Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Hálfsystkini talin hafa á laun eignast barn og fyrirfarið því: Hann varð aldrei samur

Hálfsystkini talin hafa á laun eignast barn og fyrirfarið því: Hann varð aldrei samur

Sólborg Salína Jóns­dóttir (1864–1893) og Sigurjón Ein­ars­son (1869–?) Hið svo­kall­aða Sól­borg­ar­mál kemur fyrir í dóma­bókum í jan­ú­ar­byrjun 1893. Hálf­systk­inin Sólborg Salína Jóns­dóttir 29 ára og Sigurjón Ein­ars­son 24 ára, voru vinnu­hjú á Sval­barði í Þistil­firði og eru talin að hafa á laun eign­ast barn og fyr­ir­farið því.

Upphaf Sól­borg­ar­máls­ins var síðla hausts 1892. Þá barst að Héð­ins­höfða bréf til Bene­dikts sýslu­manns. Í þessu bréfi skýrði hrepp­stjóri frá því, að sá orðrómur væri almennur í sveit­inni að vinnu­kona á prests­setr­inu Sval­barði sem hét Sólborg 29 ára hefði síð­ari hluta sum­ars fætt barn í dul og komið því fyrir.

Þá hefðu margir, þóst sjá þess merki, að hún væri van­fær, en síðan hefði henni horfið þykktin. Tilgátur manna væru, að hálf­bróðir stúlkunnar Sigurjón, sem einnig var heim­il­is­fastur á Sval­barði, kynni að hafa verið faðir barns­ins.

Einar Bene­dikts­son sonur sýslu­manns tók að kanna málið, varð fljótt ljóst, að sam­dráttur þeirra hafði lengi verið á allra vit­orði, ekki aðeins á Sval­barðs­heim­il­inu, heldur um alla sveit­ina. Einn dag um haustið bar svo við, að hún veiktits, en um sama leyti varð heim­il­is­fólk þess vart, að henni hvarf þykktin. Þetta kom eins og reið­ar­slag yfir Sval­barðs­heim­ilið og alla sveit­ina. Enginn hafði búist við því, að þau systk­inin gripu til hinna verstu óynd­isúr­ræða.

Sólborg og bróðir hennar voru ákærð fyrir að hafa borið út barn sitt. Einar Bene­dikts­son, þá nýút­skrif­aður lög­fræð­ingur var feng­inn til að dæma í mál­inu og það fór ekki betur en svo að annar sak­born­ing­ur­inn í mál­inu deyr í hönd­unum á honum. Þar tókst Sólborgu að inn­byrða refa­eitur og kom Einar að henni í áköfum krampa­gráti og seinna um nótt­ina var hún örend.

Ljóst er að þessi lífs­reynsla lagð­ist þungt á skáldið og magn­að­ist myrk­fælni hans mjög við atvikið. Að loknu Sól­borg­ar­mál­inu lét Einar ferja sig yfir Þistil­fjörð. Þegar kom að því að inn­heimta toll­inn segir ferju­mað­ur­inn í stríðni: „Ætlið þér ekki að greiða fyrir stúlk­una líka?“ Og án orða, tók Einar upp pyngju sína og greiddi fyrir Sólborgu. Hann varð aldrei samur maður eftir. Hann þjáð­ist upp frá þessu af myrk­fælni og mátti aldrei einn vera. Hann taldi Sólborgu fylgja sér og ásækja sig í svefni. Einar lést 12. jan­úar 47 árum síðar, en þann 4. mars 1893 var Sigurjón dæmdur til tíu ára betr­un­ar­hússvistar.

Ekki er það síst vegna þáttar skálds­ins fræga Einars Bene­dikts­sonar. Það kom í hans hlut að dæma í mál­inu og hafa grimm örlög hálf­systk­in­anna Sól­borgar og Sig­ur­jóns, á Sval­barði í Þistil­firði undir lok 19. aldar reynst þjóð­inni drjúgt umræðu­efni í gegnum tíð­ina. Svo mikil að þau hafa komið við sögu í mörgum verkum, en útvarps­leik­rit var gert um morðið

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð