

Rit­stjóri. Rit­höf­undur. Ljóð­skáld. Fjalla­maður. Hvernig hefur Sig­mundur Ernir tíma í þetta allt?

„Ég hef lík­lega verið ofvirkur allt frá barn­æsku. Ég elska að vinna. Ég elska að vera innan um fólk. Og ég elska reyndar líka ein­semd­ina ekki síst upp til fjalla. Bara vera einn með hugs­unum mínum. En ég hef alltaf verið maður margra hug­mynda í einu og hef helst viljað koma þeim öllum í fram­kvæmd. Í þessu starfi, bæði sem rit­höf­undur og blaða­maður, þá æfist maður. Þá æfist maður í að fá margar hug­myndir. Sumar vondar. Aðrar skárri. Ein­hverjar góðar. Og þetta áger­ist með árunum. Maður bara lifir og hrær­ist í heimi ofboðs­legra margra hug­mynda. Ég get nefnt sem dæmi að í hvert sinn sem ég hef klárað ljóða­bók hin seinni ár þá finnst mér ég vera algjör­lega tæmdur. Bara eins og tómur tankur. En svo bara óvart tveimur árum seinna er maður búinn að fylla upp í næstu ljóða­bók án þess að vita af því. Þetta kemur ein­hvern veg­inn aftan að manni.“

Hann seg­ist vera A-maður. „Ég reyni að vakna ekki seinna en sjö og ég vil helst vera kom­inn í vinn­una fyrir átta til að eiga alveg klukku­stund til að und­ir­búa dag­inn. Svo er rit­stjórn­ar­fundur þar sem við leggjum lín­urnar fyrir dag­inn hvað varðar Frétta­blaðið og fretta­bla­did.is Svo á ég fundi með blaða­fólk­inu á DV sem ég er líka aðal­rit­stjóri yfir og fólk­inu á Frétta­vakt­inni á Hring­braut og þátta­stjórn­endum þar. Þannig að þetta fer mikið í funda­höld fram eftir degi. En svo reyni ég líka að skrifa í blaðið. Mér finnst ótækt að rit­stjóri og vanur blaða­maður til margra ára skrifi ekki í blaðið líka þannig að ég vil helst af og til skrifa helg­ar­við­töl og fréttir og vera bara í stuð­inu og sam­keppn­inni meðal ann­arra blaða­manna um að eiga for­síð­una. Það er aðal­fjörið.“

Hann segir að frétta­stjór­arnir ráði því hvað fari á for­síð­una.

Ég sest stundum inn á kaffi­hús með komp­una mína.

„Síðan er ég tölu­vert seinni part­inn í tökum á Frétta­vakt­inni eða upp­tökum á þáttum. Ég er búinn að gera 260 Manna­máls­þætti, við­tals­þætt­ina mína í sjón­varpi. En svo af og til fer ég út á land og geri þætti þar. Ég er búinn að gera 18 fjalla­skála­þætti í sam­vinnu við Ferða­fé­lag Íslands um þessa merki­legu menn­ingu sem fjalla­skál­arnir um öll örævi Íslands eru. Og svo nota ég kvöldin og helgar til að skrifa bækur. Ég sest stundum inn á kaffi­hús með komp­una mína. Ég skrifa öll mín ljóð í kompur. Litlar kompur. Ég á hund­ruð slíkra kompa frá því ég var í Mennta­skól­anum á Akureyri.“

Stundum vinnur hann fram á nótt.

Hvenær hefur hann tíma fyrir eig­in­kon­una?

„Á fjöllum og heima í elda­mennsku. Við erum ofsa­lega miklir vinir. Við gerum allt saman. Við erum náin. Við unnum mikið saman, eða í kringum 20 ár, á Stöð 2 þar sem við kynnt­umst. Við förum mikið á fjöll. Við göngum líka mikið í bænum. Það eru ofboðs­lega margar fal­legar göngu­leiðir í bænum. Við förum mikið út á land,“ segir Sig­mundur Ernir og nefnir gamla heima­bæ­inn sinn, Akureyri, þar sem hjónin ganga jú líka.

„Við gengum um síð­ustu helgi rúm­lega 40 kíló­metra; við fórum að Fjalla­bak sem er einn feg­ursti staður lands­ins.“

Þrír andardrættir

Sig­mundur Ernir seg­ist hafa hæst verið í um 3.800 metra hæð í And­es­fjöllum. „Í kringum 3.500 metrum finnur maður fyrir því þegar maður leggst á kodd­ann að and­ar­drátt­ur­inn er styttri en ella.“

Og fram undan er ganga í Afríku. Þar ætlar hann að klífa tvö fjöll.

„Það er ann­ars vegar Meru, sem er um 4000 metra hátt, til að und­ir­búa okkur undir næsta fjall sem er Kilimanjaro, hæsta fjall Afríku, sem er um 6000 metra hátt. Það verður kúnst að því leyti að labba í hita, 30 stiga hita og það verður kúnst að því leyti að þarna er mat­ar­eitrun algeng. Gangan fer mis­jafn­lega í lungu fólks.“

Sig­mundur Ernir segir að síð­asta dag­inn þurfi að ganga hægt. „Í hverju skrefi þarf maður að taka þrjá and­ar­drætti til þess að lifa göng­una af sóm­sam­lega vegna þess að hæð­arað­lög­unin er svo­lítið happ­drætti. Og maður veit ekk­ert hvernig þetta fer með mag­ann, lungun eða höf­uðið. Sumir hafa endað í rang­hug­myndum. En ég á von á því að við komumst klakk­laust í gegnum þetta. Við verðum með frá­bæran leið­sögu­mann, Leif Örn Svav­ars­son.“

Svo verður gerð tveggja þátta röð um þessa ferð. „Konan verður með litla upp­töku­vél og lít­inn dróna.“

Ég er með ofboðs­lega margar hug­myndir í koll­inum.

Hann sem lætur land­ann fylgj­ast með málefum heims­ins, býr til ævin­týra­heima í bók­unum sínum og kynn­ist öðrum heimi á fjöllum og gerir um þann heim þætti sem eru meira að segja svo­lítið ljóð­rænir segir að það sé draumur sinn að geta á næstu árum ein­beitt sér enn frekar að rit­störfum. „Ég er með ofboðs­lega margar hug­myndir í koll­inum og það er eilíf­lega verið að biðja mig um að skrifa hinar og þessar bækur og ég er aðal­lega í því að neita fólki um það. Vel rjómann. Ég er til dæmis núna að skrifa bók um konu af Ströndum. Frá Tré­kyllis­vík. Frá bæ í Árnes­hreppi. Þetta er mikil örlaga­saga. Dramat­ísk saga stúlku sem 11 mán­aða gömul var flutt á spít­al­ann á Ísafirði, berkla­sjúk í hryggnum. Í beinum. Og ólst þar upp til níu ára ald­urs, alger­lega óskóla­gengin“

Svo þvæld­ist hún síðar á milli bæja. Og saga hennar hélt áfram.

Svo er það ein saga sem Sig­mundur Ernir seg­ist verða að skrifa. „Hún ber vinnu­heitið „Fyrir norðan hníf og gaffal“ og fjallar um sam­skipti mín við Sigmund afa.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð