Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Ein merkasta lækningaplanta landsins – markaðsvirði um 4 milljarðar

Ein merkasta lækningaplanta landsins – markaðsvirði um 4 milljarðar
Þóra Ellen Þór­halls­dóttir. Mynd/skjá­skot. Ljós­mynd­ari:©Kristinn Ingv­ars­son Mynd: KRISTINN INGVARSSON / Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson

„Hún er vafa­laust ein allra verð­mætasta lækn­inga­plantan í íslensku flór­unni,“ segir Þóra Ellen Þór­halls­dóttir, pró­fessor í grasa­fræði við HÍ.

„Á lág­lendi er hún núna nán­asta bundin við kletta, gljúfur og hólma en þar sem búfjár­beit er lítil á hálend­inu finnst hún sums staðar í stórum breiðum í mólendi og deigu landi. Svo vex burni­rót uppi á mjög hrjóstr­ugum fjöllum, t.d. á Vest­fjörðum. Ég held að burni­rót hafi eitt­hvað verið safnað hér á landi sl. ára­tug og á a.m.k. einum stað á mið­há­lend­inu sé ég að hún virð­ist vera horfin og ég tel lík­legra að það sé vegna söfn­unar frekar en beitar. Það er jarð­stöng­ull­inn sem er not­aður og því þarf að grafa alla plönt­una upp.“

Rann­sóknir hafa sýnt að Burnirót (Rhodiola rosea) getur komið sér vel við að lækna ýmsa kvilla. Talið er að hún geti dregið úr þung­lyndi og kvíða og unnið gegn streitu og þrótt­leysi.

Íslenska sauð­kindin bítur ekki hvað sem er og hún leggur til dæmis á sig tals­verðan krók til að ná í þær teg­undir sem heilla hana mest, eins og t.d. æti­hvönn og burni­rót. Þótt burni­rót finn­ist í öllum lands­hlutum, allt frá sjáv­ar­máli og upp í 1000 m hæð, þá er hún alls ekki algeng, segir Þóra Ellen Þór­halls­dóttir, pró­fessor í grasa­fræði við HÍ, en hún leiðir nú teymi sem fékk styrk úr Tækni­þró­un­ar­sjóði til rann­sókna á plönt­unni burni­rót. Þóra Ellen hefur sér­hæft sig í gróð­ur­fram­vindu, blómg­un­ar­líf­fræði og í verð­mætum nátt­úru sem allt skiptir máli í þessu verk­efni auk þess sem hún hefur beint sjónum að lofts­lags­breyt­ingum í rann­sóknum sínum.

Lokamarkmið að gera ræktun og sölu rótarinnar að aukabúgrein

Rann­sókn­arteymi Háskóla Íslands hefur farið af stað til þess að kanna enn frekar l.ækn­ing­ar­mátt jurt­ar­innar. Þá býr jurtin yfir virkum efnum eins og; lífmassa jarð­stöng­uls, fræ­gæða, erfða­fjöl­breytni. Skyld­leika úr burni­rót­arplönt­unni er borin saman frá ólíkum búsvæðum. Plantan verður ræktuð við staðl­aðar aðstæður og frammi­staða plantna og styrkur virkra efna metin eftir tvö ár. Að lokum verður svo besti stofn­inn val­inn og kannað hvernig best er að fram­reiða afurðir úr henni fyrir sölu til fyr­ir­tækja á jurta­lyfja-, fæðu­bót­ar­efna- og snyrti­vöru­mark­aði. Loka­mark­mið verk­efns­ins er að gera ræktun og sölu burni­rótar að raun­hæfri auka­bú­grein fyrir íslenska bændur.

Burnirót sem hágæðavara á markaði

Rann­sóknin sem teymið vinnur að kall­ast „Val og ræktun burni­rótar sem hágæða­vöru á mark­aði.“ Í verk­efn­inu stendur til að bera saman ólíka stofna burni­rótar á Íslandi og er þá m.a. horft til vist­fræði, efna­fram­leiðslu, erfða­fjöl­breytni og skyld­leika.

„Plöntur verða síðan settar í til­rauna­rætkun í tvö ár til að bera saman vaxt­ar­hraða og eig­in­leika ólíkra stofna og leiðir þeirra til fjölg­unar.“

Þessi rann­sókn fellur einkar vel að Heims­mark­miðum Sam­ein­uðu þjóð­anna, ekki síst því sem víkur að hnignun líf­fræði­legar fjöl­breytni og að tryggja sjálf­bæra nýt­ingu vist­kerfa lands.

Markaðsvirði hátt í 4 milljarðar

Þóra segir rann­sóknin, ein­stak­lega hag­nýta, en rann­sak­endur segja að árlegt mark­aðsvirði afurða sé a.m.k. 3,5 millj­arðar króna og eft­ir­spurn vaxi stöðugt eða um hart­nær 8 pró­sent á ári. Ofnýting hafi hins vegar leitt til hnign­unar plönt­unnar, að sögn Þóru Ellenar, og að burni­rót sé komin á válista sum staðar, t.d. í fimm Evr­ópu­löndum. Alþjóð­a­n­átt­úru­vernd­ar­ráðið (IUCN) og und­ir­stofn­anir Sam­ein­uðu þjóð­anna hafi einnig hvatt til rækt­unar burni­rótar til að stemma stigu við eyð­ingu villtra stofna.

Vinnur gegn stressi og þróttleys, eykur einbeitingu og úthald

Burni­rót­ara­krar eru að sögn Þóru Ellenar í nokkrum löndum en ræktun er enn í smáum stíl.

„Burnirót er notuð gegn stressi og þrótt­leysi og til að auka ein­beit­ingu og úthald. Klínískar rann­sóknir virð­ast styðja við þessa verkun þótt hún sé ekki að fullu sönnuð og þörf sé á ítar­legri rann­sóknum. Þá má nefna að burni­rót hefur sýnt mót­verk­andi áhrif gegn veirum og önd­un­ar­færa­sjúk­dómum af þeirra völdum og rann­sóknir hafa m.a. beinst að áhrifum hennar á æða­sjúk­dóma, krabba­mein og syk­ur­sýki. Í þessu verk­efni koma saman aðilar sem vilja finna bestu leið fyrir ræktun burni­rótar á Íslandi með afurðum sem mark­aðs­setja má sem sjálf­bært fram­leidda hágæða­vöru,“ segir Þóra í fyr­ir­spurnun vegna rann­sókn­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð