Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Blöskraði yfirfull tunna af brauði við Bakarameistarann: „Þú getur ekki látið allt klárast“

Blöskraði yfirfull tunna af brauði við Bakarameistarann: „Þú getur ekki látið allt klárast“
Myndir/skjá­skot: Sig­ur­björg Rósa Sig­þórs­dóttir/Facebook

Íbúi í Hlíðunum vakti athygli á miklu magni brauð­metis sem hafði verið hent úr bak­aríi Bak­ara­meist­ar­ans í Suð­ur­veri. Fram­kvæmda­stjóri Bak­ara­meist­ar­ans seg­ist telja að um ein­stakt til­vik sé að ræða. Fyr­ir­tækið reyni að gera sitt besta til að sporna gegn mat­ar­sóun.

Ein mynd­anna sem birt­ist í hverf­is­hópnum. (Facebook)

Í gær­kvöldi birt­ust myndir í hverf­is­hópi Hlíða­hverfis Reykja­víkur á Facebook, sem sýna stóra rusla­tunnu yfir­fulla af brauð­meti. Rusla­tunnan er stað­sett rétt við útibú Bak­ara­meist­ar­ans í Suð­ur­veri. Á mynd­unum er sýni­legt mikið magn brauðs og rún­stykkja í pokum, svo stendur upp úr tunn­unni.

„Á tímum þegar öll ættu að vera með­vituð um mat­ar­sóun má sjá þennan ruslagám, rétt hjá Bak­ara­meist­ar­anum Suð­ur­veri, fullan af brauði. Hvað er málið?“ skrifar höf­undur færsl­unnar meðal ann­ars.

„Við erum að nýta afgangana mjög vel“

Blaða­maður Mannlífs hafði sam­band við Sig­ur­björgu Rósu Sig­þórs­dóttur, fram­kvæmda­stjóra Bak­ara­meist­ar­ans. Hún segir að í rekstr­inum falli alltaf til afgangar. „Þetta er eftir helg­ina. Við erum að nýta afgang­ana mjög vel og styrkja íþrótta­fé­lög, og við erum að styrkja Fjöl­skyldu­hjálp Íslands með brauð. En það er nátt­úru­lega ekki alla daga vik­unnar.“

Blaða­maður hefur á orði að um nokkuð magn virð­ist vera að ræða.

„Þetta er ekki mikið held ég,“ segir Sig­ur­björg. „Þetta er svona tvö­föld rusla­tunna, eftir alla helg­ina.“

Sig­ur­björg segir að ekk­ert sé gefið af því sem falli til um helgar, slík þjón­usta sé ekki til staðar þá daga. Aðspurð hver stefna Bak­ara­meist­ar­ans sé þegar komi að mat­ar­sóun segir hún að þau reyni að halda henni eins lít­illi og þau geti. „En það er ekki hægt að hafa allt tómt alla daga og láta allt ganga upp. Þú veist aldrei hver traffíkin er. En við fylgj­umst mjög vel með; skráum allt hjá okkur sem verður afgangs.“

Sig­ur­björg seg­ist ekki vita hve mikið hafi fallið til þessa til­teknu helgi. „Nei, ég skoða það ekki dag­lega. Ég er ekki að skoða afgangs­listana eftir helgi núna. En af hverju þarftu að fjalla um þetta sér­stak­lega?“

Hefur ekki fengið kvörtun um slíkt áður

Sig­ur­björg segir að fyr­ir­tækið reyni sitt besta þegar kemur að mat­ar­sóun. „En þú myndir ekki heldur vilja koma sem kúnni í bak­aríið og það væri alltaf tómt allt. Við reynum alltaf að hafa fram­leiðslu­magnið þannig að það er hver dagur með sitt magn, og svo veistu aldrei. Stundum klár­ast allt löngu fyrir lokun og stundum er afgangur. Við erum að flokka; við flokkum plast, pappír og líf­rænt. Þetta er ekki losað um helgar, þannig að það getur safn­ast. Ég held að þetta sé örugg­lega í fyrsta sinn sem það ger­ist. Ég hef alla­vega ekki fengið kvörtun um þetta áður. Það getur alltaf verið svona um helgar, þegar það er ekki verið að losa. En við erum að reyna að gera okkar besta í að flokka og hafa sem minnsta mat­ar­sóun.“

Sig­ur­björg segir Bak­ara­meist­ar­ann styrkja Fjöl­skyldu­hjálp með því að safna saman öllum afgöngum til þeirra á virkum dögum. „En um helgar þá setjum við í gáma. Þá flokkum við og setjum í líf­rænt. Þetta er líf­rænn úrgangur sem fer bara þannig. Við erum að reyna að gera þetta eins vel og við getum. En það er ekki losað um helgar og við erum ekki að keyra í frí­skápana eða nota þá. Við erum að gefa þetta í íþrótta­fé­lögin, þau fá afganga, og svo Fjöl­skyldu­hjálp.“

„Best væri ef það yrði ekkert afgangs“

Aðspurð hvort hún haldi að mögu­legt væri að gera betur hvað varðar mat­ar­sóun um helgar seg­ist Sig­ur­björg ekki viss. „Jú, örugg­lega, ég aug­lýsi þá bara eftir ágætri leið í það ef fólk sér það. Ég er alltaf til í að skoða þetta, því auð­vitað vill maður farga sem minnstu af rusli og afgöngum. Sér­stak­lega mat, því þetta kostar allt. Best væri ef það yrði ekk­ert afgangs, en það er heldur ekki hægt. Þú verður alltaf að hafa eitt­hvað til sölu. Þú getur ekki látið allt klár­ast og haft allt tómt. Það segir sig svona pínu sjálft, en við reynum eins og við getum.“

Sig­ur­björg ítrekar að hún haldi að um ein­stakt til­vik sé að ræða. „Því ég hef ekki fengið svona kvörtun áður.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ